Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
öflugur liðstyrkurfl r
liðstyrkur
Steffi Gregersen stofnaði Facebook-viðburð sem heitir „Settu jólaljósin upp snemma
á þessu ári!“. Hugmyndin gengur
út á að fá smá auka birtu og gleði
inn í lífið á þessum erfiðu tímum
og það er greinilegt að mörgum
þykir ekki veita af, því þúsundir
vilja taka þátt og átakið hefur
meira að segja teygt sig út fyrir
landsteinana. Viðtökurnar hafa
komið Steffi skemmtilega á óvart,
ekki síst þar sem hugmyndin
fæddist hálfpartinn í gríni.
Steffi er þýsk og kemur uppruna-
lega frá borginni Siegen, en hún
hefur búið á Íslandi í 24 ár, lengur
en hún bjó í Þýskalandi. Steffi er
gift Torben, sem er danskur, og þau
búa ásamt þremur dætrum sínum í
fallegu húsi í Hafnarfirði.
Steffi segir að hugmyndin að
þessum viðburði hafi fæðst hratt.
„Þetta kom upp á svona fimm
sekúndna spjalli í bílnum. Ég
sagðist vilja setja ljósin upp extra
snemma í ár, strax 1. nóvember,
en Torben tók það ekki í mál og
sagðist ekki nenna að standa í því,“
segir hún. „En þetta er svo leiðin-
legur tími útaf COVID og myrkrið
er að koma, þannig að ég ákvað að
setja smá pressu á hann með því
að búa til viðburð á Facebook og
senda hann bara til vina minna,
bæði hér á landi og erlendis, en
hafa hann samt öllum opinn.“
Steffi hafði lýsinguna á viðburð-
inum á íslensku, ensku og þýsku
og innan skamms höfðu yfir fimm
þúsund manns lýst yfir áhuga eða
sagst ætla að taka þátt og nú er sú
tala komin vel yfir sex þúsund.
Jólaskraut strax eftir
hrekkjavökuna
Steffi segist alltaf hafa verið mikið
jólabarn. Það var mikið lagt upp úr
jólunum í æsku hennar og þá var
alltaf mest gaman.
„Eftir að maður eignast börn
verður þetta líka svo spennandi
og skemmtilegur tími. Svo hjálpa
jólin líka á þessu dimma tímabili
á Íslandi,“ segir Steffi. „Ég tók svo
líka eftir því að útvarpsstöðin Jóla-
retró fór í gang 15. október. Mér
finnst það gott þó að það sé pínu
snemmt. Venjulega hlusta ég ekki
á jólatónlist fyrr en 1. nóvember
en ég hef aðeins stolist til að hlusta
fyrst þetta er komið í gang.
Mér finnst jólaljósin mjög
falleg og fólk leyfir þeim oft að
hanga inn í nýja árið, en af hverju
ekki bara að setja þau upp fyrr
líka?,“ spyr Steffi. „Við erum líka
mikil hrekkjavökufjölskylda og
skreytum mikið vegna hennar,
en daginn eftir hrekkjavöku vil
ég helst losna við það og setja upp
jólaljósin. Núna er komin pressa á
hann Torben að framfylgja þessu.“
Hafnarfjarðarbær hefur staðið
fyrir átaki þar sem fólk er hvatt til
að setja jólaljósin upp snemma til
að lýsa upp skammdegið á þessum
erfiða tíma og þar hefur verið
kveikt á jólaljósum á fjölförnum
stöðum, en Steffi segir að það séu
engin tengsl á milli viðburðarins
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Steffi er gift
Torb en og þau
búa ásamt
þremur dætrum
sínum í Hafnar-
firði. Steffi
segir að hún
hafi stofnað
viðburðinn í
hálfgerðu gríni
til að setja
pressu á Torben
og fá hann til að
samþykkja að
setja jólaljósin
upp snemma,
en viðtökurnar
voru miklu betri
en hún bjóst við.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
Facebook-viðburðurinn „Settu jólaljósin upp snemma á þessu ári!“ gengur
út á að fá auka birtu og gleði inn í lífið á þessum erfiðu tímum. MYND/AÐSEND
Fjölskyldan hjálpaðist að við að setja upp jólaljósin á
sunnudaginn í fallegu veðri. MYND/AÐSEND
Steffi segir að það veiti ekkert af öllu sem getur glatt
fólk á þessu erfiða tímabili. MYND/AÐSEND
Framhald af forsíðu ➛
hennar og þessara áforma sveitar-
félagsins, svo hún viti.
„Þetta var tilkynnt viku eftir að
ég setti upp viðburðinn minn. Ég
veit ekki hvort það var tilviljun
eða ég hafi veitt þeim einhvern
innblástur,“ segir Steffi. „Reykja-
víkurborg hefur líka staðið fyrir
svipuðu átaki.“
Veitir ekki af smá gleði
„Við erum bara að hvetja fólk til
að setja jólaljósin upp 1. nóvem-
ber, en ég skrifaði 1.-15. nóvember
á viðburðinn til að gefa fólki smá
svigrúm,“ útskýrir Steffi. „Núna er
COVID að versna alls staðar og það
er ekki margt sem má gera, en það
má samt fara út að labba og þá er
gaman að sjá öll fallegu ljósin. Við
getum gert þetta út um allt land og
glatt fólk sem er á ferðinni.
Það veitir ekkert af því að gleðja
fólk á þessu tímabili sem við
erum að ganga í gegnum. COVID
var nógu slæmt í vor og sumar
en núna er að koma tími sem er
erfiður fyrir margra, burtséð frá
COVID. Þannig að það er ekki
mjög skemmtilegur tími fram
undan hjá f lestum og þá er gott að
gera það sem hægt er til að gleðja
hvert annað,“ segir Steffi. „Það er
líka hægt að taka þetta alla leið
og skreyta bara extra mikið í ár í
staðinn fyrir að eyða í ferðalög og
dýrar jólagjafir.“
Steffi býst við miklum við-
brögðum og nú þegar hafa
fjölmargir birt myndir af jóla-
skrautinu sínu í umræðunni um
viðburðinn hennar og greinilegt
er að það er meira að segja fólk
utan landsteinanna að taka þátt.
„Það eru rúmlega tvö þúsund
sem hafa sagt ætla að taka þátt og
yfir fjögur þúsund búin að lýsa
yfir áhuga. Því meira sem þessu
er dreift, því f leiri taka vonandi
þátt,“ segir hún.
Við komumst í gegnum
þetta tímabil saman
Steffi starfar sem flugmaður hjá
f lugfélaginu Bláfugl en segir að
COVID hafi ekki haft sérlega mikil
áhrif í líf hennar.
„Ekki meira en hjá öðrum. Ég
er bara fegin að hafa vinnu og að
allir séu heilbrigðir í kringum
mig,“ segir Steffi. „Auðvitað hefur
þetta áhrif á mitt líf eins og allra
annarra. Við höfum til dæmis ekki
getað farið eins mikið til útlanda
til að hitta fjölskylduna eins og
venjulega og það er erfitt að geta
hvorki farið að hitta fólk né fá
heimsókn. En ég get ekki kvartað.
Ég vil bara endilega hvetja sem
flesta til að taka þátt og lýsa upp
þessa skrítnu tíma með fallegum
ljósum og kannski einhverju öðru
skemmtilegu skrauti,“ segir hún.
„Við þurfum að finna leiðir til
að komast í gegnum þetta erfiða
tímabil saman og það er fullt sem
er hægt að gera og full ástæða til
að gleðja aðra.“
Nánari upplýsingar um við-
burðinn er að finna á Facebook.
Það er auðvelt að finna hann með
því að slá inn „Settu jólaljósin upp
snemma á þessu ári!“ í leitar-
gluggann.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R