Austri


Austri - 12.12.1996, Side 25

Austri - 12.12.1996, Side 25
Jólin 1996 AUSTRl 25 Bókakynning: Spíritisminn á Islandi Krossgáta í>á er það jólakrossgátan í ár, lesandi góSur. Lausn krossgátunnar er fólgin íþví að raða saman stöfunum í númeruðu reitunum og þáfáum við alkunnan málshátt. Vonandi skemmtið þið ykkur vel við þessa krossgátu. Ekki dáin - bara flutt, spíritisminn á íslandi - fyrstu fjörutíu árin, er útgefin af bókaútgáfunni Skerplu. Eins og undirtitill bókarinnar gefur til kynna, er hér fjallað um spíritisma eða sálarrannsóknir á Islandi frá aldamót- um fram til ára seinni heimsstyrjaldarinnar. Spíritismi náði fótfestu undir vemdarvæng m.a. Einars H. Kvar- an rithöfundar og frú Gíslínu Kvaran, Indriða Einars- sonar leikskálds og frú Mörthu Maríu Guðjohnsen, Guðmundar Hannessonar læknis, Þórðar Sveinssonar geðlæknis, Björns Jónssonar ritstjóra og ráðherra og séra Haraldar Níelssonar. Þau stofnuðu Tilraunafélagið og störfuðu með Ind- riða Indriðasyni miðli sem margir telja annað hvort stórkostlegasta miðil okkar tíma eða ósvífinn svika- hrapp. A fundum með honum gerðust hlutir sem bestu vísindamenn þjóðarinnar á þeim tíma gátu ekki fundið jarðbunda skýringu á. Sálarrannsóknarfélag Islands stofnuðu frumkvöðl- arnir í skugga spönsku veikinnar 1918, gáfu út tímarit- ið Morgun, leituðu að miðlum í afskekktum byggðum Islands og kenndu þjóðinni að meta yfirnáttúrlegar lækningar. Hér er sögð saga þessarar hreyfingar í heild á fyrri hluta aldarinnar, en það hefur hvergi verið gert á einum stað áður. Sagt er frá borðdansi, fljúgandi miðlum, reimleikum, straum- og skjálftalækningum, ósjálfráð- um leikfimiæfingum, huldufólksheimum, líkamningum, miðilsfundum, framliðnum mönnum og dásamlegum sönnunum. í bókinni er fjöldi mynda af fólki og stöðum sem koma við sögu. Einnig fágætar myndir sem em teknar á miðilsfundum hjá Láru Agústsdóttur snemma á fjórða áratugnum og hafa aldrei birst opinberlega áður. Höfundar bókarinnar er Bjarni Guðmarsson sagn- fræðingur og Páll Asgeir Ásgeirsson blaðamaður. Sendum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi Þökkum samskiptin. Rafey hf. Rafmagnsverkstœði Lyngási 12, Egilsstöðum, sími 471-2013 Sendu okkur lausnina fyrir 20. janúar 1997. Eins og áður verða bœkur í verðlaun og verða nöfn vinningshafa birt í lok janúar. Heimilisfang: Vikublaðið Austri Jólakrossgáta Tjarnarbraut19 700 Egilsstaðir. Saga Búnaöarfélags Vopnafjaröar Búnaðarfélag Vopnafjarðar gaf út sögu félagsins á síðasta ári í tilefni 100 ára afmæli félagsins. Hérer um að ræða einstakt heimildarrit um sögu og þróun landbúnaðar í 100 ár. Bókina skráðu Gunnar Sigurðsson og Sigurjón Friðriksson. Bóknin kostar 2000 kr. og er til sölu hjá Búnaðarsambandi Austurlands, Bókabúð Kaupfél. Vopnafjarðar, og hjá Sigríði Bragadótturí s. 473-1458. Stjórn Bunaöarfelags Vopnafjaröar

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.