Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 37
BÆKUR
Snerting
Ólafur Jóhann Ólafsson
Útgefandi: Bjartur
Fjöldi síðna: 303
Óla f u r Jóhann Óla fsson sagði í viðtali við Kiljuna á dögunum að hann skrifaði
fyrst fyrir sjálfan sig og svo fyrir les-
endur, sem er að mörgu leyti mjög
góður leiðarvísir fyrir rithöfunda
þar sem orkan og tíminn sem fer í
handverkið að skrifa bók er ekki á
neinn leggjandi, nema viðkomandi
liggi þeim mun meira á hjarta. Og
það gerir Ólafi Jóhanni sannarlega
í bókinni Snerting sem snertir á líf-
inu í endurliti, tilfinningum, and-
rúmslofti og eftirsjá.
Bókin hefst í mars
2020 á því að Krist-
ófer Ha nnesson,
veitingamaður til
margra ára, lokar
veitingast aðnum
s í n u m þ e g a r
honum finnst ljóst
að ekki verði staðið
í rekstri lengur,
bæði vegna far-
s ót t a r i n n a r o g
heilsufars. Hann
fær sama dag skila-
boð á Facebook frá
konu sem hann
hefur ekki séð í
hálfa öld og smám
s a m a n ve r ð u r
ljóst í gegnum frá-
sögnina að sam-
band þeirra hefur
mótað allt hans
líf. Bókin segir svo
frá þremur lífum
Kristófers, hálfa
líf inu sem hann
lifði á Íslandi, for-
tíðinni og líf inu
sem hann óskaði
sér en ekki fékk,
og svo nútíð sem
er full af trega en
líka von, hugrekki
og draumum þegar
hann heldur í ferða-
lag, fyrst á slóðir
minninganna á jap-
önskum veitinga-
stað í London og svo
á vit framtíðarinnar
í Hiroshima í Japan.
F r á s ö g n i n e r
lágstemmd og róleg en samt svo
seiðandi að það er erfitt að leggja
bókina frá sér. Söguheimurinn er
ljóslifandi, hvort sem um er að ræða
upplifun f lugferðalangs í COVID-
nútíma, fyrstu ástina á japönskum
veitingastað, eða raunveruleika
á Íslandi sem býður Kristófer svo
lítið þegar upp er staðið, þar sem líf
hans tók svo snemma beygju sem
hann náði aldrei alveg að rétta við.
Nosturslegar lýsingar á japanskri
matreiðslu eru bæði fróðlegar og
heillandi, sem dæmi má nefna þegar
Kristófer eldar japanskan morgun-
verð handa japönsku konunni sem
hann elskar, fer inn á hennar svið og
menningarheim og reynir þar auð-
mjúkur að hasla sér völl. Hún gefur
honum síðar japanska tekrús með
mynd af fugli sem gæti kannski líka
verið íkorni, sem gæti táknað ein-
hvern sem í annarri túlkun eða
samhengi gæti verið eitthvað allt
annað en hann eða hún er.
Snerting er vel sköpuð, vel hugsuð
og vel skrifuð saga. Hún er fyrst og
fremst ástarsaga en er marglaga og
fjallar ekki síður um lífið, hvernig
það leikur okkur og hvað við gerum
úr því. Stíllinn er meitlaður og frá-
sagnaraðferðin grípandi, spegil-
myndir úr lífi Kristófers í fortíð og
nútíð mætast og hverfast hver um
aðra á tilgerðarlausan og yfirveg-
aðan hátt. Sagan er full af trega og
eftirsjá, en líka von og hamingju
þess sem á ævikvöldi hefur engu að
tapa og allt að vinna.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Heillandi bók sem
snertir lesandann og hreyfir við
honum.
Japönsk tekrús með fugli eða íkorna
BÆKUR
Næturskuggar
Eva Björg Ægisdóttir
Útgefandi: Veröld
Fjöldi síðna: 368
Þriðja skáldsaga Evu Bjargar Ægisdóttur er glæpasagan Næturskuggar. Hún er jafn-
framt sú þriðja í sagnaf lokknum
um lögregluna á Akranesi og baráttu
hennar við syndaseli þar í bæ. Líkt
og í forverum Næturskugga, Marr-
inu í stiganum og Stelpum sem ljúga,
er lögreglukonan Elma þar fremst í
f lokki ásamt öðrum prúðum lög-
reglumönnum umdæmisins.
Í þetta skiptið er lögreglan köll-
uð til um miðja nótt þegar eldur
kviknar í húsi í rólegu íbúðahverfi
á Akranesi. Ungur maður, sonur
húsráðenda, verður eldinum að
bráð og ekki líður á löngu þar til lög-
reglan áttar sig á því að um íkveikju
er að ræða. Elma, Sævar og félagar
þeirra fara á stúfana, en við fyrstu
sýn virðist ekkert benda til þess að
nokkur hafi viljað unga háskóla-
nemanum nokkuð illt. Lögreglan
þarf þar af leiðandi að kafa ansi djúpt
í líf mannsins til þess að komast að
því hvort einhver í hans nánasta
umhverfi hafi viljað hann feigan. Á
sama tíma fær lesandi að kynnast
bæjarfulltrúa og lauslátum eigin-
manni hennar, sem eru einnig íbúar
þar í bæ.
Allir virðast hafa eitthvað óhreint í
pokahorninu en lesandi þarf að fikra
sig lengi áfram í
gegnum f léttuna
til að komast að
hinu sanna. Líkt
og góðum glæpa-
sögum sæmir sigla
l ö g r e g l u m e n n -
irnir sjálfir heldur
ekki lygnan sjó í
hversdagslífinu og
Elma gengur sjálf
með leyndarmál
sem hún getur ekki
hulið lengi.
Næturskuggar er
skemmtileg glæpa-
saga og f léttan vel
hugsuð. Hins vegar
virðist Eva eiga það
til að flækja hlutina
um of og hafa mörg
járn í eldinum, þann-
ig að lesandi fær inn-
sýn inn í hugarheim
of margra persóna.
Persónurnar eru vel
mótaðar og raun-
verulegar, en það er
þar af leiðandi ekki
mikið skilið eftir
fyrir ímyndunar-
aflið.
Evu Björgu er
hægt og rólega að
takast að skrifa
Elmu og félaga
h e n n a r i n n í
íslenska glæpa-
sögu, það er víst.
Sagnaheimurinn
sem hún hefur
sk apað er vel
mótaður, raunverulegur og væri í
raun hægt að mjólka í mörg ár. En
það væri líka gaman að sjá næstu
bók hennar taka nýjan snúning og
bregða örlítið frá þessu formi sem
hún hefur haldið sig við í fyrstu
bókum sínum.
Næturskuggar er líklega ein
af þessum bókum sem er best að
gleypa í sig í staðinn fyrir að smjatta
á henni of lengi. Niðurstaðan kom
kannski ekkert gífurlega á óvart en
Eva Björg er skemmtilegur penni og
það er óhætt að hlakka til fleiri bóka
eftir hana.
Bryndís Silja Pálmadóttir
NIÐURSTAÐA: Góður krimmi með
alls konar skrautlegum snúningum.
Stundum svolítið fyrirsjáanlegur
en yfir meðallagi í sínum flokki.
Ódæðin á Akranesi
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
586 1414
stora@stora.is · stora.is
facebook.com/storabilasalan
...á verði fyrir þig!
kaffi á könnunni
opið mán-fös 10-18
lau 12-15
NÝIR
ATVINNU
BÍLAR
Sérpöntun á bifreiðum getur tekið 2 – 4 mánuði
Útvegum allar
gerðir atvinnubíla
frá Ford, Renault
og Dacia
Við gerum þér tilboð í
bílaflotann, sérsniðið
að þínum þörfum
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29F I M M T U D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0