Fjölrit RALA - 10.09.1978, Blaðsíða 12
8.
1 fjölritinu segir Bjarni eftirfarandi um úrkomuna í Borgarfjarðar-
héraði 1974: "Sjáum við þar að úrkoman ®r að vonum mest á Skarðsheið-
arsvæðinu. Einna minnst er úrkoman á svæðinu í skjóli jöklanna í austri
og á tungu þaðan allt vestur á Mýrar. Úrkoman eykst svo aftur er nær
dregur hálendinu norðan héraðsins. Úrkomumunur á milli nálægra staða
er víða mikill, skoðum t.d. Hvanneyri og Andakílsárvirkjun. A milli
þessara stöðva er 600 mm úrkomumunur, þótt aðeins 4 km skilji þar að á
loftlínu. Úrfellin eru mest á stöðvum nær fjöllum, t.d. við Andakíls-
árvirkjun og á Brekku í Norðurárdal. Á þessum stöðvum eru úrkomudagarnir
þó jafnvel færri en á stöðvum fjær hálendinu og á stöðvum í skjóli austur-
fjallanna".
Dregnar hafa verið upp myndir af úrkomunni í Borgarfirði í júní,
júlí og ágúst 1976, með því að styðjast við mælingar Veðurstofunnar á
veðurathugunarstöðvum héraðsins. Myndir 1, 2 og 3.
Úrkomulínur, sem dregnar væru eftir niðurstöðum úrkomustöðvanna
án vitneskju um úrkomu Hestsmýrar,gæfu ekki rétta mynd af úrkomu mýrar-
innar sumarið 1976. Þurrviðratunga sú, sem Bjarni talar um í fjölriti
sínu nær frá austri að Hestvistarmýri í júní og júlí en er fjarlægari í
ágúst. (Mælingar hófust reyndar ekki fyrr en 5. júní á Hestvistarmýri,
en það kemur ekki mikið að sök, þar sem úrkoma var ekki mælanleg 1.-4.
júní á flestum mælingastöðvum héraðsins).
Eftirfarandi tafla sýnir úrkomu á mælistöðvunum, úrkomulausa daga
og fjölda daga á hverri stöð þegar úrkomumagn er + 0.5 mm miðað við
úrkomuna á Hesti 1976.
1 töflunni má sjá að aðeins 3 dagar eru úrkomulausir á Hesti í
júní þrátt fyrir lítið úrkomumagn, en 4 dagar á Hvanneyri og Andakíl,
en þar eru einnig flestir dagar með svipaða úrkomu og er á Hesti eða
13 daga með úrkomu, sem er innan við 0.5 mm mun frá Hests-úrkomunni.
Ef athugaðir eru úrkomulausir dagar, þá eru þeir á Hesti 19., 20. og 22.
júní en á Hvanneyri 19., 20., 21. og 22. júní. I júlí eru 18 dagar á
Hvanneyri með úrkomu innan 0.5 mm frá Hests-úrkomunni. Úrkomulausir
eru 7 dagar á Hesti en 6 á Hvanneyri. Þann 7. júlí er úrkomulaust á
Hesti en 0.2 mm á Hvanneyri, Þann 12. júlí er úrkoma í Hestvist 0.1 mm
en úrkomulaust á Hvanneyri og 19 júlí er 0.8 mm á Hvanneyri en úrkomu-
laust á Hesti. í ágúst er úrkomulaust 18. og 31. á Hvanneyri en á
Hesti er úrkomulaust 3. og 18. I ágúst eru 11 dagar með úrkomumun innan
við 0.5 mm milli Hests og Hvanneyrar.