Fréttablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 24
Hvað einkennir stíl búlg­arskra kvenna?Það er glæsilegur fatn­ aður, mikið af hátískumerkja­ vöru, háir hælar og stígvél, fall­ egar töskur, skart og feldir, og allt er mjög kvenlegt. Hver er þinn eftirlætis hönn­ uður í Búlgaríu? Ég sæki í að sjá alla stórkost­ legu búlgörsku kjólahönnuðina á tískuvikunni hér. Maður dettur algjörlega inn í drauma­ heim þegar maður horfir á þau meistaraverk. Svo ég nefni búlgörsk nöfn má nefna Stoian Radichev, Hristo Chuchev og Sofiu Borisova, en það er ótúlega mikið af klárum hönnuðum hér. Hvað er Búlgaría þekktust fyrir þegar kemur að tísku? Glæsilega kjóla á rauða dregilinn, galakjóla, brúðarkjóla og svakalega klára kjólahönnuði. Einnig glæsilega klæddar konur í mjög háum hælum. Kaupir þú þér búlgarskan tísku­ varning og hvað keyptirðu þér síðast? Já, mér finnst alltaf gaman að kaupa eitthvað búlgarskt til að styrkja þessa duglegu hönnuði. Ég hef verið mjög slöpp í fata­ kaupum 2020, enda ekki mörg tækifæri til að skarta glæsilegu dressi í kófinu. Ég keypti mér þó dress frá illumminee.com á dögunum, sem er skemmtileg búlgörsk hönnun. Eru búlgarskar konur tískumeð­ vitaðar og vel til hafðar yfirhöfuð? Já, mjög, þær eru alveg stór­ glæsilegar. Maður verður þó var við kynslóðaskipti. Konur um og yfir 50 ára lifa ekki né hrærast eins mikið í tískuheiminum og þær yngri; þær hafa minni aura­ ráð og voru aldar upp á árum kommúnismans þegar lífsbar­ áttan var erfiðari. En eins og við vitum er mjög dýrt að klæða sig vel! Nýir Nike­skór kosta hálfan handlegginn og hvað þá 66°Norð­ ur úlpa, sem allir á Íslandi vilja. Eru Búlgarar á eftir eða á undan Íslendingum þegar kemur að tískunni? Þeir eru töluvert á undan Íslandi, en Ísland er nú ekki komið mjög langt á tískukort­ unum, að mínu mati. Þó svo að til séu margir f lottir og hæfileika­ ríkir íslenskir hönnuðir eru bara örfá ár síðan alþjóðleg tískumerki og ­keðjur komu til Íslands og fyrir þann tíma var nú lítið í boði fyrir utan 17 og nokkrar íslenskar tuskubúðir sem stýrðu því sem var í tísku á landinu síðustu tugi ára. Á Íslandi eru enn ófáanlegar vörur frá hátískuhönnuðum sem stjórna tískuheiminum, fyrir utan kannski nokkur stykki hér og þar í örfáum búðum, og þá er ég að tala um heimsklassa hönnuði og tískumerki eins og Gucci, Louis Vuitton, Armani, Chanel, Versace, Donna Karan, Dior, Guess, Vivian Westwood, Dolce & Gabbana, Fendi, Prada, Balmain, Kenzo, Burberry, Givenchy og get talið endalaust upp. Svo er líka mikið af nýjum og nýfrægum merkjum sem eru geggjuð og poppa nú upp um allan heim. Þekktustu keðjurnar í ódýrari kantinum, og sem hafa nokkrar poppað upp á Íslandi undanfarin ár, eru til dæmis Zara, New Yorker, Mango og H&M, en það er bara smábrot af því sem er til í öðrum löndum þótt þetta sé að þróast heilmikið og vonandi bætast miklu f leiri merki við næstu árin. Hvar kaupirðu þín föt og fylgi­ hluti? Undafarin tuttugu ár hef ég að mestu keypt fatnað utan land­ steinanna. Ég á persónulega mjög erfitt með að finna á mig föt á Íslandi; það er allt svo vítt og stórt og mikið til sami stíll í öllum búðum, sem er of þungur fyrir mig. Ég verslaði mikið í Karen Millen áður en þeirri búð var lokað heima á Íslandi en þar fékkst f lottur og kvenlegur klæðnaður. Áttu þér uppáhalds búð í höfuð­ borginni Sófíu? Það eru svo margar búðir og Kringlur hér í Sófíu að það er erfitt að velja sínar uppáhalds. Ég vil heldur ekki að nafn á búð ákvarði minn stíl; mér finnst gaman að versla úti um allt og púsla saman, og svo er æðislega gaman að fara í litlar „bouti­ que“­ og hönnunarbúðir sem eru gjarnan rétt við helstu versl­ unargöturnar. Þar finnur maður oft hina glæsilegustu fjársjóði. Hver er helsti tískuáhrifa­ valdurinn í Búlgaríu? Ég hreinlega veit það ekki, þær eru svo margar og skipta ef laust þúsundum þessar tísku­ stjörnur sem eru mjög vinsælar hér í landi, en ég man bara ekki hvað heita. Ég er lítið að pæla í hverju aðrir klæðast, ég hef alltaf haft minn eigin stíl og klæðist því sem mér finnst fal­ legt og fer mér vel, burt séð frá tískustraumum. Það gæti verið f lík fyrir 3.000 krónur eða 100 þúsund krónur. Hefur þú tileinkað þér eitt­ hvað frá Búlgaríu þegar kemur að útliti og stíl? Ég hef alltaf fittað frekar vel inn hér í Búlgaríu þar sem stíll­ inn minn er bæði glyskenndur og kvenlegur. Því má segja að ég sé frekar undir áhrifum frá Balkanlöndunum og Rússlandi, frekar en Norðurlöndunum. Hvað hefur Búlgaría kennt þér í sambandi við tísku og útlit? Að njóta þess að klæða mig upp á oftar! Það er mikið um það hér að konur klæði sig upp á, fari í fallega kjóla, háa hæla og allan pakkann til að undirstrika kvenleika sinn. Meistaraverk kvenlegs yndisþokka Fyrirsætan, athafnakonan og þyrluflugmaðurinn Ásdís Rán býr í búlgörsku tískuborginni Sófíu. Hún segir kvenlegan þokka þar í hávegum hafðan og að það hafi kennt sér að klæða sig oftar upp á. Ásdís Rán Gunn- arsdóttir segir sinn stíl bæði kvenlega og glyskenndan og því fitti hún vel inn í búlgarska stílinn, sem og þann rússneska og Balkanland- anna. MYNDIR AF ÁSDÍSI/AÐSENDAR Ásdís Rán nýtur þess að versla í litlum boutique og hönnunar- búðum í höfuðborginni Sófíu. Himinháir hælar er eitt af því sem búlgarskar konur klæðast dagsdaglega, og við þá fallegar töskur og skart. Ásdís Rán kaupir flest sín föt ytra enda finni hún fátt heima á Íslandi. Ásdís keypti nýlega búlgarska hönnun frá Illumminee. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.