Fréttablaðið - 19.11.2020, Qupperneq 26
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Fylgið okkur á FB
HÁTÍÐIRI
NAR
NÁLGAST
VELKOMI
N
ALLT TILB
ÚIÐ
Í LAXDAL
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
SKOÐIÐ NETV
ERSLUN
LAXDAL.IS
Geimbúningar hafa breyst mikið frá því að þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið á 7.
áratug síðustu aldar og í hönnun
þeirra allra nýjustu, sem koma frá
einkafyrirtækinu SpaceX, er ekki
síður lögð áhersla á útlitið en nota-
gildið. Elon Musk, eigandi SpaceX,
hefur borið þá saman við jakkaföt
og sagði að „allir líti betur út í
smóking“. Framúrstefnulegt útlit
þeirra er svo sannarlega mjög ólíkt
útliti fyrstu búninganna og myndi
ekki síður sæma sér á kvikmynda-
tjaldinu en í hávísindalegum geim-
ferðum.
Geimtískan þróast stöðugt
Í gegnum tíðina hafa ýmsar útgáfur af geimbúningum litið dagsins ljós og þeir hafa þróast í takt
við þarfir geimfara og framfarir í tækni. Þeir allra nýjustu eru þó ekki síður mótaðir af tískunni.
Vostok SK-1-búningurinn
Þetta er búningurinn sem Yuri Gagarin var í þegar
hann fór fyrstur manna á sporbaug um jörðu í apríl
árið 1961. Búningurinn var sérhannaðar fyrir Gagarin
og var í notkun til ársins 1963.
AL-7-búningurinn
Þetta er búningurinn sem Neil Armstrong var í þegar
hann varð fyrstur manna til að ganga á tunglinu í
júlí árið 1969. Búningurinn var til í þremur gerðum
og hann var hannaður til að verja geimfarana gegn
þeim öfgakennda hita og kulda sem er á yfirborði
tunglsins. NASA fékk aðstoð frá brjóstahaldara-
framleiðanda til að auka sveigjanleika búningsins
við liði og brynja sem Hinrik VIII. notaði var ein af
fyrirmyndum búningsins. Þessi búningur var not-
aður til ársins 1973.
EMU-búningurinn
EMU stendur fyrir „Extravehicular Mobility Unit“, en
þessi búningur sem var kynntur árið 1981 var hann-
aður fyrir geimgöngur sem gátu verið allt að átta
klukkustunda langar. Fyrir þessar löngu göngur var
búningurinn búinn því sem NASA kallar „Maximum
Absorbency Garment“, klæði sem drekkur í sig mjög
mikinn vökva, enda eru engar pissupásur í geimnum.
Þessir búningar hafa verið á Alþjóðlegu geimstöðinni
síðan árið 2000 og samkvæmt geimfaranum Doug
Wheelock lykta þeir eins og búningsklefi.
Graskersbúningurinn
Þessi skærappelsínuguli búningur
var tekinn í notkun árið 1988 og
var hannaður til að sjást betur í
svörtum geimnum en eldri bún-
ingar. Búningurinn fór í gegnum
ýmsar breytingar og hefur sést
í nokkrum ólíkum útgáfum, en
alltaf hefur liturinn haldið sér.
Sokol-búningurinn
Búningurinn var kynntur árið 1973
og er notaður enn í dag af rúss-
neskum geimförum sem ferðast
með Soyuz-geimskutlum, en þeir
eru sérsniðnir á geimfarana. Bún-
ingarnir eru hannaðir til að passa
í sætin í Soyuz-geimskutlum, og
láta þá sem klæðast þeim líta út
fyrir að vera að halla sér fram.
SpaceX Dragon-búningurinn
Elon Musk segir að hann hafi unnið að hönnun þessa
búnings í næstum fjögur ár og að hann þurfi ekki
bara að virka vel, heldur líka líta vel út. Búningurinn
er bæði nýtískulegur og búinn nýjustu tækni og
Musk fékk aðstoð frá búningahönnuðinum Jose
Fernandez við hönnun hans, en Fernandez hefur
unnið að ofurhetjumyndum eins og Batman v
Superman: Dawn of Justice og The Fantastic Four.
Fernandez segir að geimfararnir eigi að líta hetju-
lega út í búningnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Merkúr-búningurinn
Geimfarinn John Glenn notaði þennan búning
þegar hann fór fyrstur Bandaríkjamanna út
í geim í febrúar árið 1962. Búningurinn var
byggður á búningi sem var notaður af flug-
mönnum sem gerðu tilraunir með flug í mikilli
hæð. Sá búningur var hannaður af sjóhernum
árið 1959 en NASA gerði ýmsar breytingar.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R