Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 2
COVID-skeggið snyrt Borgarbúar fengu loksins að fara í klippingu í gær eftir að slakað var á samkomutakmörkunum. Hárgreiðslustofur á höfuðborgarsvæðinu hafa verið lokaðar frá 7. október en fengu að opna í gær ásamt nuddstofum, snyrtistofum og sólbaðsstofum. Hjálmar Örn Jóhannsson gat ekki leynt vel- líðaninni í stólnum hjá Ævari Österby Christensen á Slippnum í gær enda sex vikur frá síðustu skeggsnyrtingu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON. Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag COVID-19 Tuttugu og sex hafa látist af völdum COVID-19 hér á landi frá því að fyrsta tilfelli sjúkdómsins greindist þann 28. febrúar. Þar af hafa sextán látist í þriðju bylgju faraldursins. Þrettán andlát eru rakin til hóp- sýkingar á Landakoti. Í gær voru 267 einstaklingar í ein- angrun með COVID-19 og 55 voru inniliggjandi á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins. Þar af voru fjórir á gjörgæsludeild. – bdj Andlát vegna Covid í gær 16 hafa látist í þriðju bylgju Covid. LOFTGÆÐI „Þetta var í fyrsta skipti sem við erum með umferðartengda mengun,“ segir Svava S. Steinars- dóttir hjá Heilbr igðisef tirliti Reykjavíkur. Styrkur svifryks var hár í höfuðborginni í gær og verður trúlega aftur í dag. Þrátt fyrir snjó- leysi má heyra ótrúlega marga bíla í umferðinni tæta upp göturnar á glænýjum nagladekkjum. Ekki eru líkur á úrkomu svo lík- legt er að styrkur svifryks fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg kom fram að á hádegi hefði styrkur svifryks við Grensásveg verið 148 míkrógrömm á rúmmetra sem þýðir mjög slæm loftgæði. Fólk sem er viðkvæmt í öndunarfær- unum gat því ekki notið góða veð- ursins heldur þurfti að halda sig innandyra. „Svo er mikilvægt að leggja bílnum og nota almennings- samgöngur eða annan ferðamáta,“ segir Svava. Gísli Marteinn Baldursson, sjón- varpsmaður og ötull talsmaður annarra samgangna en einkabíls- ins, hafði einmitt tekið eftir slæm- um loftgæðum þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Ég labbaði að Hlemmi og aftur til baka heim og ég fann fyrir sárindum í öndunarvegi þó ég sé ekki með astma eða neitt slíkt. Það kemur smá sviði. Og ég hugsaði einmitt: Hvað get ég gert? Á ég að skrifa status á Facebook eða get ég gert eitthvað meir því það er enginn ástæða til að vera á nagla- dekkjum?“ Gísli bendir á að til eru margar rannsóknir, kanadískar, norskar en einnig íslenskar, sem segi stórar sögur. „Sú kanadíska sagði að ef viðkomandi býr nálægt svifryks- götu þá ertu í meiri hættu á að fá Alzheimer. Íslenska rannsóknin sýndi að svona daga eru úttektir á sprengitöflum miklu hærri.“ Stutt er síðan Yvonne Höller, dósent við Háskólann á Akureyri, skrifaði grein á vefinn vikudagur. is sem bar yfirskriftina Er Akureyri að búa til kynslóð fólks sem fær lungnakrabbamein? Þar benti hún á rannsókn sem sýndi að svifryk- sagnir hefðu fundist í ófæddum börnum þungaðra kvenna. Hún lagði til að nagladekk væru bönnuð á Akureyri. Gísli tekur undir með Yvonne. „Mér finnst ekkert að því að banna nagladekk. Ef Reykjavík bannar slík dekk þá er ekkert mál að inn- leiða einhvers konar kerfi enda fáar borgir sem leyfa nagladekk. Þann- ig að fólki af landsbyggðinni væri kleift að aka inn í borgina án þess að fá sekt. Tregðan yrði að banna nagladekk yfir allt Ísland. Tíðarfarið hefur breyst og dekkin eru orðin betri og mér finnst engin ástæða til að vera á nagladekkjum. Reykjavíkurborg gæti til dæmis byrjað að banna nagladekk í mið- borginni. Það gæti verið gott fyrsta skref, þó gjaldtaka á slík dekk sé augljóst fyrsta skref. Svona getur þetta ekki gengið.“ benediktboas@ frettabladid.is Svifryksdrulla sveif yfir höfuðborginni Þrátt fyrir að snjó sé hvergi að finna á höfuðborgarsvæðinu eru fjölmargir íbúar með bíla sína á nagladekkjum. Styrkur svifryks var gríðarlega hár í gær. Gísli Marteinn fann fyrir menguninni og leggur til að banna nagladekk. WHO telur svifryk vera fyrstu gráðu krabbameinsvaldandi efni. Sífellt fleiri vilja ekki sjá nagladekk á götum borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Ef Reykjavík bannar slík dekk þá er ekkert mál að innleiða einhvers konar kerfi enda fáar borgir sem leyfa nagla- dekk. Gísli Marteinn Baldursson LANGANES Gengið hefur verið frá samningi við sóknarnefnd Þórs- hafnarkirkju um rekstur Langa- nesbyggðar og Svalbarðshrepps á líkgeymslu í Þórshafnarkirkju. Undirbúningur að lagfæringum á húsnæðinu er hafinn og ekki útlit fyrir að sveitarfélögin þurfi að kosta miklu til við að laga búnað og hús- næði, og ætti það að vera komið í viðunandi horf í lok næstu viku. Sveitarstjórn Langanesbyggðar ræddi um líkgeymsluna en eins og Fréttablaðið greindi frá í september tók sveitarfélagið við geymslunni eftir að sóknarnefndin sagði sig frá verkefninu, sem nefndarmenn höfðu sinnt sem sjálf boðaliðar. Einnig hefur verið rætt við Heil- brigðisstofnun Norðurlands um mögulega aðkomu að framtíðar- lausn á rekstri líkgeymslunnar, því að núverandi aðstaða sé ekki boðleg til framtíðar. Sveitarstjórnin bendir á að vandamálið sé að þessi málaflokkur er ekki á ábyrgð neins aðila lögum samkvæmt. Á þéttbýlissvæðum eru einkaað- ilar sem sinna þessu, sem og sjúkra- stofnanir eða heilsugæslustöðvar. Ekki hefur fundist viðunandi lausn fyrir fámennari byggðarlög. – bb Gerðu upp líkhúsið á Langanesi Fámenn sveitarfélög reka sjálf lík- geymslur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sóknarnefndin sagði sig frá verkefninu í september en þar höfðu nefndarmenn sinnt störfum sem sjálfboða- liðar. Þá rakti sveitarstjór- inn á fundi að mál eins og þetta eru munaðarlaus í kerfinu. Það eru engin ákvæði í neinum lögum neins staðar um það eða sagt hver eigi að reka líkhús. 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.