Fjölrit RALA - 15.01.1980, Side 54

Fjölrit RALA - 15.01.1980, Side 54
50 b. Samdráttur i framleiðslu 1. Likantilraunir sýna, aó samdrætti i mjólkurframleióslu er mætt meö minni kjarnfóður- og áburðarkaupum auk fækkunar kúa, séu heygæði hin sömu og kjarnfóðurverð litið breytt. Ef jafnhliða samdrætti verður veruleg hækkun á kjarnfóðri, er svörun likansins sú, að áburðarnotkun er aukin en hætt er að nýta gripi til fullra afurða (sjá 5.2a). Ná má sömu framlegð fyrir kúabúió þrátt fyrir 10% sam- drátt i framleiðslu með þvi að auka heygæði, en þá má draga verulega úr kjarnfóðurnotkun og fækka kúm (sjá 5.2d). Er þá mióað við verðhlutföll kjarnfóóurs og áburðar 100/90, en framleiðslan verður alltaf kostnaðarsamari við hærra verðhlutfall. 2. Við leiðbeiningar til einstakra framleiðenda má með likan- prófunum fyrst finna þá uppskerusvörun túna og nýtingu kjarnfóðurs, sem svarar til reksturs búsins undanfarin ár, aó gefnum heygæðum, sem væntanlega eru þó misvel þekkt. Siðan má með frekari prófunum kanna, hvaða atriði hafa mest áhrif á hagkvæmni ákveðinnar ársframleiðslu mjólkur á búinu. Meó slikri samvinnu milli leiðbeinanda og framleiðanda ætti likanið að koma aó gagni v-ið greiningu á þvi, hvaða úrbætur i búrekstrinum gæfu framleiðanda mest í aðra hönd. c. Búskapartilraunir Við góóa nýtingu á gróffóðri og vió bestu heygæði, gera forsendur likansins ráð fyrir, að unnt sé að framleióa mjólk á heyi eingöngu eða þvi sem næst, án þess að meðal- ársnyt fari niður fyrir 3.000 litra. Lagt er til, að nokkrir bændur verði fengnir til þess að reyna þá búskaparaðferð og hagkvæmni þes.s aó framleiða mjólk án innflutts fóðurs.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.