Fréttablaðið - 19.11.2020, Síða 32
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Steinunn Ingigerður
Stefánsdóttir
bókasafnsfræðingur,
lést fimmtudaginn 12. nóvember á
hjúkrunarheimilinu Mörk, í faðmi
fjölskyldunnar. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimer-samtökin. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju,
þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 15.00.
Í ljósi aðstæðna verða einungis boðsgestir viðstaddir.
Athöfninni verður streymt á slóðinni: sonik.is/steinunn
Sigurður Valtýsson
Berglind Skúladóttir Sigurz
Bryndís Kara Sigurðardóttir
Stefán Ingi Sigurðarson
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Ólöf Sveinjónsdóttir
(Lilla)
Tjarnarflöt 9, Garðabæ,
lést 9. nóvember.
Útförin fer fram 20. nóvember, ásamt
nánustu ættingjum. Streymt verður frá útförinni á
facebook.com/streymi-á-útför-
Guðrúnar-Ólafar-Sveinjónsdóttur-108210067774940/
Jóhannes Árnason
Sveinjón Jóhannesson
Árni Jóhannesson
Kristín Andrea
Jóhannesdóttir Sigurður Straumfjörð Pálsson
ömmu- og langömmubörnin.
Við þökkum samúð og hlýhug við
andlát okkar ástkæru eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
Amalíu Berndsen
Lundi 7, Kópavogi.
Sveinbjörn Þór Haraldsson
Inga Björk Sveinbjörnsdóttir Ágúst Heiðdal Friðriksson
Haraldur Þór Sveinbjörnsson Edda Þöll Hauksdóttir
Berglind Berndsen
Sveinbjörnsdóttir Steinar Valur Ægisson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Petrea Aðalheiður
Gísladóttir
frá Hóli, Ólafsfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku
síðastliðinn fimmtudag.
Anna Linda Aðalgeirsdóttir Grétar Leifsson
Hildur Bryndís Aðalgeirsdóttir
Erla Aðalgeirsdóttir Jóhann Freyr Pálsson
Vignir Aðalgeirsson Jónína Símonardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Steinunn Gísladóttir
frá Skáleyjum,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu mánudaginn
16. nóvember síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar.
Leifur Kr. Jóhannesson
Jóhanna Rún Leifsdóttir Kristján Á. Bjartmars
Sigurborg Leifsdóttir Hörður Karlsson
Heiðrún Leifsdóttir Lárentsínus Ágústsson
Eysteinn Leifsson Guðleif B. Leifsdóttir
Jófríður Leifsdóttir Ingimundur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður J. N. Ingólfsson
málarameistari,
Fornastekk 3, Reykjavík,
sem lést 10. nóvember, verður
jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 23. nóvember kl. 13.00.
Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar
viðstaddir. Útförinni verður streymt á slóðinni
sonik.is/sigurdur. Einnig verður hún aðgengileg
á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Styrktar- og líknarsjóð Oddfellow.
Þorsteinn V. Sigurðsson Hrefna G. Magnúsdóttir
Ingólfur Sigurðsson
Sigríður Þóra Þorsteinsdóttir Pétur Þór Guðjónsson
Fanney Rut Þorsteinsdóttir Bjarki Heiðar Sveinsson
Rakel Ósk Jóelsdóttir Jónas Birgir Jónasson
Magnús Hlífar Jóelsson
Kristín Nordal Ingólfsdóttir
Fredrik Ingólfsson
Kristófer, Sunneva, Pétur, Tristan, Eva, Natalía, Logi,
Viktoría og Lovísa
Innilegar þakkir fyrir samúð
og hlýhug vegna andláts
séra Árna Sigurðssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Litlu-Grundar.
Aðstandendur
Stórafmæli? Já, ég er áttatíu og fimm ára kona og mér er efst í huga hversu lánsöm ég hef verið í lífinu. Maður gleymir því leiðinlega enda stendur í Biblíunni: Rífðu rót beiskj-
unnar úr brjósti þínu, það er gott heil-
ræði,“ segir Guðrún Ásmundsdóttir,
sem þjóðin þekkir fyrir leiklist sína og
höfundarverk.
Spurð hvort hún búi ein, svarar hún:
„Já, yfirleitt, en nú er sonardóttir mín,
Rakel Mjöll Leifsdóttir, hjá mér og það
er sko ekki leiðinlegt að skrafa við hana.
Hún er söngkona í Bretlandi en er heima
núna út af kófinu og fer þangað aftur
þegar því léttir, því þar er hljómsveitin
hennar. En er á meðan er.“
Guðrún furðar sig dálítið á þeirri
verndun sem eldra fólk nýtur í þjóð-
félaginu á veirutímanum og finnst sú
umhyggja stinga í stúf við skerðingar á
lífeyrissjóðs- og launagreiðslum þess.
„Ég fékk heiðurslaun listamanna fyrir
tveimur árum en andvirðið var tekið
af mér. Ég má þó ekki vera bitur en mér
finnst þetta dálítið fyndið,“ segir hún.
Rifjar upp sögu um frumstæðan þjóð-
flokk sem henti gamla fólkinu ofan af
hömrum þegar það var orðið til óþæg-
inda. „Einn var á leið upp á hamar með
föður sinn en ungur sonur hans elti.
„Hvað ert þú að gera hér?“ spurði faðir
hans. „Ég ætla bara að sjá hvað ég á að
gera við þig,“ svaraði drengurinn.“
Ekki lætur Guðrún sér leiðast. Nú
er hún nýbúin að skrifa barnabók um
skordýr sem hún kveðst hafa geymt
lengi í huganum og leyft að gerjast. „Ég
bað Ragnar, son minn og vin, að mynd-
skreyta bókina og hann hringdi klukk-
an tíu um kvöld. „Heyrðu, mamma, ég
ætlaði að gera þetta fyrir þig af því ég er
góður sonur en þetta er svo skemmtileg
saga, vildi bara láta þig vita!“
Staf li af nýjum bókum bíður Guð-
rúnar, þær ætlar hún að lesa og gefa svo
í jólagjöf. „Ég byrjaði á Ólafi Jóhanni,“
segir hún, „og nú er eins gott að hinir
standi sig vel!“ gun@frettabladid.is
Skrifar, les og skrafar
Guðrún Ásmundsdóttir, leikari og leikstjóri, er 85 ára í dag. Hún er eina konan, fyrir
utan Vigdísi Finnbogadóttur, sem Leikfélag Reykjavíkur hefur gert að heiðursfélaga.
Guðrún ætlaði að hafa húllumhæ í Hannesarholti í tilefni dagsins en það bíður. Hún lætur sér samt ekki leiðast. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég fékk heiðurslaun listamanna
fyrir tveimur árum en and-
virðið var tekið af mér. Ég má
þó ekki vera bitur en mér finnst
þetta dálítið fyndið.
1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT