Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 14
14 EYJAN
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Karen á
landsfundi.
Það hjálpaði
til að hugsa
um fundinn
meira sem
útsendingu
heldur en
fjarfund.
MYND/HARI
20. NÓVEMBER 2020 DV
LANDSFUNDUR Í COVID
Samfylkingin hélt nýlega þúsund manna landsfund í tíu manna sam-
komutakmörkun. Framkvæmdastjóri flokksins segir fundinn hafa
gengið vonum framar og að ýmislegt sé hægt að læra af honum.
Þ að stóð til að halda landsfund núna í haust. Fyrir svona viðburði
hjá öllum flokkum eru dag-
setningar ákveðnar ár fram
í tímann hið minnsta. Þetta
er bæði pólitískur viðburður
þar sem fólk er að skiptast á
skoðunum en líka vettvangur
til að gera sér glaðan dag og
hitta aðra,“ segir Karen Kjart-
ansdóttir, framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar.
Rafrænn landsfundur
flokksins hefur vakið nokkra
athygli fyrir hversu vel hann
gekk, en hann var sendur út
á rafrænu formi vegna sam-
komutakmarkana. Ákvörð-
unin var nokkuð djörf enda
ýmislegt sem getur farið úr-
skeiðis þegar tæknin er ann-
ars vegar. Sjálfstæðisflokk-
urinn ákvað að fara þá leið
að fresta fundi sínum fram á
næsta ár, en Samfylkingunni
þótti mikilvægt að halda sig
við setta dagsetningu og end-
urnýja umboð forystunnar.
200 manna
samkomutakmörkun
„Þegar við komum saman
eftir sumarfrí og hittum
framkvæmdastjórnina þá
var 200 manna samkomutak-
mörkun í gildi. Þá fórum við
að skoða hólfaskiptingu og
hvort við gætum verið með
nokkur rými í gangi og hópinn
skiptan niður og sjónvarpað á
milli. Þannig þetta var svolítið
flókið í framkvæmd.“
Karen segir að þegar þetta
hafi átt sér stað hafi vonir
manna staðið til að faraldur-
inn væri genginn niður á land-
inu og jafnvel engin þörf á að
hafa landsfund með breyttu
sniði.
„Margir voru bjartsýnir á
að það yrðu engar samkomu-
takmarkanir og héldu að það
væri óþarfa umstang að ætla
að skipuleggja þetta eftir ein-
hverjum sóttvarnahólfum.
En svo kom annað á daginn
og við enduðum á að halda
landsfundinn í tíu manna sam-
komutakmörkun.“
Fundurinn varð
sjónvarpsútsending
Fyrst stóð til að halda fund-
inn með aðstoð fjarfunda-
forritsins Zoom, en fljótlega
gerðu menn sér ljóst að það
væri önnur lausn sem væri
líklegri til árangurs. Fundur-
inn var því skipulagður sem
sjónvarps útsending.
Karen segir að það hafi þó
verið ýmsar áskoranir sem
þurfti að takast á við, svo sem
hvernig hægt væri að tryggja
að aðeins tíu einstaklingar
væru í hverju skilgreindu
rými á Hilton hótelinu í
Reykjavík þar sem fundurinn
var haldinn. „Við vorum stöð-
ugt að telja hverjir voru inni
í salnum og rákum fólk út.
Þá þurftum við líka að nýta
krafta hvers og eins til hins
ýtrasta.“
„Sem betur fer þá tókst
þetta snurðulaust og við höf-
um fengið mikið hrós fyrir,“
segir Karen. Hún segir að
í kjölfarið hafi margir haft
samband við Samfylkinguna
og óskað eftir góðum ráðum
til að hafa í huga við skipu-
lag á svona stórum rafrænum
fundum.
„Ég held að einn þáttur í
því hversu vel gekk hafi verið
hversu mikil reynsla er innan
Samfylkingarinnar á rafræn-
um kosningum, en flokkurinn
hefur kosið rafrænt frá 2005.
Þannig að flokksfólkið kann
þetta ofboðslega vel.“
Mikilvægt að bjóða aðstoð
Mikil áhersla var lögð á að
bjóða fólki upp á aðstoð við
tæknina, enda er fólk mislæst
á tölvur. Því var starfrækt
símavakt sem flokksfélagar
gátu hringt til og óskað eftir
leiðbeiningum og eins var
hægt að hafa samband með
tölvupósti. Félagsmenn fengu
einnig sms-áminningu fyrir
hverja einustu kosningu.
Á fundinum fóru einnig
fram almennar umræður,
líkt og hefðir landsfunda gera
ráð fyrir, en þá var stuðst við
fjarfundaforritið Zoom. Karen
segir að sá þáttur landsfundar
hafi einnig gengið vonum
framar.
Kostir við rafræna fundi
Nefnir Karen að þó svo það
sé áskorun að halda rafrænan
landsfund af þessari stærð,
og þó mörgum þyki miður að
missa af því að hitta flokks-
félaga sína, þá séu ákveðnir
kostir við slíka fundi.
„Við höfum fengið mikið af
skilaboðum frá fólki víða frá,
fólki sem býr úti á landi, eldra
fólki og fólki sem er við nám
erlendis, og það hefur lýst
þakklæti sínu og fannst það
eiga meiri hlutdeild í þessum
fundi heldur en í hefðbundn-
um landsfundi.“
Skilaði þetta sér í því að
fleiri frá landsbyggðinni gáfu
kost á sér í framkvæmda-
stjórn sem Karen segir
ánægjulegt og gefa fullt til-
efni til að skoða það að veita
rafrænum fundum varanlegan
sess í starfi flokksins, svo sem
fundum framkvæmdastjórnar
sem Karen telur að muni mik-
ið færast yfir í fjarfundaform.
Eins var þátttaka í kosn-
ingum sérlega góð en um 950
flokksfélagar greiddu lands-
fundargjald og landsfundar-
fulltrúar voru rúmlega þús-
und talsins.
Á forsendum skjásins
Karen segir að við skipulagn-
inguna hafi verið horf til ann-
arra stórra rafrænna funda.
„Ég vil ekki nefna nein
dæmi en stundum er eins og
fólk gleymi að vanda sig og
láti tæknina alveg ráða. Fái
einhverja tæknimenn til að
koma og hjálpa við tækni-
legu atriðin en gleymi því að
það þarf meira til. Að hugsa
um útlitið á forsendum tölvu-
skjásins.
Svo náttúrulega virkaði allt
eins og vel smurð vél. Kjör-
nefndin okkar var skipuð
mjög hæfu fólki og landsfund-
arnefndin frábær og starfs-
fólkið afskaplega samstillt.“
Spurð út í hvaða ráð hún
geti gefið öðrum varðandi
framkvæmd á stórum raf-
rænum fundum segir Karen
að það sé mikilvægt að bjóða
upp á tæknilega aðstoð. Einn-
ig þarf að skipuleggja fund-
ina út frá því formi sem þeir
birtast félagsmönnum. Eins
að muna eftir þeim kostum
sem felast í þessu fundar-
formi.
„Þarna eru margir þættir
sem ber að fagna. Það geta
fleiri en ella tekið þátt og
fundist þeir eiga rödd á fund-
inum. Eldra fólk og fólk sem
býr erlendis, eða út á landi og
þarf að fara um langan veg
– það getur líka verið með.
Þetta auðveldar mörgum lífið.
Þegar lífið fer í sinn vana-
gang þá á maður að passa upp
á þetta og finna leið til að láta
taka þessa kosti og samræma
þá við eldri hefðirnar.“ n
Gæta þurfti
vel að
sóttvörnum
á fundinum
og passa að
ekki væru
fleiri en tíu í
sama rými á
hverjum tíma.
MYND/HARI