Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 1

Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 w v www.volkswagen.is/id3 · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA #NúGeturÞú Nýr ID.3 er mættur! Eigðu rafmagnaðan vetur 420 km drægni Verð frá 5.190.000 kr. STÓRIÐJA Norðurál heimilaði birt- ingu allra gagna um raforkusamn- inga fyrirtækisins eins og óskað var eftir vegna vinnu við skýrslu þýska ráðgjafarfyrirtækisins Fraunhofer um samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju með tilliti til raforkukostn- aðar. Þetta segir Sólveig Bergmann Þuríðardóttir, sem stýrir sam- skiptasviði Norðuráls. Hörður A r narson, forstjór i Landsvirkjunar, sagði í samtali við Markaðinn á miðvikudag að Norðurál hefði ekki viljað birta upplýsingar um raforkuverð sitt í skýrslu Fraunhofer, en sama dag og skýrslan kom út sendi Norður- ál frá sér fréttatilkynningu um að fyrirtækið vildi af létta trúnaðar- ákvæðum raforkusamninga. „Ég á erfitt með að skilja hvers vegna Norðurál vill núna opna samn- inga en vill ekki birta upplýsingar sem óháður aðili setur fram, sem hafði afrit af samningnum og gerði vandaða samanburðargreiningu á honum,“ sagði Hörður í viðtalinu í Markaðnum. „Forstjóri Landsvirkjunar segir að Norðurál hafi ekki heimilað af léttingu trúnaðar í tengslum við birtingu gagna í Fraunhofer- skýrslunni. Það er rangt. Hið rétta er að í bréfi Norðuráls til iðnaðar- ráðuneytisins, dagsettu 2. nóvem- ber, segir eftirfarandi: „Norðurál samþykkir að leyfa birtingu gagna eins og óskað er eftir í skýrslunni,“ segir Sólveig. Hún segir að fyrirtækið hafi sent beiðni til allra orkufyrirtækja sem Norðurál hefur gert langtímasamn- inga við um að trúnaði verði aflétt af raforkusamningum. „Ánægjulegt er að forstjóri Landsvirkjunar skuli taka vel í að trúnaði verði af létt. Við trúum því að aukið gagnsæi á íslenskum orkumarkaði auðveldi uppbyggilega umræðu um orku- mál,“ segir hún. Sólveig bætir því við að rangt sé að Landsvirkjun hafi boðið ódýrara rafmagn en  önnur orku- fyrirtæki  þegar kom að því að framlengja raforkusamningi félags- ins árið 2016. „Í þeim samningi var engin breyting á magni raforku sem Norðurál kaupir af Landsvirkjun. Norðurál tók þátt í þeim samninga- viðræðum af heilindum og var aldr- ei í viðræðum við aðra orkusala um þau kaup. Það var því engin sam- keppni um verð.“ – thg Heimiluðu birtingu allra gagna Yfirmaður samskiptasviðs Norðuráls segir rangt hjá forstjóra Landsvirkjunar að Norðurál hafi ekki heimilað birtingu gagna um raforkusamninga félagsins eins og óskað er eftir í skýrslu Fraunhofer. Ánægjulegt er að forstjóri Lands- virkjunar skuli taka vel í að trúnaði verði aflétt. Sólveig Bergmann, samskiptasviði Norðuráls VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri segist vilja sjá ríkið sækja sér fjármagn á erlendum mörkuðum til að standa undir halla- rekstri ríkissjóðs. „Ríkissjóður stendur frammi fyrir mikilli lánsfjárþörf á allra næstu árum, nærri 600 milljarðar á þessu ári og því næsta. Þá hlýtur að koma til greina að hún sé fjármögnuð að hluta með skuldabréfaútgáfu erlendis.“ Ásgeir segir að slík útgáfa hefði jákvæð áhrif á gengið. „Það er ekki ólíklegt að við munum sjá einhverja gengisstyrkingu á næsta ári.“ – hae / sjá síðu 12 Ríkið sæki sér fé til útlanda Svíinn Erik Hamren stýrði sínum síðasta landsleik sem landsliðsþjálfari Íslands gegn Englandi á Wembley í gær. Hinn 63 ára gamli Hamren tók við árið 2018, stýrði liðinu níu sinnum til sigurs, gerði fimm jafntef li en tapaði 14 sinnum. Íslenska liðið lék með sorgarbönd í gær til að heiðra minningu Pers Hamren, föður Eriks, sem lést á sunnudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.