Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 8
Ég óttast að of fáir Frakkar láti bólu- setja sig. Jean Castex forsætisráðherra ELITE hvíldarstólar 3 tegundir 3 möguleikar Anelin leður allan hringinn 3 litir Teg. ALEX Teg. Charles Teg. CHARLES Teg. WILLJAM Húsgagnaverslunin Nýform ehf. • Strandgata 24 • Sími 565 4100 • nyform@nyform.is • www.nyform.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e s l u n Komið og skoðið úrvalið Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Teg. WILLJAM COVID-19 „Ég óttast að of fáir Frakk- ar láti bólusetja sig,“ sagði Jean Castex, forsætisráðherra Frakk- lands, um helgina. Mikil umræða hefur spunnist í landinu um hvort bólusetning gegn COVID-19 eigi að vera valkvæð eða skylda eftir að jákvæðar fréttir fóru að berast frá lyfjarisum á borð við Pfizer og Moderna. Sumir franskir stjórn- málamenn kalla eftir því að bólu- setning verði skylda, annars náist ekki hjarðónæmi í landinu. Ótti Castex er ekki ástæðulaus. Í Frakklandi er óvenjuhátt hlutfall fólks sem vantreystir bóluefnum yfir höfuð. Í könnun frá árinu 2019 töldu 33 prósent Frakka að bólu- efni væru ekki örugg. Bóluefni eru algengt skotmark samsæriskenn- ingasmiða og telja sumir ranglega að efnin valdi einhverfu. Þessi afstaða Frakka virðist gilda um bóluefni við COVID-19 líka. Í könnun IPSOS frá því í septem- ber kom fram að aðeins 59 prósent Frakka myndu láta bólusetja sig. Af 15 löndum sem könnunin náði til var Frakkland á botninum. Meðal- talið var 74 prósent. Yannick Jadot, leiðtogi Græn- ingja, er einn þeirra sem vilja bólu- setningarskyldu. „Við höfum ekki efni á að framlengja endurtekið samkomubann, tímabil menning- arlegrar, félagslegrar og efnahags- legrar veiklunar landsins okkar,“ sagði hann við dagblaðið Le Figaro. Emmanuel Macron forseti hefur hins vegar farið varlegar í sakirnar og það hefur heilbrigðisráðherrann Olivier Veran einnig gert. „Ef við höfum úr mörgum bóluefnum að velja munum við velja það örugg- asta og virkasta,“ sagði Veran. „Her- ferðin hefst ekki fyrr en við höfum tryggingu fyrir því að hægt sé að bólusetja fólk á öruggan hátt.“ Marine Le Pen, leiðtogi popúlista- f lokksins Frönsku þjóðfylkingar- innar, leggst hins vegar algerlega gegn slíkri skyldu og telur hana ekki í anda frelsishugsjónar Frakka. Frakkland er vitaskuld ekki eina landið þar sem rætt er um bólu- setningarskyldu. Svissneski heil- brigðisráðherrann Alain Berset hefur þvertekið fyrir að fólk verði neytt til bólusetningar. Þó er rætt um að hún verði skylduð í til dæmis skólum, á sjúkrahúsum og hjúkr- unarheimilum. Fólk fengi þá hvorki að starfa né mæta á þessa staði án þess að vera bólusett. Svissnesk lög heimila einnig að sekta fólk sem neitar bólusetningu. Matt Hancock, heilbrigðisráð- herra Bretlands, hefur neitað að úti- loka bólusetningarskyldu en vonast til að hún verði óþörf. Í Þýskalandi er talið ólíklegt að skylda verði sett á, jafnvel þótt Þjóðverjar hafi reynslu af því. Ekki er langt síðan skyldu til að bólusetja við mislingum var komið á í landinu kristinnhaukur@frettabladid.is Ræða skyldu til bólusetningar Í Frakklandi er hátt hlutfall fólks sem treystir bóluefnum almennt illa. Því ræða ýmsir stjórnmálamenn að bólusetningarskylda verði sett á til að ná hjarðónæmi. Víða um heim er bólusetningarskylda rædd. BRETLAND Óheimilt verður að selja nýjar bifreiðar sem nýta bensín eða dísilolíu sem orkugjafa í Bretlandi frá árinu 2030. Boris Johnson, for- sætisráðherra Bretlands, boðaði þessa stefnubreytingu. Áfram verður heimilt að selja bíla með blönduðum orkugjöfum af ákveð- inni tegund þrátt fyrir þessar reglur. Þetta er liður í tíu liða aðgerða- áætlun bresku ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum þar sem markmiðið er hvort tveggja í senn að bregðast við þeirri umhverfisvá sem steðjar að og skapa störf í grænum geirum. Farið verður í 1,3 milljarða punda fjárfestingu í uppsetningu hleðslu- stöðva fyrir raf knúin ökutæki. Á sama tíma verður 582 milljóna punda fjárframlagi varið í styrki til þess að aðstoða einstaklinga við að skipta út bensín- og dísilbílum fyrir rafmagnsbíla. Sömuleiðis verða 500 milljónir punda settar í framleiðslu á rafhlöðum í Miðlöndum og Norð- austur-Englandi. „Þessi tíu liða aðgerðaáætlun miðar að því að skapa, styðja og vernda hundruð þúsunda grænna starfa samhliða því markmiði að vera komin í algjöra hreina losun árið 2050,“ segir Johnson um áætlun ríkisstjórnar sinnar. – hó Setja sölubann á mengandi bíla Boris Johnson, forsætisráðherra. Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands hefur áhyggjur af viðhorfum Frakka til bóluefnaefna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.