Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Móeiður Svala hefur unnið sem flugfreyja hjá Icelandair en þessa
dagana er hún með nokkur spenn-
andi verkefni í farvatninu. Hún er
mikil hestakona og kann vel við
sig í hestagallanum en hefur líka
gaman af því að klæða sig upp í
kjól eða fallega dragt.
Hefur þú áhuga á tísku?
„Já, hef alltaf haft brennandi
áhuga. Tíska snertir svo margt í
okkar lífi. Ég hef haft gaman af
tísku frá því að ég var barn. Ég held
að áhuginn hafi kviknað eftir að ég
datt inn á tískusýningu og ég varð
bara ástfangin. Það var bara svona
einfalt.“
Fylgist þú vel með nýjum tísku-
straumum og þá hverjum helst?
„Ég fylgist með stóru tískusýning-
unum, sem eru haldnar tvisvar á
ári í Mílanó, París og London. Það
er hægt að fylgjast með þeim á
netinu. Fyrir mér er tíska listgrein.
Ég fór á London Fashion Week
sem var haldin 14. til 18. febrúar
síðastliðinn, áður en kórónaveiruf-
araldurinn skall á. Það var mikil
upplifun og margar tískusýningar
í gangi. Það var ótrúlega gaman að
vera í London á þessum tíma. Það
sem var hvað mest áberandi var að
það var allt úr leðri, allt var loðið
og flíkurnar stórar. Það fer heldur
betur ekki fram hjá okkur í hinu
daglega lífi í dag.
Mér finnst líka alltaf jafnáhuga-
vert að sjá það nýjasta frá Versace,
Jaquemus, Ralph and Russo, Fendi
og fleiri hönnuðum. Ég fylgist líka
með tískustraumum á Pinterest og
Instagram en þar er margt magnað
í gangi. Charlotte Emily Sanders og
Alison Toby eru í miklu uppáhaldi
hjá mér. Þær eru báðar mikið að
vinna með beisik flíkur og líka
hágæðaflíkur, en þær endast oft
betur þegar upp er staðið.“
Hvernig er þinn fatastíll og hefur
hann breyst í gegnum árin?
„Já, hann hefur breyst heil-
mikið. Segja má að fatastíllinn hafi
þroskast, sem er fínt. Núna er ég
oft í blazer jakka úr leðri, galla-
buxum eða svörtu outfitti. Þetta
þarf ekki að vera neitt f lókið. Svo
er alltaf hægt að toppa með skarti
eða sólgleraugum. Ég vil heldur
eiga færri f líkur en fleiri og þá af
meiri gæðum og hef einblínt á það
frá því ég var krakki. Ég safnaði
mér jafnvel fyrir vönduðum
flíkum, sem entust vel og lengi. Ég
fer líka vel með það sem ég á.“
Notar þú fylgihluti og skart?
„Já, ég myndi segja það. Ég er
alltaf með sólgleraugu, sama hvaða
mánuður ársins er. Ég á nokkur
sólgleraugu, svona átta til tíu
talsins. Ég er alltaf með tvenn til
þrenn í hanskahólfinu á bílnum
mínum, sem gott er að grípa í.“
Áttu þér uppáhaldsf lík?
Já, ég á nokkrar. Þessa dagana
held ég mikið upp á fjólubláa
kjólinn minn, sem er úr nýju
línunni frá Hildi Yeoman. Mér
finnst mikilvægt að styðja við
íslenska hönnun, ekki síst núna í
COVID-faraldrinum.“
Hvaða litur er í uppáhaldi hjá
þér?
„Mér finnst erfitt að velja á milli
svarta og hvíta litarins, en ætli ég
verði ekki að segja svartur. Sá litur
virkar alltaf.“
Hvernig klæðir þú þig dagsdag-
lega?
„Það er mismunandi en oft
verður blazerjakki fyrir valinu,
stuttermabolur eða svartur lang-
ermabolur og jakkafatabuxur eða
gallabuxur og Vagabond-hælar.“
En til spari?
„Þá finnst mér gaman að klæðast
buxnadragt, eða dragtarbuxum og
skyrtu. Ég fer í kjól þegar tækifæri
gefst til þess. En annars gerir falleg
blússa klæðnaðinn alltaf spari-
legan.“
Hver eru bestu fatakaupin?
„Svarti loðpelsinn minn sem ég
keypti í Berlín í fyrra.“
En verstu fatakaupin?
„Eitthvað sem ég er örugglega
búin að gefa frá mér.“
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Jakkinn er frá
Ralph Lauren og
silkiskyrtan er
úr Zara.
Móeiður er í
leðurjakka og
bol frá Zara,
buxum úr H&M
og Vagabond-
skóm. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/STEFÁN
Louis Vuitton Viva Cite gm taska, sem er í miklu uppá-
haldi hjá Móeiði. Hún fylgist vel með tískunýjungum.
Móeiður á nokkur pör af sólgleraugum og notar þau allt árið um kring. Þessi fallegu sólgler-
augu eru frá Gucci. „Ég er alltaf með sólgleraugu, sama hvaða mánuður ársins er,“ segir hún.
Framhald af forsíðu ➛
Kjóll, pils, eða buxur? Buxur.
Blúnda eða leður? Leður.
Gull eða silfur? Gull.
Doppur eða köflótt? Köflótt.
Háir hælar eða flatbotna? Það
fer eftir tilefninu.
Þröngt eða vítt snið? Þröngt.
Gloss eða varalitur? Varalitur.
Silfur eða gull? Gull.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
NÝJAR UMBÚ
ÐIR
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R