Fjölrit RALA - 10.09.1978, Side 56
52.
myndast. Ástæðan fyrir því að fuglinn yfirgaf hreiðrið er óljós,
en gæti verið vegna ferða athugunarmanna framhjá hreiðurstaðnum einu
sinni á dag.
Önnur hreiður fundust ekki á svæði II og er ástæðan fyrst og
fremst sú, að áhersla var lögð á beitarathugun þetta sumar.
3.2.3. Fuglar á svæðinu og nágrenni.
26.4. Stelkur kominn í mýrina.
6.5. Tveir hrafnar sáust í Skorradalshálsi.
1.6. Eftirfarandi fuglar sáust á athugunarsvæði:
Tvö jaðrakanspör, kjói, spói, stelkur, hrossagaukur og þúfu-
tittlingur. Athugunarmenn fundu þúfutittling, sem á vantaði
annan vænginn. Augljóst var, að hann hafði orðið fyrir þessu
slysi fyrir löngu síðan, því sárið var vel gróið. Fuglinum var
sleppt aftur, því hann virtist í góðu ásigkomulagi og líklegur
sem góður biti fyrir einhvern varginn.
19.6. Grágæsahreiður hafa líklega verið við Grímsá.
21.6. Tvö jaðrakanspör halda sig sunnan við veðurreit á svæði II. I reit
B-12 fannst skurn af spóaeggi, en lítið hefur sést eða heyrst til
spóa, og telur athugunarmaður ólíklegt að hann eigi hreiður sitt
á svæði I.
25.6. Skurn af jaðrakanseggi fannst á svæði II. Þetta skrifast á varginn
6.7. Tvö gæsapör með ungahópa sáust við Grímsá. Á svipuðum slóðum voru
hrafn og kjóapar að rífast um eitthvað og hrafninn varð frá að
hverfa. Mjög mikið er um hrafn og svartbak á svæðinu. Ástæðan er
öskuhaugur frá veiðihúsinu við Grímsá. Haugurinn er á melnum
norðan Illasunds. Nærvera hrafna og svartbaka hefur valdið mikilli
fækkun þrasta og þúfutittlinga á Götuásnum, svo að varla heyrist
lengur fuglasöngur. Um kvöldið voru 3 þrastarungar merktir,
731509-731511. Hreiðrið var í skurðbakka við Hestsbúið.
7.7. í fjallinu ofan Mannamótsflatar fannst gamalt hrafnshreiður, sem
líklega hefur verið notað 1976. Uppistaðan í hreiðrinu var greinar
gaddavír og kindarifbein.
8.7. Þegar athugunarmaður var á göngu á melnum við Mávahlíð, heyrði
hann mikið krunk ofan úr fjalli og sá hvar hrafn var á flótta
undan smyrli. Hrafninn varð að marg setjast til að verja sig og
komst við illan leik burtu. Smyrilshreiður fannst í fjallinu og