Fréttablaðið - 19.11.2020, Síða 17
Í Fjallræðunni segir: „En þegar þér talið sé já yðar já og nei sé nei.“
Í umræðum á Alþingi 8. desem
ber 1969 um inngöngu Íslands í
EFTA sagði Ólafur Jóhannesson
formaður Framsóknarflokksins:
„Ég hef aldrei getað aðhyllst þá
kenningu, að ræða manns ætti að
vera já, já eða nei, nei.“
Síðustu hálfa öld hafa fá orð í
þingræðum orðið jafn fleyg og
þessi.
Klofningur, EFTA og sóttvarnir
Framsókn var klofin um EFTA
aðildina. Hún var í stjórnarand
stöðu. Hjáseta var því einföld lausn
til að halda flokknum saman. Hefði
Framsókn aftur á móti átt aðild að
ríkisstjórn hefðu þingmenn hennar
ekki komist hjá að taka afstöðu í
atkvæðagreiðslu eða með því að
láta af stuðningi við hana.
Þessi gamla já, já og nei, nei þing
ræða kemur upp í hugann nú þegar
þingmenn tala gegn sóttvarnaráð
stöfunum ríkisstjórnarinnar. En
öfugt við stöðu Framsóknar, þegar
deilt var um EFTA, eru það einkum
þingmenn, sem bera stjórnskipu
lega og pólitíska ábyrgð á setu og
athöfnum ríkisstjórnarinnar, sem
andæfa henni í orði en styðja í verki
í þessu máli.
Spurningar og ábyrgð
Þau vísindi, sem pólitískar ákvarð
anir ríkisstjórnarinnar í sótt
vörnum byggjast á, eru ekki annað
hvort svört eða hvít. Álitaefnin eru
fjölmörg. Þau eru hins vegar ekki til
umfjöllunar í þessari grein, heldur
pólitíska ábyrgðin á niðurstöðunni.
Þingmenn stjórnarflokka hafa
nákvæmlega sömu skyldur og þing
menn stjórnarandstöðu. Sé eitt
hvert mál óskýrt ber þeim að spyrja
spurninga. Hafi þeir efasemdir ber
þeim að greina frá þeim.
Kjósendur eiga svo rétt á að vita
hvaða rök búa að baki þegar þing
menn taka ákvarðanir. Það sama á
við þegar þeir veita ráðherrum vald
til að framkvæma. Því fylgir ábyrgð,
sem stjórnarþingmenn bera, en
stjórnarandstæðingar ekki.
Meðvirkni lýkur
Brynjar Níelsson þingmaður
Sjálfstæðisflokksins skrifaði grein
á Vísisvefinn 9. nóvember síðast
liðinn. Þar má lesa þessi þrjú kjarna
atriði í skoðunum hans á sóttvarna
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar:
1. „Ríkisvaldið hefur stigið
stærri skref til alræðis undanfarna
mánuði en nokkru sinni fyrr í
okkar sögu.“
2. „Þessi veira er ekki slíkt
neyðarástand sem réttlæti að setja
blóðtappa í þjóðarlíkamann með
svona almennum og íþyngjandi
takmörkunum.“
3. „Nú er svo komið að meðvirkni
minni er lokið.“
Meðvirknin heldur áfram
Taka verður undir með þingmann
inum, þegar hann í lok greinar
sinnar segir, að þetta sjónarmið
þurfi ekki að kalla á „útskúfun
eða aðra opinbera smánun“. Hann
hefur vissulega fært rök fyrir máli
sínu. Sumir eru þeim sammála,
aðrir ekki.
En þingmaðurinn skuldar svör
við hinu: Hvers vegna tekur hann
stjórnskipulega og pólitíska ábyrgð
á setu ráðherra, sem að hans mati
hefur stigið stærri skref í átt til
alræðis en áður í sögunni án þess að
slíkt neyðarástand sé fyrir hendi,
Já yðar sé já og nei sé nei
sem réttlæti það? Og hvers vegna
heldur hann því áfram þrátt fyrir
að meðvirkni hans sé í orði kveðnu
lokið?
Fyrir þessu geta verið rök.
Kjósendur eiga bara nokkurn rétt
á að vita hver þau eru. Já, já og nei,
nei pólitík er snúnari í stjórn en
stjórnarandstöðu.
Minnihlutastjórn?
Umræða síðustu vikna bendir til
þess að margir þingmenn Sjálf
stæðisflokksins hafi líkar skoðanir
á sóttvarnaaðgerðum ríkisstjórnar
innar utan Alþingis.
Enginn veit þó með fullri vissu
hvernig þeir myndu greiða atkvæði
á þingfundi. Styðja þeir í reynd
ráðstafanir, sem þeir segjast vera
á móti? Flest bendir til að svo sé.
Þannig helst flokkurinn saman.
Ef ummæli þingmanna Sjálf
stæðisflokksins eru aftur á móti
tekin bókstaflega er ríkisstjórnin
í minnihluta. Þá er líf hennar háð
því að stjórnarandstaðan vilji ekki
nota þetta mál til að bregða fæti
fyrir hana.
Einfaldasta leiðin til að eyða
óvissu um þetta er að bera þessar
ákvarðanir beint og formlega undir
þingið.
Þorsteinn
Pálsson
Ef ummæli þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins eru aftur á
móti tekin bókstaflega er
ríkisstjórnin í minnihluta.
Í Netapóteki Lyavers á lyaver.is
getur þú fundið þína lyfseðla, valið
samheitalyf og séð lyaverðið þitt.
Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum.
Lágt vöruverð og heimsending um land allt.
Gerðu verðsamanburð!
Netapótek Lyavers
–Apótekið heim til þín
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0