Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 20
Þorskastríðið sem vannst end-anlega 1976 tryggði Íslandi 200 mílna fiskveiðilögsögu. Þjóðin stóð saman sem einn maður og ávinningurinn var hennar. Nokkrum árum síðar stóðum við frammi fyrir öðrum vanda, ofveiði. Of mörg skip, of fáir fiskar. Fiski- miðin voru ekki lengur takmarka- laus hít heldur takmörkuð auðlind. Við þessu þurfti að bregðast. 1984 voru veiðar takmarkaðar og aðganginn að miðunum fengu virk fiskiskip samkvæmt veiði- reynslu sl. þriggja ára. Kvótakerfið varð til og tilgangur þess var að vernda fiskistofna við Ísland. Enn voru samt of margir um hituna og krafan um kvótaframsal kom fram. Frjálsu framsali var ætlað að hagræða í sjávarútvegi með því að safna veiðiheimildum á færri hendur og árið 1990 samþykkti Alþingi lög þessa efnis. Fram- sóknarf lokkur, Alþýðuf lokkur og Alþýðubandalag settu þessi lög í andstöðu við Sjálfstæðisf lokk. Í þessum lögum segir m.a: Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðar- innar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í land- inu. Úthlutun veiðiheimilda sam- kvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiði- heimildum. Heimilt er að framselja af lahlut- deild skips að hluta eða öllu leyti og sameina hana af lahlutdeild annars skips. Þetta hafði þáverandi sjávarút- vegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, um lögin að segja: Útvegsmenn sem fá framselda til sín af lahlutdeild af öðrum fiski- skipum vita að þeir eru ekki að fjárfesta í varanlegum réttindum. Það verð sem þeir eru tilbúnir að greiða fyrir slíkar heimildir hlýtur því að taka mið af þeim raunveru- leika að Alþingi getur hvenær sem er breytt lögunum um stjórn fisk- veiða, komist Alþingi að þeirri niðurstöðu að annað fyrirkomulag tryggi betur lífskjör í landinu. Þessi skilaboð sjávarútvegsráð- herrans náðu greinilega ekki langt því verðlagning af laheimilda fór f ljótlega upp úr öllu valdi. Augljóst var að menn töldu sig vera að kaupa varanlegan veiðirétt en ekki til eins árs í senn. Síðar viðurkenndu Vinstri græn mistök við þessa lagasetningu og settu neðangreint í stefnuskrá sína: Þrátt fyrir ákvæði laga um að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar hafa af laheimildir verið markaðs- væddar, með þær farið sem ígildi einkaeignarréttar og þær safnast á æ færri hendur. Framhjá því verður heldur ekki litið að mark- mið núverandi laga um stjórn fisk- veiða hafa ekki náðst og þróunin sumpart orðið í þveröfuga átt. En sagan er ekki búin Í lögum um samningsveð frá 1997 stendur: Eigi er heimilt að veðsetja rétt- indi til nýtingar í atvinnurekstri, sem skráð eru opinberri skráningu á tiltekið fjárverðmæti og stjórn- völd úthluta lögum samkvæmt, t.d. af lahlutdeild fiskiskips. Þarna er af lahlutdeild fiskiskipa sérstaklega tilgreind og því nokkuð augljóst að veiðiréttur hefur verið veðsettur í trássi við lög. Lögin eru skýr. Af þeim leiðir að breyting á árlegri úthlutun af la- heimilda er hverri ríkisstjórn full- komlega heimil og skapar enga skaðabótaskyldu. Uppskrúfuð verð- lagning aflaheimilda gegnum árin er engum að kenna nema útvegs- mönnum sjálfum og samkrulli þeirra við fjármálastofnanir. Þetta samkrull hefur búið til forréttinda- hóp, svo sterkan að veiðiréttur á Íslandsmiðum er orðinn að erfða- góssi. Þessa sjálftöku þarf að stöðva og þó fyrr hefði verið. Nýju stjórnar- skránni er ætlað að leysa málið. Lög um stjórn fiskveiða Nú liggur fyrir sú sorglega staðreynd að aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda í lofts- lagsmálum mun kosta samfélagið heila 16 milljarða, sem gerir um 45.000 krónur á hvern Íslending, sé miðað við markaðsverð innan ETS kerfisins. Það fé gæti sannarlega nýst okkur betur til uppbyggilegra verkefna í íslensku samfélagi. Þetta þurfti ekki að enda svona því marg- oft hefur verið bent á hvað þyrfti að gera. Ég leyfi mér að minna á vel rökstuddar tillögur Landverndar frá árinu 2005. Stjórnvöld völdu að hlusta ekki á þær raddir, eða treystu sér ekki til að berjast við þá sem sjá hag í óbreyttu ástandi. „Staðan er ekki góð,“ segir umhverfisráðherra í Fréttablaðinu 10. nóvember sl., en bætir við að hún sé ekki á ábyrgð ríkisstjórnar Katr- ínar Jakobsdóttur. „Við erum að gera betur,“ fullyrðir hann. Fáum við fleiri reikninga? Ný aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinn- ar í loftslagsmálum er vissulega betri en þær fyrri. En það er samt ekki nóg. Ef ekki verður bót á, er hætt við að sett markmið náist ekki og staðan árið 2030 verði einnig afleit. Athugun Landverndar á loftslags- aðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem kynntar voru fyrir fáeinum vikum, bendir til þess að þær skorti bæði nauðsynlegt afl og hvata til úrbóta, auk þess sem þær ná ekki til allra geira samfélagsins. Þegar við bæt- ist veik stjórnsýsla í loftslagsmálum og of bjartsýnar spár um mikinn samdrátt á grundvelli óbreytts ástands, má telja ólíklegt að mark- mið Íslands um milljón tonna sam- drátt CO2 ígilda náist fyrir 2030. Þess vegna eru töluverðar líkur á að við fáum næsta Kyotoreikning eftir tíu ár. Um þessar mundir eru þjóðir Evrópu að reyna að koma sér saman um enn framsæknari markmið um samdrátt en Kyoto-samningurinn gerir ráð fyrir, til að standa undir væntingum sem bundnar eru við Parísarsamkomulagið. Aðgerða- áætlun ríkisstjórnarinnar gerir ekki ráð fyrir þessum framsæknari markmiðum. Látum þá sem menga greiða reikninginn Nú er lag að breyta rétt. Skilvirkast væri að hækka og breikka gjaldið fyrir losun gróðurhúsalofttegunda. Reynslan sýnir að sú aðferð er beitt- asta verkfærið til að draga úr losun. Það er líka leiðin til þess að Ísland nái settum markmiðum á næstu tíu árum. Og sem bónus ættu tekjur af því gjaldi að nægja vel til að greiða Kyotoskuldina. Þetta er mengunar- bótareglan í framkvæmd. Er það ekki sanngjarnt að þeir sem menga greiði Kyotoreikninginn? Eindagi fyrir Kyotoreikninginn Tryggvi Felixsson formaður Land­ verndar Athugun Landverndar á loftslagsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar, sem kynntar voru fyrir fáeinum vikum, bendir til þess að þær skorti bæði nauðsynlegt afl og hvata til úrbóta, auk þess sem þær ná ekki til allra geira samfélagsins. Lýður Árnason læknir og kvik­ myndagerðar­ maður Ólafur Ólafsson fyrrv. land­ læknir Þorvaldur Gylfason hagfræði­ prófessor Lögin eru skýr. Af þeim leiðir að breyting á árlegri úthlutun aflaheimilda er hverri ríkisstjórn fullkom- lega heimil og skapar enga skaðabótaskyldu. Fjörðurinn fagri fyrir austan, sem umgirtur er háum og nær ókleifum fjöllum, hefur alið af sé f leiri listamenn en við mætti búast miðað við höfðatölu. Fjöl- margir eru þeir rithöfundar sem eiga ættir að rekja í dalinn milli fjallanna, svo og tónlistarmenn og aðrir andans menn. Mig langar að vekja athygli á tveimur skáldkonum frá Seyðisfirði sem lítið hefur farið fyrir í menningarumræðunni, en sem báðar hafa gefið út ljóða- bækur sem geyma fallegar hugs- anir, sérstaka rýni á umhverfi, bæði umhverfi hugans og þess landslags sem augað hefur numið. Mér finnst sérstök ástæða til að kynna þessar tvær konur því ljóðabækur þeirra verða ekki f leiri og þessar tvær því einstakar perlur á ljóðafesti Austur- lands. Guðný Marinósdóttir fæddist 11 september, 1944 á Seyðisfirði og lagði fyrir sig handavinnukennslu bæði á Egilsstöðum og á Akur- eyri og sérhæfði sig í textíllist frá Middlesex University í London. Árið 2019 gaf Félag ljóðaunnenda á Austurlandi út bók hennar Eins og tíminn líður. Í umsögn um höfund segir að þetta sé fyrsta ljóðabókin hennar en þetta verður jafnframt sú síðasta því Guðný lést á páska- dag 2019. Ljóð Guðnýjar eru mjög hógvær, lágstemmd og innhverf og einkum eru náttúrulýsingar henni tamar sem hún tengir gjarnan við sitt eigið sálarlíf. Ljóðin bera ekki heiti en hér eru nokkur sýnishorn af ljóðagerð Guðnýjar: Ljóðin mín eru litlar perlur sem skolast upp á ströndina með öldum lífsins. Ljóðin mín eru litlar perlur, ég tíni þær upp úr sandinum og læt þær í litla skrínið á efstu hillunni í hugskoti mínu. Náttúrulýsing: Þegar vetur rikir og vindurinn gnauðar á dimmum glugganum þá hugsum við um kærkomna fugla sumarsins og ljúfan kliðinn af kvaki þeirra. Karlína Friðbjörg Hólm fæddist 29. september, 1950 á Seyðisfirði en þegar hún kvaddi Seyðisfjörð hélt hún til náms í hjúkrun og lauk því 1972. Karlína, eða Kalla eins og hún var oftast kölluð á Seyðisfirði, birti talsvert af ljóðum í Lesbók Morgun- blaðsins á árunum 1987-1998, en fyrr á þessu ári gaf Félag ljóðaunn- enda á Austurlandi út ljóðabók hennar Rætur og þang, sem er úrval af ljóðum, prentuðum og óprentuð- um, sem Kalla átti í fórum sínum. Bókinni er skipt í nokkra kafla og er heiti kaflanna tekið úr ljóðasafni Köllu. Kaflaheitin geta verið býsna abstrakt svo sem „Sparruglur og spóaleggir“ og „Doppóttar fallhlíf- ar“ en hver kafli er myndskreyttur af Maríu Dögg Hákonardóttur sem dregur fram inntak hvers kafla með teikningum sínum. Meðal annars skreytir teikning Maríu af Seyðis- firði einn ljóðakaf lann þar sem ljóðin tengjast barnæsku Köllu í firðinum fagra. Ljóðmál Köllu er fjölbreytt, kraftmikið og hug- myndaflugið sterkt. Í ljóðinu Mjöll má lesa eftirfarandi vetrarmynd: Glotta grýlukerti hrökkva sönggyðjur við staka tóna af snæviþjökuðu þakskeggi. Lítil náttúrulýsing sem tengist lífshlaupinu með tilvísun í sögu landsins, kemur fyrir í ljóðinu Biðu- kollan: Auðsveip biðukollan ástundar landvinninga fram með túngörðum. Bæjarburstirnar bleikmálaðar í ár, skýin bleikmáluð, vonirnar kinnfiskasognar kinnarnar meikaðar í ljósbleiku. Og enn má finna svipmyndir frá síldartímanum á Seyðisfirði til dæmis í ljóðinu Hjólin snúast á ný: Brælan hefur hopað út í fjarðarmynnið, f ljóta í breiðfylkingu í daginn, vonirnar Klofvöðlurnar dragast syfjulegar eftir malarveginum, þetta óumf lýjanlega stigmagnandi viðskilnaðarhljóð. Ljóð þessara tveggja seyðfirsku kvenna auka við ljóðafjölbreytni í bókmenntaforða landsins. Þetta eru ólík ljóð en eiga það þó sam- eiginlegt að ljóðmálið er ferskt, efnið sótt innávið í sál höfundar og í nánasta umhverfi. Tvær seyðfirskar skáldkonur Sigrún Klara  Hannesdóttir prófessor 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.