Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 17

Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 17
Í Fjallræðunni segir: „En þegar þér talið sé já yðar já og nei sé nei.“ Í umræðum á Alþingi 8. desem­ ber 1969 um inngöngu Íslands í EFTA sagði Ólafur Jóhannesson formaður Framsóknarflokksins: „Ég hef aldrei getað aðhyllst þá kenningu, að ræða manns ætti að vera já, já eða nei, nei.“ Síðustu hálfa öld hafa fá orð í þingræðum orðið jafn fleyg og þessi. Klofningur, EFTA og sóttvarnir Framsókn var klofin um EFTA­ aðildina. Hún var í stjórnarand­ stöðu. Hjáseta var því einföld lausn til að halda flokknum saman. Hefði Framsókn aftur á móti átt aðild að ríkisstjórn hefðu þingmenn hennar ekki komist hjá að taka afstöðu í atkvæðagreiðslu eða með því að láta af stuðningi við hana. Þessi gamla já, já og nei, nei þing­ ræða kemur upp í hugann nú þegar þingmenn tala gegn sóttvarnaráð­ stöfunum ríkisstjórnarinnar. En öfugt við stöðu Framsóknar, þegar deilt var um EFTA, eru það einkum þingmenn, sem bera stjórnskipu­ lega og pólitíska ábyrgð á setu og athöfnum ríkisstjórnarinnar, sem andæfa henni í orði en styðja í verki í þessu máli. Spurningar og ábyrgð Þau vísindi, sem pólitískar ákvarð­ anir ríkisstjórnarinnar í sótt­ vörnum byggjast á, eru ekki annað­ hvort svört eða hvít. Álitaefnin eru fjölmörg. Þau eru hins vegar ekki til umfjöllunar í þessari grein, heldur pólitíska ábyrgðin á niðurstöðunni. Þingmenn stjórnarflokka hafa nákvæmlega sömu skyldur og þing­ menn stjórnarandstöðu. Sé eitt­ hvert mál óskýrt ber þeim að spyrja spurninga. Hafi þeir efasemdir ber þeim að greina frá þeim. Kjósendur eiga svo rétt á að vita hvaða rök búa að baki þegar þing­ menn taka ákvarðanir. Það sama á við þegar þeir veita ráðherrum vald til að framkvæma. Því fylgir ábyrgð, sem stjórnarþingmenn bera, en stjórnarandstæðingar ekki. Meðvirkni lýkur Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifaði grein á Vísisvefinn 9. nóvember síðast­ liðinn. Þar má lesa þessi þrjú kjarna atriði í skoðunum hans á sóttvarna­ ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar: 1. „Ríkisvaldið hefur stigið stærri skref til alræðis undanfarna mánuði en nokkru sinni fyrr í okkar sögu.“ 2. „Þessi veira er ekki slíkt neyðarástand sem réttlæti að setja blóðtappa í þjóðarlíkamann með svona almennum og íþyngjandi takmörkunum.“ 3. „Nú er svo komið að meðvirkni minni er lokið.“ Meðvirknin heldur áfram Taka verður undir með þingmann­ inum, þegar hann í lok greinar sinnar segir, að þetta sjónarmið þurfi ekki að kalla á „útskúfun eða aðra opinbera smánun“. Hann hefur vissulega fært rök fyrir máli sínu. Sumir eru þeim sammála, aðrir ekki. En þingmaðurinn skuldar svör við hinu: Hvers vegna tekur hann stjórnskipulega og pólitíska ábyrgð á setu ráðherra, sem að hans mati hefur stigið stærri skref í átt til alræðis en áður í sögunni án þess að slíkt neyðarástand sé fyrir hendi, Já yðar sé já og nei sé nei sem réttlæti það? Og hvers vegna heldur hann því áfram þrátt fyrir að meðvirkni hans sé í orði kveðnu lokið? Fyrir þessu geta verið rök. Kjósendur eiga bara nokkurn rétt á að vita hver þau eru. Já, já og nei, nei pólitík er snúnari í stjórn en stjórnarandstöðu. Minnihlutastjórn? Umræða síðustu vikna bendir til þess að margir þingmenn Sjálf­ stæðisflokksins hafi líkar skoðanir á sóttvarnaaðgerðum ríkisstjórnar­ innar utan Alþingis. Enginn veit þó með fullri vissu hvernig þeir myndu greiða atkvæði á þingfundi. Styðja þeir í reynd ráðstafanir, sem þeir segjast vera á móti? Flest bendir til að svo sé. Þannig helst flokkurinn saman. Ef ummæli þingmanna Sjálf­ stæðisflokksins eru aftur á móti tekin bókstaflega er ríkisstjórnin í minnihluta. Þá er líf hennar háð því að stjórnarandstaðan vilji ekki nota þetta mál til að bregða fæti fyrir hana. Einfaldasta leiðin til að eyða óvissu um þetta er að bera þessar ákvarðanir beint og formlega undir þingið. Þorsteinn Pálsson Ef ummæli þingmanna Sjálf- stæðisflokksins eru aftur á móti tekin bókstaflega er ríkisstjórnin í minnihluta. Í Netapóteki Lyavers á lyaver.is getur þú fundið þína lyfseðla, valið samheitalyf og séð lyaverðið þitt. Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum. Lágt vöruverð og heimsending um land allt. Gerðu verðsamanburð! Netapótek Lyavers –Apótekið heim til þín lyaver.is Suðurlandsbraut 22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.