Fjölrit RALA - 10.09.1978, Side 30
26.
43-48 cm:
48-87 cm:
87-165 cm:
165-230 cm
+
steinefnaíblöndunar. Mýrarrauði dálítiö
áberandi í efri hluta lagsins. Talsvert
af kísilseti í 3-30 cm dýpt.
Dökk rauðbrúnt (5 YR 2.5/2) lag, mjög
mikið rotnað, von Post-tala H9-10. Skil
lagsins ógreinileg, mjög mikil xblöndun af
mélu og kísilseti.
Rauðsvart (10 R 2.5/1) miðlungs rotnað
torf, von Post-tala H5-6. Skil greinileg.
Talsvert af kísilseti einkum efst og neðst
í laginu.
Mjög dökk grátt (5 YR 3/1), dálítið rotnað
torf, von Post-tala H4-5. í 152 cm er
þunnt (2-3 cm) lag af gráum (5 YR 5/1)
kísilblönduðum lifrænum leifum, mikið rotn-
að,von Post-tala H9-10. Skil greinileg.
Örlitlu neðar 156 cm bregður fyrir svörtu
2ja cm öskulagi.
Brúnt til dökkbrúnt (7.5 YR 3/2-4/2) mið-
lungs rotnað torf, von Post-tala H5-6.
Mjög þétt, með ösku og annarri steinefna-
íblöndun inn á milli, en sums staðar
alveg hreint.
1.7 Sýrustig og steinefni í jarðvegssynum, Friðrik Pálmason
Mæliaðferðir:
pH mælt í 0.01 M CaCl^, umskiptanlegar katjónir, Ca, Mg, K og Na
og leysanlegur fosfór mælt eftir skolum jarðvegs með 0.1 M ammóníum-
laktat og 0.4 M ediksýru (AL - lausn).
Mælingar voru gerðar á Rannsóknastofu Bændaskólans á Hvanneyri.
Taka jarðvegssýna:
1. Úr sniðum. Sýnin voru tekin 6. október 1977 af nemendum Búvísinda-
deildar á Hvanneyri. Sniðin voru í skurðfláum tveggja aðalskurða,
sem voru þá nýlega grafnir í mýrinni.