Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 48
27. nóvember 2020 | 47. tbl. | 111. árg. dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000 SAND KORN MYND/AÐSEND LOKI Steypi- bað? 55 ára í bústað Björk Guðmundsdóttir fagnaði 55 ára afmæli síðast­ liðinn laugardag. Af því tilefni bauð hún í fámenna veislu í sumarbústað sínum. Björk hefur dvalið hér­ lendis á meðan á faraldrinum stendur og sést gjarnan úti að ganga í Vesturbænum þar sem hún býr, í skærgulri úlpu sem vekur hughrif um bjart vor og betri tíma. Björk eignaðist sitt fyrsta barna­ barn í ársbyrjun 2019 og hefur verið dugleg að fara út að ganga með krílið. Sonur Bjarkar Sindri Eldon Þórsson bjó ásamt eiginkonu sinni Morgan Johnson í Seattle en hjónin fluttu með son sinn aftur til Íslands á síðasta ári og búa nú í Vesturbænum þar sem stutt er fyrir Björk að fara og heimsækja ömmu­ snúðinn. MYND/FACEBOOK Loksins sturta Listakonan Bergljót Arnalds tók við 114 ára gömlu húsi fyrir rúmu ári. Allan þann tíma hafði aldrei verið sturta eða bað í húsinu en Bergljót réðist í það að brjóta niður skorstein með hjálp góðs fólks en það þurfti þrjá ein­ staklinga í að rífa þennan þrjóska skorstein niður. Nú er loks komin sturta sem Bergljót er alsæl með og birti af því tilefni þessa skemmtilegu mynd með orð­ unum: „Nú er hægt að baða sig 115 árum eftir að hús var byggt.“ n Gefðu gjöf frá frægustu hönnuðum heims Epal / Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.