Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það fylgir því ábyrgð að gera menn út frá heimalandi sínu til að sitja í sendiráðum í löndum heims. Víða um Norðurlönd hafa verið tekin stór skref í átt að mannúð- legra og meira nærandi umhverfi sjúklinga sem glíma við geð- rænar áskoranir. Jón Þórisson jon@frettabladid.is LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM LANDSHLUTUM OG ÓDÝRASTA ELDS- NEYTI LANDSINS Á DALVEGI, REYKJAVÍKUR- VEGI OG Á MÝRARVEGI, AKUREYRI SKILYRÐISLAUST Orkan – Ódýrt fyrir alla Það er mikið fagnaðarefni að fylgjast með kröftugri uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Hönnun og útlit miðar að nútímakröfum í lækna- og heilbrigðisvísindum hvort tveggja varðandi aðbúnað sjúklinga sem og heilbrigðisstarfsfólks. Það skiptir miklu máli að þar fari saman gott aðgengi, aðbúnaður og ekki síður nærandi umhverfi fyrir þá sem þurfa að sækja þarna þjónustu, en Landspítalinn þjónustar alla landsmenn auk þess að vera héraðs- sjúkrahús og háskólasjúkrahús. Það urðu mér því nokkur vonbrigði að sjá að eitt svið spítalans er skilið eftir í uppbyggingunni, þrátt fyrir úr sér genginn húsakost. Geðsvið Landspítala skal áfram staðsett í gömlu og óhentugu húsnæði við Hringbraut og Klepp. Þessi hús eru óhentug á margan hátt. Hús- næðið við Hringbraut gerir ekki ráð fyrir að þeir sem eru þar í vistun á lokuðum deildum komist út undir bert loft. Engin útisvæði eru fyrir þá sem þurfa, veik- inda sinna vegna, að vera í stöðugri gæslu. Húsnæðið sjálft er svo ósköp lítið nærandi, gráir hrjúfir veggir mæta sjúklingum og fjölskyldum þeirra við komuna og aðbúnaður innan húss á köflum þannig að ekki er hægt að opna glugga eða búa til lágmarks þægindi. Kleppur er svo að hluta til 100 ára gömul bygging byggð á jafn gamalli hugmynd um aðstæður geðsjúkra. Nútíma- þekking kallar á að við gerum betur. Í Ábyrgu leiðinni, frá atvinnukreppu til grænnar uppbyggingar, sem inniheldur tillögur okkar í Samfylk- ingunni um uppbyggingarstarf í kjölfar veirufaraldurs eru tillögur að uppbyggingu mannúðlegra umhverfis fyrir geðheilbrigðisþjónustu Landspítala. Víða um Norðurlönd hafa verið tekin stór skref í átt að mannúð- legra og meira nærandi umhverfi sjúklinga sem glíma við geðrænar áskoranir. Þetta er sjúklingahópur sem þarf að geta notið útiveru í öruggu umhverfi, sótt hreyfingu og fundið næringu í því umhverfi sem dvalið er í til lengri eða skemmri tíma. Aðstaðan sem þessum hópi er boðið upp á er ófullnægjandi og við eigum ekki að skilja þau og starfsfólk geðsviðs eftir þegar kemur að nútímalegri uppbyggingu þjóðarsjúkrahússins. Húsnæði geðsviðs barn síns tíma Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar- innar Fjölmiðlar eru stundum nefndir fjórða valdið og er þá vísað til þess að þeir veiti stofnunum samfélagsins mikilvægt aðhald. Hér á landi hefur mikilvægi fjölmiðla meðal annars verið undirstrikað með því að starfsemi þeirra er háð eftirliti opinbers stjórnvalds og um starfsemi þeirra gilda lög. Í fyrstu grein fjölmiðla- laga segir að markmið laganna sé að stuðla að tjáning- arfrelsi, rétti til upplýsinga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun. Margt af því sem færst hefur til bóta í íslensku sam- félagi hefur orðið einmitt vegna þess að fjölmiðlar hafa fjallað um málefnið, spurt gagnrýnna spurninga og bent á þörfina fyrir úrbætur. Upp til hópa rækja fjölmiðlar hérlendis skyldur sínar vel og íslenskt fjölmiðlafólk tekur hlutverk sitt alvar- lega og umgengst það af ábyrgð. Í íslensku samfélagi er almennt borin virðing fyrir hlutverki fjölmiðla og skynbragð borið á mikilvægi þess aðhalds sem þeir veita. Meðal annars hafa stjórnvöld margítrekað mikil- vægi fjölmiðla og í því skyni stutt þá fjárhagslega til að mæta tekjufalli sem varð í fyrstu bylgju faraldursins. Í liðinni viku flutti Fréttablaðið litla frétt af smiti sem upp kom innan veggja sendiráðs Bandaríkjanna hér á landi. Fréttin var byggð á heimildum sem metnar voru traustar, annars hefði hún ekki verið flutt. Þá brá svo við að aðfaranótt föstudags birtust á sam- félagsmiðlum sendiráðsins fáséðar árásir á Fréttablaðið og vegið var að trúverðugleika þess og það vænt um að nýta sér faraldurinn í pólitískum tilgangi – aðferð sem beitt hefur verið linnulítið í forsetatíð Donalds Trump vestra. Ekki varð ráðið af færslunni hvernig það átti að koma heim og saman. En sendiherrann lét ekki þar við sitja heldur greiddi sendiráðið samfélagsmiðlum sérstaklega til að auka útbreiðslu færslunnar. Hún bar ekki með sér að lögð hefði verið sérstök rækt við gerð hennar þótt hún væri á móðurmáli sendimannsins. Þá hefur sendiráðinu oft tekist betur upp við íslenskun á texta í færslum sínum. En sendimaðurinn lét ekki þar við sitja. Eftir hádegi föstudags barst símtal á ritstjórn blaðsins frá fulltrúa sendiráðsins þar sem tilkynnt var að boð til Frétta- blaðsins frá því í byrjun vikunnar, um að sitja hring- borðsfund með flotaforingja bandaríska sjóhersins í Evrópu, var afturkallað. Þannig var Fréttablaðið á grímulausan hátt beitt ein- hvers konar refsingu með því að útiloka það frá fund- inum. Í nefndri færslu staðfesti þó höfundur hennar alla meginþætti fréttarinnar. En það kom fleira fram í færslunni. Því var lýst að gistiríki sendimannsins, Ísland, væri eins konar pestarbæli með einna hæstan smitstuðul ríkja í Evrópu og eini öruggi staðurinn á landinu í því tilliti væri sendiráð Bandaríkjanna hér. Það fylgir því ábyrgð að gera menn út frá heimalandi sínu til að sitja í sendiráðum í löndum heims. Það fylgir því ábyrgð að vera sendimaður erlends ríkis í gistiríki. Háttalag sendimanns Bandaríkjanna í liðinni viku bendir hvorki til að honum né stjórnvöldum í heima- landi hans sé þessi ábyrgð ljós. Vanhæfnin getur varla orðið meira áberandi. Vanhæfnin Há-karl Bandaríkjamenn varpa öndinni léttar því að í ljós hefur komið að í 245 ára gömlum hákarli sem veiddur var árið 2017 hér við land voru engin merki um öldrun í heila né taugakerfi skepnunnar. Eins og kunnugt er eru frambjóðendur Demó- krata og Repúblikana til forseta nokkuð komnir til ára sinna. Virkjað hefur verið vísinda- teymi helstu sérfræðinga í Bandaríkjunum til að yfir- færa aðstæður hákarla á þann frambjóðendanna sem kjörinn verður forseti í nótt. Vesenið er að snar þáttur í þessum árangri hákarla er að þeir lifa við lægra hitastig en menn, eða fjórar gráður. Meðallofthiti í Banda- ríkjunum er hins vegar nokkru hærri. Er áfengi matur? Það urðu f leiri hlessa en Víðir þegar upp kom að áfengi væri skilgreint sem matvæli. Þess vegna mættu fimmtíu vera inni í lítilli áfengisverslun í einu en bara tíu í mörgþúsund fermetra byggingarvöruverslun. Reyndar líta margir svo á að áfengi sé matur. Alkunna er að Dönum er hlýtt til ölsins. Fyrir nokkrum áratugum felldu bjórframleið- endur í Danmörku út nokkur bætiefni í áfengum framleiðslu- vörum sínum. Frá því var horfið þegar í ljós kom að fjöldi Dana fékk skyrbjúg af C-vítamín- skorti. 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.