Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 10
10 FRÉTTIR
Alsæl og ólétt á
sundurgrafinni
jörð
Sjónvarpsstjörnurnar Viktoría Hermannsdóttir og
Sólmundur Hólm hafa lært að það borgar sig að
setja sem minnsta orku í leiðindi og meiri orku í
ástina – og að fylla upp í skurði. Þau eiga von á
sínu fimmta barni og Sóli hefur lofað þvottahúsi
og samansaumuðum garði fyrir vorið.
A ðkoman að húsinu lýsir framkvæmdagleði . Sundurgrafinn garður
með mannháum skurðum er
umhverfis húsið. Í honum
miðjum lúrir lítil grafa ásamt
stórri kerru. Hálffullar hjól-
börur skreyttar frostrósum
sem dansa í bleikum vetrar-
geislunum lofa batnandi
tíð og landfyllingu. Í miðju
skurðanna stendur fallegt
tvíbýli sem hýsir ekki minna
sjarmerandi fjölskyldu. Fyrir
utan útidyrnar standa forug
stígvél húsbóndans og ljóst
þykir að hér ætlar fjölskylda
að festa rætur.
Þegar inn er komið blasir
við hlýleg stofa og fallegt eld-
hús sem er hluti af jóladagatali
Sólmundar Hólm. „Hann lofaði
baðherbergi fyrir jólin 2018,
og eldhúsi fyrir jólin 2019,“
segir Viktoría og brosir af-
slappað. Greinilega með húmor
fyrir athafnasemi tilvonandi
eiginmannsins. Hvort tveggja
gerðist – reyndar löngu eftir
jól.
„Það stóðst ekki. Ég er búin
að lofa nýju herbergi fyrir
strákana fyrir jólin núna. Það
er enn möguleiki á að það tak-
ist.“ Sóli brosir.
Hann er jákvæðnin holdi
klædd og dugnaðurinn verður
ekki tekinn af honum. Kvöld
eftir kvöld, mánuð eftir mánuð
stendur hann í stígvélunum
ofan í skurði eða með kúbeinið
á lofti.
„Ég er orðinn þreyttur á
þessu núna. Við ætluðum ekki
að gera svona mikið í húsinu
en þegar það er byrjað á einu
í svona gömlu húsi þá verður
að taka annað í leiðinni. Það er
erfitt að hætta.“
Moldargólf og engin
þvottavél
Húsið er á þremur hæðum
og bendir Sóli stoltur á að ein
hæðin sé tilbúin.
„Það er reyndar ekkert gólf
í kjallaranum. Það er búið að
grafa hann upp. Bara mold.“
Hann brosir og veit hvern-
ig hann er. „Þvottahúsið fór
fyrir nokkrum mánuðum. Ég
braut gólfplötuna og fyrst ég
var búinn að því var eina vitið
að taka skólpið í leiðinni. Það
bætist alltaf eitthvað við.“
Aðspurður hvort það sé rétt
að móðir hans Hólmfríður
hafi sést með óhreinatau fjöl-
skyldunnar úti á hlaði svarar
hann hressilega: „Jú, hún
þvær allt fyrir okkur. Henni
finnst það ekkert mál. Ég trúi
því að mömmu finnist þetta
skemmtilegt.“
„Ég er ekki viss um það.
Hún reyndar keypti sér nýja
þvottavél og þurrkara,“ segir
Viktoría.
„Já! Þegar mamma sá fram
á þetta verkefni þá hugsaði
hún, ég er ekki með nógu góð-
an búnað í þetta. Ég skutlaði
henni auðvitað í leiðangur og
hún keypti það allra flottasta.
Frábærar græjur. Ég sótti
20. NÓVEMBER 2020 DV
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
þetta fyrir hana og tengdi
tækin því ég er svo svakalega
duglegur mömmustrákur.“
„Agalegt,“ segir Viktoría.
„Sóla finnst þetta ekkert
mál. Mér finnst það mjög mik-
ið mál og alls ekki sjálfsagt að
hún þvoi allt fyrir okkur. Hún
er búin að þvo fyrir okkur í
hálft ár,“ segir Viktoría sem
virðist þó geta andað sig í
gegnum flest allt. Moldargólf
og þvottavélarlaust hús með
fjögur börn.
Landi og hnetusmjör
Sólmundur og Viktoría hafa
komið víða við á fjölmiðla-
ferli sínum og störfuðu um
tíma bæði hjá RÚV þar sem
Viktoría er enn en Sóli er á
Stöð 2. Viktoría hefur vakið
verðskuldaða athygli meðal
annars í sjónvarpsþáttunum
Landanum og Fyrir alla muni
auk þess sem útvarpsþættir
hennar eru eitthvað annað
og meira. Hún hefur verið
tilnefnd til fjölmargra Eddu-
verðlauna og blaðamannaverð-
launa fyrir störf sín og hefur
myndað órjúfanleg tengsl við
viðmælendur sína. Svo náin að
einn þeirra eyddi jólunum með
fjölskyldunni og vinna Vikt-
oría og Sóli nú að heimildar-
mynd um þann einstakling.
Sóli stýrir gamanþáttum
á Stöð 2 ásamt Gumma Ben,
gaf nýverið út bók um Herra
Hnetusmjör og er einn vinsæl-
asti skemmtikraftur landsins
– nú í gegnum fjarbúnað.
„Ég þráaðist við eins lengi
og ég gat og ætlaði mér alls
ekki að fara að skemmta fyrir
framan tölvuskjá. Ég ætlaði
bara að bíða þetta af mér og
koma svo sterkur inn eftir
faraldurinn en svo er ég búinn
að grafa hérna allt í sundur og
þá er óheppilegt ef það kemur
ekkert inn í kassann. Maður
þarf að vinna svo ég ákvað
að prófa bara,“ segir Sóli og
jánkar því að vissulega sé
þörfin eftir skemmtun mikil
núna og sjálfsagt að bregðast
við því. „Þetta er ekki leiðin-
legt. Best er að gera þetta
þannig að þú sjáir framan í
fólk á Zoom eða Teams. Það er
mikið að gera og þetta er bara
gott fyrirkomulag. Það var
glatað hjá mér að neita fólki
án þess að prófa þetta. Þetta
gengur bara vel og ég hugsa að
ég verði bara fælinn þegar ég
fer að skemmta mörg hundruð
manns næst á sviði.“
Sólmundur hefur áður gefið
út ævisögu Gylfa Ægissonar
en það er langur vegur milli
Gylfa Ægis og Herra Hnetu-
smjörs, Árna Páls Árna-
sonar sem er 24 ára rappari.
Bókin Hingað til þykir koma
skemmtilega á óvart og skín
frásagnarhæfni og orðlist Sól-
mundar vel í gegn.
„Þetta er saga manns sem
hefur frá heilmiklu að segja.
Þetta er þroskasaga frekar
en ævisaga. Sagan höfðar í
raun til allra þeirra sem vilja
skilja veruleika unglinga og
ungs fólks. Það er algengt að
krakkar byrji á dópi og lyfjum
áður en þeir fara að drekka.
Það kemur minni kynslóð
spánskt fyrir sjónir.“
Viktoría tekur undir og seg-
Förðun: Elín Reynis
Myndir: Ernir Eyjólfsson