Austri


Austri - 12.12.1996, Qupperneq 23

Austri - 12.12.1996, Qupperneq 23
Jólin 19% AUSTRI 23 Sjóminjasafn Austurlands Sjóminjasafn Austurlands var opnað þann 4. júní 1983 og nú er því fjórtánda starfsár þess að líða. Aðsókn hefur verið mismunandi frá ári til árs, en hefur heldur aukist. Um 1.000 gestir heimsóttu safnið á fyrsta ári, en gestir urðu um 1.800 nú í ár. Samtals hafa um 18.000 manns heimsótt safnið frá upphafi. Skólanemar, í hópum í fylgd með kennurum, voru 200 á þessu ári og hefur þeim fjölgað verulega síðustu árin. A safninu eru til verkefni um nokkra afmarkaða þætti, svo sem síldveiðar og geta nemendur unnið verkefni á safninu ef henta þykir. Uppsetning safnsins hefur í að- alatriðum haldist óbreytt frá opnun. A hverju ári verða þó einhverjar breytingar, eftir því sem safngripum fjölgar. Sumarið 1995 var komið fyrir á efri hæð safnsins lík- ani af Eskifjarðarbæ, eins og hann var 1923 og síðan hafa bæst við nokkrir smærri sýn- ingargripir. Af þeim má nefna leirkrukku, sem kom úr sjó undan Breiðuvíkur- kaupstað, en þar var verslun á tímabilinu 1600-1800. Einnig leirbrúsa, dreginn af hafsbotni á Rauða torginu, um 50 mílur suðaustur frá Gerpi. I fyrra voru gerðir litlir bæklingar um safnið á nokkrum tungumálum. Fremur litlar breytingar urðu í safninu í ár, enda má segja að sýningarrýmið sé fullnýtt eins og er. Randulffssjóhús. Saltfiskverkun. Austurlandi, byggt árið 1837. Gamla-Búð, hús Sjóminjasafns- stendur m/b Nakkur, smíðaður í Færeyjum 1912. Báturinn sá kom til safnsins árið 1990. Safnið hefur séð um viðgerðir á Nakki og eru enn smávægilegar lagfæringar eft- ir. Gripir sem bárust safninu á þessu ári, eru 55 að tölu og má þar helst tiltaka líkön af m/b Auðbjörgu NK 66, sem Jakob Jakobsson skip- stjóri í Neskaupstað átti og af Jóni Kjartanssyni, nótaskipi á Eskifirði. Þá fékk safnið setbekk, mjög óvenjulegan, kominn úr skipinu E/S Sterling sem strandaði við Brimnes í Seyðisfirði árið 1922. Bekkurinn, sem er úr mahoníviði, er þannig gerður að bakfjöl er fest við arma á endum hans og er hægt að velta bakfjölinni til beggja hliða, svo hægt er að sitja á bekknum báð- um megin, eftir því sem menn kjósa. Bekkurinn var orðinn illa farinn og sundurlaus, en hefur nú verið lagfærður og komið fyrir á efri hæð í safninu. Til safnsins kom bekkurinn frá Guðbjörgu Sigur- jónsdóttur á Reyðarfirði, áður hús- freyju á Sléttu. Guðbjörg ólst upp í Loðmundarfirði og þá eignaðist hún bekkinn. A Sjóminjasafninu var fyrir skápur úr Sterling. Skápurinn er gerður fyrir eins konar handlaug og yfir honum er rekki fyrir vatnsglös og fleira. Hann kom frá Hjarðar- haga á Jökuldal, svo auðséð er að búnaður úr skipinu hefur dreifst víða. Sterling kom nokkuð við sögu Eskifjarðar því skipið var um tíma í eigu Thorefélagsins, en eigandi þess var Þórarinn Tulinius, sem fæddur var á Eskifirði, sonur Carls B. Tul- inius, en hann var kaupmaður á Eskifirði á árunum 1860-1905. Þór- arinn rak verslunina í nafni erfingja Carls eftir árið 1905. Á þeim tíma var lögð símalína frá Seyðisfirði og norður um land til Reykjavíkur. Þór- arinn lét leggja línu til Eskifjarðar yfir Eskifjarðarheiði á eigin kostn- að, því hann vildi vera í sambandi við stöðvar fyrirtækis síns í Dan- mörku og umheiminn. Setbekkur, kominn úr skipinu E/S Sterling sem strandaöi við Brimnes í Seyðisfirði árið J922. Sjóminjasafn Austurlands sendir öllum velunnurum sínum, sem og öllum Austfirðingum, bestu jóla- og nýársóskir og þakkirfyrir liðin ár. Geir Hólm Tvœr leirkrukkur komnar úr sjó. Safnvörður tók að sér að sjá um endurbyggingu Jensenshúss á Eski- firði, á vegum Eskifjarðarbæjar. Jensenshúsi voru gerð góð skil í austfirsku blöðunum á sl. hausti, en um er að ræða elsta íbúðarhús á Randulffssjó- hús einnig mál- að að utan, bæði þak og veggir. Sjóminjasafnið eignaðist sjóhúsið fyrir nokkrum árum og nýtir það nú sem geymslu, en til stendur að setja upp sýningar í hús- inu þegar aðstæður leyfa. I fjörunni við Randulffssjóhús ins, er öll timb- urklædd og hefur þakleki færst svo í auk- ana að ekki verður lengur við unað. Á næsta ári verð- ur gert við þak- ið og húsið allt tjargað að utan. Þá verður Reykvíkingur Helgi Halldórsson, bæjarstjóri Egilsstaðabæjar, lánaði Austra eintak af biaði sem gefið var út í Reykjavík fyrir um 70 árum síðan. Blaðið hét Reykvíkingur, í stærðinni A5 og inniheldur að mestu auglýsingar og brandara. „Er hann Gísli latur?“ - „Eg vil nú ekki beint segja að hann sé latur, því ég vil ekki fara hér með neinn óhróður um hann. En ég er viss um, að ef hann þyrfti að hafa nokkuð fyrir því að melta matinn, þá myndi hann deyja úr hungri.“ „Hvemig stendur á því, að mér finnst þrengra hér en í fyrrasumar?" „Það er af því að þú ert í vetrarfötunum.“ „Heldurðu að það láti nokkur tölu í jólapottinn hjá Hjálpræðishemum?“ „Já, það láta svo margir tölu, að það er ekki hægt að koma tölu á það. Það má því segja að það sé töluvcrt." Ekki lyftuvél. Dreng, sem kom með pabba sínum í Eimskipafélagshúsið, varð starsýnt á lyftivélina og spurði hvað þetta væri. Honum var sagt að það væri lyftivél, því hún lyfti mönnum upp á loft. Um kvöldið segir drengurinn við pabba sinn: „Þetta er vitleysa að það sé lyftivél, sem er í Eimskipafélagshúsinu, því það lyftir mönnum ekki upp, nema í annað hvort skipti. í hitt skiptið fer það niður með mennina." Kaup kaups Lundúnabúi var að sýna frænda sínum frá Ameríku Lundúnaborg. Þeir gengu fram hjá stóra og skrautlegu hóteli og spurði þá Ameríkumaðurinn hvað langan tíma hefði tekið að byggja það. „Þrjá mánuði,“ svaraði Lundúnabúinn. „Skárri er það nú tíminn,“ sagði Ameríkumaðurinn, „í Ameríku er svona hús byggt á þrem dögum.“ Nokkru síðar gengu þeir framhjá Parliamentshöllinni og dáðist Ameríku- maðurinn að því hvað hún væri falleg. „En hvaða höll er þetta annars?" spurði hann. „Eg veit það ekki,“ svaraði Lundúnabúinn, „því það var ekki farið að byggja hana í gærkvöldi þegar ég fór hér framhjá." Verslunarmannafélag Austurlands sendir félagsmönnum sínum og öðrum Austfirðingum bestu óskir um gleðileg jól og farsœld á komandi ári. Þökkum samstarf liðins árs. Svæáisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi sendir Austfiráingfum Héraásbúum kestu jóla- og nýárskveájur ogf Jtakkar samstarf o^ samskipti á árinu sem er aá líáa. r íslenskt ...að sjálfsögðu

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.