Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 46
34 SPORT 433
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Hamrén og Freyr á góðri stundu, tveggja ára samstarf þeirra með landsliðið er á enda. MYND/GETTY
Erik Hamrén steig sinn
síðasta dans sem landsliðs-
þjálfari Íslands í knattspyrnu
karla í liðinni viku þegar liðið
heimsótti England, leikið var
í Mekka fótboltans á Wembley.
Hamrén hefur því lokið starfi
rúmum tveimur árum eftir að
hann tók við stjórnartaumum
liðsins. Þessi 63 ára gamli Svíi
var fimm mínútum frá því að
koma íslenska landsliðinu inn
á sitt þriðja stórmót í röð. For-
verar hans í starfi sem komið
höfðu liðinu á stórmót, höfðu
heilsuhraust lið til að velja úr.
Eftir að Hamrén tók við hafa
lykilmenn liðsins verið mikið
frá vegna meiðsla og hefur
það spilað stórt hlutverk í
úrslitum og árangri liðsins.
Árangur liðsins í leikjum sem
skiptu máli var hins vegar
með miklum ágætum, liðið
fékk 19 stig í undankeppni
Evrópumótsins, sem alla jafna
hefði dugað til að komast upp
úr riðlinum. Liðið var svo
með 9 tær inn á Evrópumótið,
þegar tvær mínútur voru
eftir af venjulegum leiktíma
í Ungverjalandi, en endalokin
þekkja flestir. Hamrén ákvað
sjálfur að stíga til hliðar eftir
sjóferðina í Búdapest.
Frábær í samskiptum
Eftir að Hamrén tók þessa
ákvörðun hafa leikmenn liðs-
ins stigið fram og sagt hann
frábæran í starfi og í sama
streng tekur aðstoðarmaður
hans, Freyr Alexandersson.
„Það hefur fyrst og fremst
verið virkilega gott að vinna
með honum. Fyrir mig, sem
hafði verið í kringum Lars
Lagerbäck og Heimi, og í
starfi mínu sem landsliðs-
þjálfari kvenna, þá voru það
viðbrigði að venjast nýjum
manni og hans aðferðum.
Hann er, eins og fólk hefur
tekið eftir, ekkert sérstak-
lega öruggur í enskri tungu
og leggur áherslu á mál sitt
á skrýtnum stöðum. Það tók
smá tíma fyrir alla að venjast
því, mjög fljótlega áttuðum
við okkur samt á því hversu
frábær manneskja hann er.
Hann er frábær í mannlegum
samskiptum, margir halda
þegar slíkt er sagt að hann
sé linur við leikmennina. Það
snýst ekkert um það, það snýst
um virðingu. Heiðarleiki er
það orð sem ég myndi nota
til að lýsa honum. Gagnvart
leikmönnum og þjálfurum,
þá sagði hann alltaf nákvæm-
lega það sem honum fannst,
en hann var sanngjarn. Hann
hrósar þegar það á við og
gagnrýnir þegar það á við,“
sagði Freyr um samstarf
þeirra þessi rúmu tvö ár.
Bar virðingu fyrir
skoðunum
Hamrén tók við eftir magnað
starf Lars Lagerbäck og
Heimis Hallgrímssonar,
hann reyndi að setja sig inn
í þá hluti sem höfðu virkað
og bar virðingu fyrir skoð-
unum leikmanna. „Hann er
mjög klókur og les leikinn vel,
hann les manneskjur vel. Ég
hef lært helling af honum af
því sem hann hefur upplifað í
gegnum sín ár, þegar við þjálf-
arateymið erum saman þá er
hann mjög skýr og öruggari
með sig á enskunni. Ef það er
eitthvað þá talar hann sænsku
og það er bara fótboltatungu-
mál. Kostur í hans fari er að
hann bar virðingu fyrir því
sem hafði áður verið gert hér,
hann var ekki að breyta að
óþörfu. Það voru hlutir í tak-
tík sem hann ræddi við leik-
mennina um að breyta, en sá
að leikmenn vildu hafa þetta
á ákveðinn hátt og hann var
klár í þann slag. Hann lét leik-
mennina virka, það hefði verið
auðvelt fyrir hann að breyta
öllu til að sýna hvað hann væri
klár. Þar kom reynsla hans og
styrkur,“ sagði Freyr.
Aldrei elskaður af þjóðinni
Lageräck og Heimir voru elsk-
aðir af þjóðinni fyrir árangur
sinn, en slæm byrjun Hamrén
í starfi í Þjóðadeildinni, varð
til þess að hann átti á bratt-
ann að sækja. Hamrén virtist
aldrei takast að fá áhangend-
ur á sitt band, þrátt fyrir að
hafa unnið jafnmarga leiki í
undankeppni Evrópumótsins
og Lagerbäck og Heimir höfðu
gert til að koma Íslandi inn á
Evrópumótið í Frakklandi.
„Mér finnst það leiðinlegt,
hann finnur ekki fyrir því per-
sónulega, en mér finnst það
leiðinlegt fyrir íslenskt knatt-
spyrnuáhugafólk og þjóðina,
að hafa ekki fengið að sjá hans
rétta karakter. Þetta er svo
flott manneskja, ég er á því að
það hafi aldrei náð að skína í
gegn. Það er ýmislegt búið að
ganga á bak við tjöldin sem
kemur kannski fram seinna,
sem sýnir ótrúlega sterkan
karakter og leiðtoga. Þú ert
dæmdur af úrslitum og fólk
er kannski fljótt að gleyma því
að við erum að eiga við hitt og
þetta, en á sama tíma að spila
við bestu þjóðir í heimi.“
Leikmenn svekktir
Nokkrir lykilmenn liðsins
hafa stigið fram og farið
fögrum orðum um Hamrén
og eru svekktir að sjá hann
fara. „Ég held að það lýsi því
langbest, viðbrögð leikmanna.
Svekkelsi að við séum ekki að
fara að halda áfram. Lykil-
menn hafa sagt það við hann
persónulega og í fjölmiðlum.
Það er mjög sjaldgæft í 30
leikmanna kjarna, að engum
líki illa við þjálfarann. Það
eru yfirleitt einhverjir sem
eru ósáttir, þetta sýnir þessa
leiðtogahæfileika.“
Freyr er einn af þeim sem
er orðaður við starfið, en hann
veit ekki hvað framtíðin ber í
skauti sér. „Þetta er íslenska
landsliðið og það er erfitt að
segja nei við því, staðan er
þannig að ég vil bara liðinu
allt það besta. Ef stjórnin vill
fara aðra leið en að vera með
mig þá styð ég það 100 pró-
sent, ég vil að þetta verði í lagi
fyrir liðið frá og með næstu
undankeppni. Ég ætla ekki
að loka neinum dyrum, en
eins og staðan er í dag þá er
ég hættur,” sagði Freyr, sem
er aðstoðarþjálfari Al-Arabi í
Katar með Heimi Hallgríms-
syni. n
Heiðarleiki er
það orð sem ég
myndi nota til að
lýsa honum.
HEIÐARLEGI SVÍINN SEM
ALDREI VAR ELSKAÐUR
Eftir tvö ár í starfi landsliðsþjálfara ákvað Erik Hamrén að stíga til
hliðar eftir að hafa mistekist að koma karlalandsliðinu í knattspyrnu
inn á stórmót. Hann steig síðustu sporin gegn Englandi á Wembley.
20. NÓVEMBER 2020 DV