Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 24

Fréttablaðið - 19.11.2020, Page 24
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Unglist, listahátíð ungs fólks, var haldin í 29. sinn dagana 7.-15. nóvember. Hátíðin hefur það að markmiði að hefja menn ingu ungs fólks til vegs og virðingar, segir á vefsíðu Hins hússins, sem heldur Unglist. Árið í ár er, eins og ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum, for- dæmalaust. Vegna COVID hafa skipuleggjendurnir því þurft að leggja höfuðið í bleyti og aðlaga hátíðina þessum skrýtnu tímum. Viðburðirnir fóru því að öllu leyti fram á netinu, sumir dagskrárliðir voru upptökur, aðrir samvinnu- verkefni á milli skóla, unnin í fjar- vinnu og enn aðrir beint streymi, eins og Leiktu betur, spunakeppni framhaldsskólanna. Nemendur á Fataiðnbraut Tækniskólans og Fata- og textíl- braut Fjölbrauta skólans í Breið- holti héldu hina árlegu tísku- sýningu Unglistar rafrænt í ár, með myndbrotum af hönnun sinni, sem voru sett sam an í eitt mynd- band. Á tískusýning unni gafst upprennandi hönnuðum tækifæri til að koma sér á framfæri. Um það bil 20 nemendur sýndu hönnun sína í myndbandinu, sem hægt er að finna á Facebook-síðu Ung- listar. Kolbrún Sól Stefáns dóttir sá um skipulagningu sýningarinnar í ár, en hún er á lokaönn á fataiðnbraut Tækniskólans. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er að skipuleggja tísku sýninguna, en ég tók þátt í fyrra sem hönnuður,“ segir Kolbrún. „Áður en COVID kom var planið að hafa sýningarpall og alls konar styrktaraðila en við urðum að finna aðrar leiðir,“ útskýrir hún. Hún segir að þátttakend urnir hafi haft alveg frjálsar hendur með hönnunina í ár, en undanfarin ár hefur oftast verið eitthvert þema. „Í fyrra var þemað til dæmis tímaflakk og þá gastu valið hvort þú fórst í fortíðina eða framtíðina. En í ár var ekkert þema, út af COVID. Fötin voru mjög fjölbreytt og mér fannst alveg frábært að það var engin regla um hvað þú máttir nota og hvað þú áttir að gera. Það voru mjög margir sem voru að endurnýta alls kyns dót, plast og alls kyns efni. En svo voru ein- hverjir sem keyptu nýtt efni, sem er líka fínt.“ Kolbrún segir að hjá nem end- unum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sé það hluti af loka- áfanga á Fata- og textílbraut að hanna og sýna föt á Unglist. Í myndbandinu má sjá marga ólíka, upprennandi hönn uði sýna verk sín. Aðspurð hvort Kolbrún stefni á framhaldsnám í Fata hönnun eftir að önn inni er lokið, segist hún ætla að taka smá hlé og sjá svo til. Rafræn tískusýning ólíkra hönnuða COVID-19 setti strik í reikninginn við skipulagningu tískusýningar Unglistar í ár, en svo fór að sýningin var haldin á netinu í formi myndbrota af verkum hönnuðanna, sem sett voru saman í myndband. Ekkert þema var í ár og hönnunin því virkilega fjölbreytt , flott og hugmyndarík. Kolbrún Sól skipulagði tískusýninguna í ár, en hún er nemi á Fataiðn- braut Tækni- skólans. MYNDIR/ AÐSENDAR Skjáskot af myndbandinu sem er hægt að skoða á Facebook-síðu Unglistar. Lísbet sýndi þessar þrjár fatasamsetningar í myndbandi tískusýningar Unglistar, en hún er nemi á fataiðnbraut. Þátttakendur sendu inn myndbrot af hönnun sinni sem voru síðan öll sett saman í tuttugu mínútna myndband. Hér má sjá hönnun eftir Lísbetu Rósa, nemanda í Tækniskólanum. Serena Kristín er nemandi á fata- og textílbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hún hannaði þessa fal- legur kjóla fyrir tískusýninguna. Fötin sem Serena sýndi eru hluti af lokaverkefni hennar í textílhönnun. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.