Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 11
Fyrir ekki svo löngu sté í ræðu-stól Alþingis í umræðum um fjármálaáætlun næstu fimm ára Oddný Harðardóttir, þing- maður Samfylkingar, og spurði Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisf lokksins og fjármála- ráðherra, út í hinn mikla mun sem nú er orðinn á örorkugreiðslum og lægstu launum. Eins og margoft hefur komið fram, verður þessu munur orðinn 86 þúsund krónur um næstu ára- mót, þegar 3,6% hækkun örorku- greiðslna hefur komið til fram- kvæmda, sem og hækkun lægstu launa samkvæmt lífskjarasamn- ingnum. Örorkugreiðslur ná því ekki nema um þremur fjórðu af lágmarkslaunum í þjóðfélaginu. Svar Bjarna mátti skilja á þann hátt að það væri bagalegt að samið hefði verið um svo ríf legar hækk- anir lægstu launa. En spurningin sem æpti á okkur væri náttúrulega hver ætti að borga þetta. Hver ætti að borga hækkanir almannatrygg- inga, svo þær hækkuðu í takt við hækkanir lægstu launa. Svarið er kannski nær ráðherr- anum en hann hafði gert sér grein fyrir. Í því fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að til málefna fatlaðs fólks, örorku- greiðslur þar meðtaldar, verði varið 79,5 milljörðum. Til málefna aldraðra 91 milljarði. Til að hækka greiðslur almanna- trygginga til móts við lægstu laun þyrftu þær að hækka um ríf lega 30%. Þá verða þessir tveir liðir á fjárlögum samtals um 225 millj- arðar króna, en eru um 170 í dag. Og hver á að borga?, spyr fjár- málaráðherra. Þann 17. febrúar árið 2017, skip- aði þáverandi fjármálaráðherra starfshóp, sem skilaði ráðherra skýrslu 20. júní sama ár. Hlutverk starfshópsins var að meta umfang og áhrif skattundan- skota og skattsvika á íslenskan þjóðarbúskap. Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að ekki liggi fyrir tölur um umfang skatt- svika hér á landi, en undanfarna þrjá áratugi hafi þau verið metin þrjú til sjö prósent af landsfram- leiðslu árlega. Starfshópurinn segir í skýrslu sinni, að ef skattsvik eru metin sem fjögur prósent af lands- framleiðslu, megi áætla að þau hafi numið 100 milljörðum árið 2016. Sama prósentutala fyrir árið 2019 gefur okkur 118 milljarða. Þar að auki kemur fram í skýrslu starfshópsins, að ætla megi að íslenska ríkið verði af um sex milljörðum árlega vegna undan- skota í tengslum við af landsfélög. Árið 2019 urðum við því sem þjóð af eitt hundrað tuttugu og fjórum milljörðum vegna skattsvika. Í fjár- lögum fyrir árið 2019 var heildar upphæð til almannatrygginga rétt um 150 milljarðar. Því sem skotið var undan skatti það árið hefði fjármagnað nær 80% af útgjöldum okkar til almannatrygginga. Starfs- hópurinn valdi að skoða neðri mörkin. Munum að í skýrslunni segir að talið sé að undanskot nemi þremur til sjö prósentum. Og hvað gerist ef við reiknum nú sjö pró- sent? Jú, þá greiða skattundanskot öll útgjöld til almannatrygginga samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2019, og rétt um 63 milljarðar eru eftir í eitthvað annað. Til að setja þá tölu í samhengi er í fjárlaga- frumvarpi ársins 2021 áætlaðir til samgöngumála 56 milljarðar. Og ráðherra spyr hver á að borga? Stjórn Hins íslenska náttúru-fræðifélags fagnar löngu tíma-bærum áformum um uppbygg- ingu Náttúruminjasafns Íslands á Seltjarnarnesi. Áformin voru kynnt í greinargerð starfshóps á vegum Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og má finna í fjárlagafrumvarpi næsta árs, með 300 milljóna króna framlagi til undirbúningsvinnu á verkefninu. Náttúruminjasafn Íslands er skilgetið af kvæmi Hins íslenska náttúrufræðifélags, eins elsta starf- andi félags landsins. Í stofnlögum þess frá 1889 segir: „Aðaltilgangur félagsins er sá, að koma upp sem fullkomnustu náttúrugripasafni á Íslandi, sem sé eign landsins og geymt í Reykjavík. Saga Náttúrugripasafnsins var rakin á sýningu Þjóðmenningar- hússins, á aldarafmæli þess í mars 2009, en rétt er að hnykkja á henni á þessum tímamótum. Hið íslenska náttúrufræðifé- lag átti og rak náttúrugripasafn í Reykjavík frá 1889-1947, lengst af með stuðningi ríkisins og sýn- ingaraðstöðu í Safnahúsinu við Hverfisgötu, eða fram til 1960. Árið 1947 af henti félagið ríkinu safn- kost sinn til eignar ásamt myndar- legum byggingarsjóði fyrir nýju safnahúsi. Íslenska ríkið rak Nátt- úrugripasafnið upp frá þessu og sett voru lög um það árið 1951. Var þarna lagður grunnur að Náttúru- fræðistofnun Íslands sem var form- lega stofnuð með endurskoðun laganna árið 1965 og safnið fært undir hana. Sýningin var starfrækt í húsakynnum Náttúrufræðistofn- unar við Hlemm frá 1967 til 2008 er sýningunni var lokað. Lok sýningarinnar á Hlemmi hélst í hendur við f lutning Nátt- úrufræðistofnunar til Garðabæjar og þeirrar ákvörðunar stjórnvalda að setja á stofn Náttúruminjasafn Íslands með sérlögum árið 2007. Þó þrettán ár séu liðin frá stofnun Náttúruminjasafnsins er það fyrst nú, með áformum um uppbyggingu Náttúruhúss á Seltjarnarnesi, að það sér fyrir endann á langvarandi húsnæðisvanda Náttúruminja- safnsins, sem hefur ekki enn eign- ast aðstöðu undir starfsemi sína. Á 100 ára afmæli lýðveldisins, þann 1. desember 2018 urðu ákveð- in tímamót þegar Náttúruminja- safnið opnaði sína fyrstu sýningu, „Vatnið í náttúru Íslands“, í 350 m2 leigurými á 2. hæð í Perlunni. Sýningunni hefur verið tekið afar vel og hún hlotið alþjóðleg hönn- unarverðlaun. Var aðsókn umfram væntingar fyrsta sýningarárið þegar um 200 þúsund gestir heim- sóttu sýninguna. Áhugi á þjónustu Náttúruminjasafnsins er augljós- lega mikill og endurspeglar vel þann fróðleiksþorsta og hug sem Íslendingar og gestir landsins hafa til náttúru Íslands. Lagt hefur verið til að Náttúru- minjasafn Íslands taki við húsnæði sem upphaf lega var reist undir Lækningaminjasafn við Safnatröð 5 á Seltjarnarnesi. Ráðgert er að ljúka við lagfæringar á húsnæðinu á næstu tveimur árum og gera það samtímis tilbúið undir starfsemi og sýningarhald Náttúruminja- safnsins. Staðsetning Náttúruhúss á Seltjarnarnesi er einkar hentug: í faðmi náttúrunnar, í miklu nábýli við sjávarsíðuna og hið margbreyti- lega lífríki sem þar er að finna, auk þess sem útsýni frá safninu er stór- brotið bæði til suðurs og norðurs. Samkvæmt greinargerð mennta- og menningarmálaráðuneytisins er áætlaður kostnaður við að ljúka byggingu húsnæðisins á Seltjarnar- nesi undir starfsemi Náttúruminja- safnsins um 650 milljónir króna auk 100 milljóna króna sem þarf í viðbætur á kjallara hússins. Ef allt gengur eftir verður hægt að hefj- ast handa með því fjármagni sem áætlað er til verksins á næsta ári og vonir eru bundnar við áfram- haldandi fjármögnun til næstu ára svo hægt sé að ljúka verkinu á til- settum tíma. Komið hefur fram að þó húsnæðið sé afar hentugt þá er það ekki nægilega stórt fyrir hina umfangsmiklu starfsemi Nátt- úruminjasafnsins. Smekkleg og hógvær útfærsla á stækkun hús- næðisins, sem yrði að mestu leyti neðanjarðar og því lítt sýnileg, hefur þegar verið teiknuð upp og væri án efa hagkvæmt að ráðast þegar í hana samhliða undirbún- ingi fyrir f lutning safnsins í hið nýja húsnæði. Að þessu sögðu fögnum við þessum mikla áfanga og þökkum ríkisstjórninni en þá einkum Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráð- herra, og ekki síður Seltjarnar- nesbæ og íbúum þar, fyrir að standa með þessum framförum. Verkefnin á sviði Náttúruminjasafnsins eru ærin. Safnið er eitt af höfuðsöfnum íslenska ríkisins og ber samkvæmt lögum að miðla fróðleik og þekk- ingu um náttúruna, nýtingu nátt- úruauðlinda og náttúruvernd til skóla og almennings með sýninga- haldi og öðrum hætti. Umræðan um slakan árangur íslenskra barna í náttúrufræðum er hávær og á tímum loftslagsbreytinga hefur skilningur og þekking almenn- ings á gangverki náttúrunnar aldr- ei verið brýnni. Náttúruminja- safnið telst til grunnstoða íslenska menntaker f isins og skal vera leiðandi í fræðslu um náttúru og umhverfismál. Í því skyni starfa safnakennarar á vegum safnsins sem sinna einkum skólahópum. Brýnt er fyrir safnið að komast sem fyrst í nýtt, viðunandi húsnæði þar sem hægt verður að bjóða upp á fjölbreyttara sýningahald en nú er og veita skólabörnum fjölþættari fræðslu í málefnum náttúrunnar. Hið íslenska náttúrufræðifé- lag hvetur ráðherra mennta- og menningarmála, ríkisstjórnina og Alþingi allt til dáða, enda um brýnt þjóðhagsmál að ræða sem jafnt núlifandi einstaklingar og komandi kynslóðir munu njóta góðs af. Af öllum gögnum máls- ins að að dæma mun þjóðin loks eignast glæsilegt höfuðsafn í nátt- úrufræðum. Það væri í anda þess sem stórhuga náttúrufræðingar stefndu að fyrir rúmum 130 árum síðan. Látum þennan draum verða að veruleika í þetta sinn, við eigum það öll skilið. Til að setja þá tölu í sam- hengi er í fjárlagafrumvarpi ársins 2021 áætlaðir til sam- göngumála 56 milljarðar. Og ráðherra spyr hver á að borga? Hið íslenska náttúru- fræðifélag hvetur ráðherra mennta- og menningarmála, ríkisstjórnina og Alþingi allt til dáða, enda um brýnt þjóðhagsmál að ræða sem jafnt núlifandi einstaklingar og komandi kynslóðir munu njóta góðs af. Af öllum gögnum málsins að að dæma mun þjóðin loks eignast glæsilegt höfuðsafn í nátt- úrufræðum. Glæsilegt Náttúruhús á Nesinu Ester Rut Unnsteinsdóttir formaður HÍN Hver á að borga? Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ Áform um friðlýsingu Umhverfisstofnun, ásamt samstarfshóp sem vinnur að undir búningi friðlýsingar, kynnir hér með áform um stofnun þjóðgarðs á sunnan­ verðum Vestfjörðum, skv. 47. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Svæðið nær meðal annars til Dynjanda, Geirþjófsfjarðar, Vatnsfjarðar og Hrafns eyrar. Meginmarkmið friðlýsingarinnar er að vernda og varðveita ein­ stakt svæði fyrir komandi kynslóðir. Með friðlýsingunni verður til heilstætt svæði sem hefur að geyma ómetanlegar náttúru­ og menningarminjar og sögu. Áform um friðlýsingar eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. nátt­ úruverndarlaga en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki er á fram­ kvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega. Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 2. janúar 2021. Athugasemdum við áformin má skila á vef Umhverfis stofnunar, með tölvupósti á ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Samhliða auglýsingu um áform um friðlýsingu er óskað eftir til­ lögum að nafni fyrir fyrirhugaðan þjóðgarð. Frekari upplýsingar um ýmis mál tengd friðlýsingunni, t.d. náttúru- og menningarminjar, samgöngu- og innviðamál, umsjón, stjórnun, samfélagsleg áhrif o.fl. má finna á vefsíðu hennar, umhverfisstofnun.is/tjodgardurvestfirdir S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.