Austri - 12.12.1996, Side 27
Jólin 1996
AUSTRI
27
þó fremur til skepnuhalds, þ.e. sel-
stöðu.
Útsýnið af klettinum er hið feg-
ursta. Hefur ekki verið amalegt að
vakna snemma á morgnana og líta
yfir hina fögru sveit fyrir neðan,
þegar sólin stafaði árnar og nesin
iðjagræn í dalbotninum, fylgjast
með þegar reykurinn á bæjunum
byrjaði að liðast upp í loftið. Ekki
laust við að maður öfundi Inginði af
að hafa fengið að búa þarna.“
Þá datt mér einnig í hug, að tætt-
urnar á Ingiríði væru af sauðahús-
um, eins og víða voru byggð til
fjalla á síðasta fjórðungi 19. aldar,
en satt að segja líkjast þær ekki slík-
um húsum, enda tæplega á það
hættandi að hafa þau svo nálægt
klettabrún, þar sem sauðina hefði
getað hrakið fram af í norðanveðr-
um.
Þegar allt kemur til alls er ófull-
komin selstaða því líklegasta skýr-
ingin. Þarna hefur líklega verið
hrófað upp hreysi til bráðabirgða,
með sem minnstum tilkostnaði og
sömuleiðis aðhaldi fyrir kvíaær, sem
hafa verið mjólkaðar í selinu.
Eins og fyrr var getið, er besta
beitarlandið fyrir sauðfé í Hamborg
einmitt þarna fyrir ofan brúnimar.
Þangað hafa kvíaær verið reknar til
beitar, að heiman og aftur heim
tvisvar á sólarhring. Var augljóst
hagræði að losna við slíkan rekstur
með því að koma upp aðstöðu til að
mjólka æmar þama uppfrá.
Aðalbjörn E. Kjerúlf á Arnheiðar-
stöðum, sem bjó með Eiríki föður
sínum í Hamborg 1921-1945 og er
Ingiríði verið miklu skýrari, veggir
hærri o.s.frv. og þar hafi þá enn leg-
ið nokkrar spýtur, líklega úr þaki
hússins.Hann segist ekki hafa heyrt
annað en að þama hafi verið sel og
hefur það líka eftir Hóseasi gamla,
en aldrei nefndi hann hvað þetta sel
væri gamalt.
Athugasemdir og skýringar
1) Mér er aðeins kunnugt um eina
konu með þessu nafni í Fljótsdal:
Ingiríði Guðmundsdóttur, f. 1877 í
Vestur-Skaft. Hún mun hafa verið
vinnukona á nokkrum bæjum í
Fljótsdal um aldamótin 1900, en
gifst síðan Hákoni Finnssyni, sem
kenndi sig við Borgir í Nesjum.
Kvenmannsnafnið Ingiríður hefur
tíðkast á Islandi frá 11. öld, en mun
aldrei hafa verið almennt á Austur-
landi.
2) Á ámnum 1909-1921 bjó Hall-
dór Stefánsson í Hamborg. Hann
varð síðar alþingismaður Norðmýl-
inga og mikilvirkur fræðimaður, gaf
m.a. út ritsafnið Austurland í 5 bind-
um á árunum 1947-1958 og ritaði
langmest í það sjálfur. Hann byggði
steinhúsið sem þama stendur (1912)
og plantaði í lítinn trjálund, niðri við
þjóðveginn og gleður lundurinn enn
augu gesta og gangandi.
3) Páll þessi var bróðir Björgvins
Guðmundssonar tónskálds. Þeir
bræður fluttu ungir að árum til
Kanada og átti Páll þar heima til
æviloka. Ritaði hann bókina: Á
fjalla- og dalaslóðum (Ak. 1964) og
nokkrar tímaritagreinar. Móðir
þeirra Rjúpnafellsbræðra var Anna
Margrét Þorsteinsdóttir, Jónssonar,
Klettahjallinn Ingiríður. Selið erystá klettinum til hœgri.
nú eigandi Hamborgar, segir að í
brekkunum (Höllunum), skammt
fyrir ofan Ingríði, sé gömul fjárhús-
tótt og stutt fyrir innan hana önnur
smátótt, sem Hóseas Jónsson hafi
kallað „Fjósið“ og sagt að hafi rúm-
að tvær kýr. Þetta er stutt fyrir utan
lítinn læk, sem rennur niður við
innri enda Ingiríðarklettsins og er
því mjög líklegur selstaður. Þar hef-
ur hið foma „Bcssastaðascl" (Ham-
borgarsel) líklega staðið, sbr. fyrr-
greinda tilvitnun í ömefnaskrá, þar
sem sagt er að selið sé „við
Ingiríði“. Þessar tættur hefi ég ekki
skoðað.
Kannske hefur sel Eyjólfs Magn-
ússonar líka verið þama, að hluta til,
en að auki hafi hann byggt kofa til
gistingar, ásamt rétt, á klettinum
Ingiríði. Þar var nóg af nærtæku
grjóti og hægt að spara vegghleðslu
með því að nota stóra steina, enda
kannske ekki ætlast til að þetta yrði
varanleg selstaða. Ummæli Hóseas-
ar benda til að kýr hafi líka verið
hafðar í selinu. Hóseas kom í Ham-
borg um 1880 og hefur því getað
séð sel Eyjólfs, meðan það var
uppistandandi.
Aðalbjörn segir að í sínu ung-
dæmi (um 1930) hafi rústirnar á
Þorsteinssonar á Melum, sem Mela-
ætt er talin frá. Hún var alin upp á
Glúmsstöðum og því vel kunnug í
Fljótsdal. Hefur hún eflaust kunnað
kveðskap þennan og farið með hann
fyrir syni sína.
4) í manntali 1860 er Eyjólfur
Magnússon, 30 ára, kallaður „hús-
maður“ í Hamborg. I bændatali
1872 er hann skráður bóndi í Ham-
borg, 40 ára; 1884 horfinn þaðan.
5) Á merkjum Bessastaða og
Bessastaðagerðis er klettakollur,
sem Fálkaþúfa nefnist, á Heiðar-
brún, en sagt er í ömefnaskrá Bessa-
staða að hann hafi áður heitið Ytri-
Ingiríður. Fyrri liður nafnsins
Ingiríður (Ing-) er talinn vera Freys-
heiti. Því er hugsanlegt að þessi ör-
nefni tengist goðadýrkun á Bessa-
stöðum, en skv. Austfirðingasögum
var Bessi mikill blótmaður og átti
hof eitt mikið, með goðalíkneskjum
og þar á meðal af Frey. Fleiri ör-
nefni vitna um Freysdýrkun austan-
lands. Sú tilgáta hefur líka komið
fram að örnefni, sem byrja á Ing-
eða Ingólfs-, séu til vitnis um „til-
einkun lands“ í upphafi byggðar á
Islandi.
| KYÍkmyndagetraun :
Áhugi á kvikmyndum hefur stigmagnast sl. 100 ár. Fjöldi fólks veltir sér upp úr þessari listgrein af áfergju
og veit ótrúlegustu hluti.
Fyrir áhugamenn birtist hér lauflétt getraun um hreyfimyndir og er það von okkar að einhverjir geti stytt sér
stundir við að leysa þessar léttu gátur.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum, þrjár myndbandsspólur að eigin vali frá versluninni TÓNSPIL í Nes-
kaupstað.
Svör sendist til Austra fyrir 18. janúar.
utanáskriftin er: Austri, Kvikmyndagetraun
Tjarnarbraut 19 700 Egilsstaðir
IKvikmyndin Independence Day sló öll að-
. sóknarmet í sumar, enda mikið skotið og lít-
ið talað. Hver leikstýrði þessari ágætu mynd?
2Leikfangasaga (Toy Story) var ekki síður
• vinsæl, en eins og titillinn gefur til kynna
voru leikföng þar í aðalhlutverkum: Margir
þekktir leikarar Ijáðu þeim raddir sínar. Hvaða
bandaríski leikari talaði fyrir aðra aðalpersón-
una,Woody?
3Í feikifrægri kvikmynd frá 8. áratugnum
• var aðalpersónan kölluð Don Corleone.
Hvaða mynd er þetta og hver lék umrædda per-
sónu?
4Hver lék hina ægifögru Sandy í Kvikmynd-
• inni Grease?
í hvaða kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
• léku Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson
fyllibyttur í eyðifirði?
6Tár úr steini eftir Hilmar Oddsson fjallar
• um mikilsvirt íslenskt tónskáld. Hvaða tón-
skáld er það?
7Bruce Willis, Brad Pitt og Madeleine Stowe
• léku í vísindatrylli sem frumsýndur var á
síðasta ári og var myndin kennd við ákveðna
dýrategund. Hvaða mynd var þetta og hver leik-
stýrði?
8Persónan sem Samuel L. Jackson leikur í
• kvikmyndinni Pulp Fiction vitnar af mikl-
um eldmóði í Biblíuna, skömmu áður en hann
fremur mikið ódæðisverk. Hvaða spámann vitn-
ar hann í?
9Sex menn hafa leikið flagarann og njósnar-
• ann geðþekka, James Bond. Nefnið fimm
þeirra.
Börn náttúrunnar, eftir Friðrik Þór
• Friðriksson, er eina íslenska kvikmynd-
in sem tilnefnd hefur verið til Oskarsverðlauna.
Hún hlaut að vísu ekki þessi eftirsóttu verðlaun,
en tónlistin úr myndinni hlaut hins vegar evr-
ópsku Felixverðlaunin. Hver var höfundur tón-
listarinnar?
J
Kristinn Beck
fæddur 6. maí 1903
dáinn 3. desember 1996
Kveðja frá
tengdasyni
Hinsta ferðin hafin er
hjá heiðursmanni snjöllum.
Glaður þessa för hann fer
fegnastur af öllum.
Marga áðurfór hannferð
flutti „mann og annan“
eignaðist við það vinamergð
því vini í öllumfann hann.
Sendum viðskiptavinum
okkar bestu jóla - og
nýárskveðjur.
Milliferðafékkst hann við
aðfegra hús og hœta.
Hans var auðþekkt hand-
hragðið
á handverkinu mœta.
Er segja tók hann sögurnar
sálar léttist hyrði
því kímnigáfa Kristins var
kunn um allafirði.
Um þrítugs aldur, að ég tel
fór Inga að „gefa tóninn"
í Valhöll hjuggu lengi vel
þau valinkunnu hjónin.
ég votta þeim í þessu hér
þökk og virðing mína.
þau gáfu auk alls annars mér
einkadóttur sína.
Allir þurfa sko
á fastiirna!
iMAFÓfyj,
Egilsstöðum
Með söknuði ég Kristin kveð
en klukkur lífsins tifa.
ég þakka að hafa honum með
nœr hálfa öld mátt lifa.
Blessuð veri minning
Kristins Beck
Sigurður Jónsson.
VÉLAR&
ÞJÉNUSTA hf
ÓSEYR11A - SÍMI 461 4040 - FAX 461 4044
HEFUR KEYPT VARAHLUTAVERSLUN ÞÓRSHAMARS
0G 0PNAÐ HANA EFTIR FLUTNINGA í NÝJUM HÚSAKYNNUM
AÐ OSEYRI 1A (VIÐ HLIÐINA Á NETTÓ)
UNDIR KJÖR0RÐUNUM
NÝIfí TÍMAfí - NÝJAfí ÁHEfíSLUfí
VIÐ MUNUM KAPPKOSTA FYRSTA FL0KKS a*
ÞJÓNUSTU VIÐ VIÐSKIPTAVINI 0KKAR
JAFNT NÝJA SEM ELDRI
Lokið 2. des. 1996. H. Hall.