Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Qupperneq 40
S æl. Ég þekki til fólks sem hefur gengið með skilnað í maganum eða
jafnvel verið búið að ákveða
að skilja og beðið með það
fram yfir jólahátíðina. Við
konan mín erum komin alveg
út í horn, en ég viðurkenni að
jólin og þessir veirutímar eru
að hafa áhrif á ákvörðunina.
Hver er þín nálgun á þetta?
Bestu kveðjur, einn í vanda.
Engin skyndiákvörðun
Blessaður. Takk fyrir góða
spurningu. Eins og með svo
margt í lífinu þá er mikilvægt
að líta á skilnað sem heilan
kafla í bók um lífið sitt. Það
skilur enginn klukkan þrjú á
þriðjudegi heldur hefur það
aðdraganda og eftirmála, oft
eru tekin tvö skref fram og
svo eitt aftur og það þurfa
flestir að ganga í gegnum
nokkur stig, stig skilnaðar-
ferlisins. Líkja má þessum
stigum við sorgarferli en
því geta fylgt margs konar
beygjur sem nauðsynlegt er
að fara í gegnum til þess að
finna á endanum ró og sátt.
Fyrstu stig skilnaðarferlis-
ins geta litast af ákvörðun-
inni um skilnað. Afar margir
í sambandi lýsa því að þeim
hafi dottið skilnaður í hug
og jafnvel hótað honum á
erfiðum tímum, en það
merkir ekki að skilnaður sé
yfirvofandi. Sú ákvörðun er
yfirleitt ekki tekin í skyndi
og þarf fólk að máta sig við
hugmyndina áður en það
svo mikið sem þorir að ræða
hana upphátt við maka eða
aðra nákomna.
Meta stöðuna
Þú nefnir að árstíminn og
veirutímarnir séu að hafa
áhrif á ákvörðun þína og við
þurfum að líta örlítið betur á
hvað það merkir. Mig grunar
að það geti verið hjálplegt
fyrir þig að skoða hvort a: þú
sért búinn að taka ákvörðun,
en vitir ekki hvort þú eigir að
fylgja henni eftir núna eða
eftir jól. Eða b: ertu efins um
ákvörðunina og hvort þú viljir
yfirhöfuð skilja? Þarna á milli
er grundvallarmunur sem þú
þarft að taka afstöðu til.
Algengustu ástæður þess
að fólk leitar til mín í hjóna-
bandsráðgjöf eru þrjár, þ.e.
1. Parið vill bæta sambandið
í parameðferð.
2. Parið veit ekki hvar það
stendur, hvort það vill
laga sambandið eða skilja.
3. Parið fær stuðning við að
skilja eins vel og mögulegt
er.
Stundum þurfa mínir skjól-
stæðingar að ganga í gegnum
öll þrjú skrefin. Ein mikil-
vægasta forsenda þess að
parameðferð geti skilað ár-
angri er að báðir aðilar hafi
trú og vilja til þess að bæta
sambandið. Ef fólk er hikandi
þá er óumflýjanlegt að staldra
við þar, leyfa sér að melta og
sitja í óvissunni. Stundum
þarf fólk að líta ofan í gjána
sem heitir „skilnaður“, meta
kosti og galla til þess að vita
hvað það vill. Á hvaða stigi
myndir þú meta þig?
Togstreita skaðleg
Ef þið eruð komin á skilnað,
en jólin og veiran eru að
hafa áhrif á hvenær fram-
kvæmdin skuli ganga í gegn,
veltur það á aðstæðum ykkar
og samheldni. Er ákvörðunin
tekin í sátt? Eru börn í spil-
inu og mun skilnaður bitna
á þeirra jólahátíð? Hverjir
eru kostirnir við skilnaðinn?
Mun andrúmsloftið á heim-
ilinu léttast og jólin geta
orðið afslappaðri en ella eftir
skilnað? Nú þarft þú að setja
þig í spor Þórólfs sóttvarna-
læknis og meta skaða versus
ávinning.
Það er til að mynda skað-
legt fyrir börn að búa við tog-
streitu í sambandi foreldra
sinna. Rannsóknir sýna að
börn sem upplifa skilnað eigi
í erfiðleikum fyrstu tvö árin,
en langtímaáhrifin eru ekki
marktæk ef vellíðan skilnað-
arbarna í framtíðinni er bor-
in saman við vellíðan barna
sem alist hafa upp við ham-
ingjusamt samband foreldra.
Ef þú sem sóttvarnalæknir
ættir að meta hvort börnin
þín verði fyrir meiri skaða
eða ávinningi við að upplifa
togstreitu yfir hátíðina með
báðum foreldrum sínum eða
jólin í nýjum og óþekktum að-
stæðum sem skilnaðarbarn,
hver er þá niðurstaða þín?
Nýtt upphaf
Það er rétt hjá þér að margir
velja janúar og september til
þess að sækja um skilnað.
Fyrir því geta legið margar
ástæður en þær skýrast
ekki alltaf af jólahátíðinni.
Stundum ræður þar för nýtt
upphaf, ný önn eða jafnvel
áramótaheit. Þá geta opn-
unartímar hjá sýslumanni og
munur á umsókn um skilnað
annars vegar og skilnaður
að borði og sæng hins vegar,
skekkt tölurnar. Sem dæmi
má nefna að í Bretlandi er
hægt að sækja um skilnað í
gegnum internetið, alla daga,
allan sólarhringinn. Þangað
hafa borist tugir umsókna á
aðfangadag, jóladag og gaml-
árskvöld, líkt og aðra daga.
Ég tel þó að það sé heillavæn-
legra að taka ákvörðun um
skilnað á forsendum ykkar
aðstæðna, fremur en það sem
fólk kýs almennt að gera.
Fyrst þú spyrð um mína
nálgun þá get ég sagt þér
að lokum að ég ráðlegg
alltaf fólki að anda vel inn í
ákvörðun um skilnað og fara
vandlega í gegnum hvert
stig. Skilnaður getur kallað á
mörg tækifæri, nýja reynslu
og lærdóm sem þú munt búa
að alla ævi. Hvers vegna
ekki að njóta þess líkt og við
gerum með svo mörg önnur
tímamót sem lífið býður upp
á? Gangi ykkur vel! n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
28 FÓKUS
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda sem
vill skilnað.
Margir velja
janúar og sept-
ember til þess
að sækja um
skilnað.
Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
20. NÓVEMBER 2020 DV
BÍÐA MEÐ SKILNAÐ FRAM YFIR JÓL?