Fréttablaðið - 03.11.2020, Side 18

Fréttablaðið - 03.11.2020, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. öflugur liðstyrkurfl r liðstyrkur Steffi Gregersen stofnaði Facebook-viðburð sem heitir „Settu jólaljósin upp snemma á þessu ári!“. Hugmyndin gengur út á að fá smá auka birtu og gleði inn í lífið á þessum erfiðu tímum og það er greinilegt að mörgum þykir ekki veita af, því þúsundir vilja taka þátt og átakið hefur meira að segja teygt sig út fyrir landsteinana. Viðtökurnar hafa komið Steffi skemmtilega á óvart, ekki síst þar sem hugmyndin fæddist hálfpartinn í gríni. Steffi er þýsk og kemur uppruna- lega frá borginni Siegen, en hún hefur búið á Íslandi í 24 ár, lengur en hún bjó í Þýskalandi. Steffi er gift Torben, sem er danskur, og þau búa ásamt þremur dætrum sínum í fallegu húsi í Hafnarfirði. Steffi segir að hugmyndin að þessum viðburði hafi fæðst hratt. „Þetta kom upp á svona fimm sekúndna spjalli í bílnum. Ég sagðist vilja setja ljósin upp extra snemma í ár, strax 1. nóvember, en Torben tók það ekki í mál og sagðist ekki nenna að standa í því,“ segir hún. „En þetta er svo leiðin- legur tími útaf COVID og myrkrið er að koma, þannig að ég ákvað að setja smá pressu á hann með því að búa til viðburð á Facebook og senda hann bara til vina minna, bæði hér á landi og erlendis, en hafa hann samt öllum opinn.“ Steffi hafði lýsinguna á viðburð- inum á íslensku, ensku og þýsku og innan skamms höfðu yfir fimm þúsund manns lýst yfir áhuga eða sagst ætla að taka þátt og nú er sú tala komin vel yfir sex þúsund. Jólaskraut strax eftir hrekkjavökuna Steffi segist alltaf hafa verið mikið jólabarn. Það var mikið lagt upp úr jólunum í æsku hennar og þá var alltaf mest gaman. „Eftir að maður eignast börn verður þetta líka svo spennandi og skemmtilegur tími. Svo hjálpa jólin líka á þessu dimma tímabili á Íslandi,“ segir Steffi. „Ég tók svo líka eftir því að útvarpsstöðin Jóla- retró fór í gang 15. október. Mér finnst það gott þó að það sé pínu snemmt. Venjulega hlusta ég ekki á jólatónlist fyrr en 1. nóvember en ég hef aðeins stolist til að hlusta fyrst þetta er komið í gang. Mér finnst jólaljósin mjög falleg og fólk leyfir þeim oft að hanga inn í nýja árið, en af hverju ekki bara að setja þau upp fyrr líka?,“ spyr Steffi. „Við erum líka mikil hrekkjavökufjölskylda og skreytum mikið vegna hennar, en daginn eftir hrekkjavöku vil ég helst losna við það og setja upp jólaljósin. Núna er komin pressa á hann Torben að framfylgja þessu.“ Hafnarfjarðarbær hefur staðið fyrir átaki þar sem fólk er hvatt til að setja jólaljósin upp snemma til að lýsa upp skammdegið á þessum erfiða tíma og þar hefur verið kveikt á jólaljósum á fjölförnum stöðum, en Steffi segir að það séu engin tengsl á milli viðburðarins Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Steffi er gift Torb en og þau búa ásamt þremur dætrum sínum í Hafnar- firði. Steffi segir að hún hafi stofnað viðburðinn í hálfgerðu gríni til að setja pressu á Torben og fá hann til að samþykkja að setja jólaljósin upp snemma, en viðtökurnar voru miklu betri en hún bjóst við. FRÉTTABLAÐIÐ/ANT- ON BRINK Facebook-viðburðurinn „Settu jólaljósin upp snemma á þessu ári!“ gengur út á að fá auka birtu og gleði inn í lífið á þessum erfiðu tímum. MYND/AÐSEND Fjölskyldan hjálpaðist að við að setja upp jólaljósin á sunnudaginn í fallegu veðri. MYND/AÐSEND Steffi segir að það veiti ekkert af öllu sem getur glatt fólk á þessu erfiða tímabili. MYND/AÐSEND Framhald af forsíðu ➛ hennar og þessara áforma sveitar- félagsins, svo hún viti. „Þetta var tilkynnt viku eftir að ég setti upp viðburðinn minn. Ég veit ekki hvort það var tilviljun eða ég hafi veitt þeim einhvern innblástur,“ segir Steffi. „Reykja- víkurborg hefur líka staðið fyrir svipuðu átaki.“ Veitir ekki af smá gleði „Við erum bara að hvetja fólk til að setja jólaljósin upp 1. nóvem- ber, en ég skrifaði 1.-15. nóvember á viðburðinn til að gefa fólki smá svigrúm,“ útskýrir Steffi. „Núna er COVID að versna alls staðar og það er ekki margt sem má gera, en það má samt fara út að labba og þá er gaman að sjá öll fallegu ljósin. Við getum gert þetta út um allt land og glatt fólk sem er á ferðinni. Það veitir ekkert af því að gleðja fólk á þessu tímabili sem við erum að ganga í gegnum. COVID var nógu slæmt í vor og sumar en núna er að koma tími sem er erfiður fyrir margra, burtséð frá COVID. Þannig að það er ekki mjög skemmtilegur tími fram undan hjá f lestum og þá er gott að gera það sem hægt er til að gleðja hvert annað,“ segir Steffi. „Það er líka hægt að taka þetta alla leið og skreyta bara extra mikið í ár í staðinn fyrir að eyða í ferðalög og dýrar jólagjafir.“ Steffi býst við miklum við- brögðum og nú þegar hafa fjölmargir birt myndir af jóla- skrautinu sínu í umræðunni um viðburðinn hennar og greinilegt er að það er meira að segja fólk utan landsteinanna að taka þátt. „Það eru rúmlega tvö þúsund sem hafa sagt ætla að taka þátt og yfir fjögur þúsund búin að lýsa yfir áhuga. Því meira sem þessu er dreift, því f leiri taka vonandi þátt,“ segir hún. Við komumst í gegnum þetta tímabil saman Steffi starfar sem flugmaður hjá f lugfélaginu Bláfugl en segir að COVID hafi ekki haft sérlega mikil áhrif í líf hennar. „Ekki meira en hjá öðrum. Ég er bara fegin að hafa vinnu og að allir séu heilbrigðir í kringum mig,“ segir Steffi. „Auðvitað hefur þetta áhrif á mitt líf eins og allra annarra. Við höfum til dæmis ekki getað farið eins mikið til útlanda til að hitta fjölskylduna eins og venjulega og það er erfitt að geta hvorki farið að hitta fólk né fá heimsókn. En ég get ekki kvartað. Ég vil bara endilega hvetja sem flesta til að taka þátt og lýsa upp þessa skrítnu tíma með fallegum ljósum og kannski einhverju öðru skemmtilegu skrauti,“ segir hún. „Við þurfum að finna leiðir til að komast í gegnum þetta erfiða tímabil saman og það er fullt sem er hægt að gera og full ástæða til að gleðja aðra.“ Nánari upplýsingar um við- burðinn er að finna á Facebook. Það er auðvelt að finna hann með því að slá inn „Settu jólaljósin upp snemma á þessu ári!“ í leitar- gluggann. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.