Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 45
Þ essa vikuna er spáð fyrir Birgittu Haukdal söngkonu sem gefur út tvær nýjar bækur um Láru og Ljónsa fyrir jól. Birgitta er að sjálfsögðu Ljónynja, fædd í lok júlímánaðar. Það eru ófáir söngvarar í Ljónsmerkinu, það getur ekki bara verið til­ viljun. Drottningarnar Madonna, Demi Lov­ ato, Jennifer Lopez og Whitney Houston eru allar fæddar í Ljónsmerkinu! Það er því óhætt að segja að Ljónin séu listræn, framsækin og ófeimin við sviðsljósið. Ljónið er eldmerki og því mjög ástríðufullt um allt sem það tekur sér fyrir hendur. Það getur verið örlítið þrjóskt en er líka mjög örlátt og tryggt. Fjarki í bikurum Hugleiðsla | Íhugun | Sinnuleysi | Endurmat Þetta spil er góð áminning um að gefa sér góðan tíma í að vega og meta hlutina. Ef einhver er að semja við þig, bjóða þér hlutverk eða starf skaltu gefa þér tíma til þess að hugleiða hvað sé best fyrir þig á þessari stundu. Ljónið er með mikinn drifkraft og á það kannski til að ætla sér um of. Það er mögulega góð æfing að afþakka verkefni eða kalla eftir liðsauka til þess að gæta að and- legri hlið og varðveita sjálfið. Fjarki í stöfum Hátíð | Gleði | Sátt | Slökun | Heimkoma Það er kannski ekki skrítið að spilið boði hátíð, gleði og slökun því senn koma jól. Þú ert mikið jólabarn og elskar að eiga notalegar stundir með fólkinu þínu og það er sér- staklega kærkomið þessi jól. Þetta ár hefur tekið virki- lega á og við erum öll tilbúin í aðeins auðveldari tíma. Þetta spil er boð um það, við megum svo sannarlega hlakka til betri tíma. Það segir líka að þú sért að fara fagna einhverju skemmtilegu. Markmið mun sigla í höfn og áþreifanlegur ávinningur er í kortunum. Ég sé mikla hreiðurgerð og framkvæmdir sem klárast korter í jól. Átta í myntum Lærlingur | Endurtekin verkefni | Leikni | Hæfniþróun Það eru virkilega spennandi tímar fram undan en spilið segir mér að þú sért að fara sérhæfa þig í einhverju sem mun opna nýjar dyr. Nám eða námskeið sem þig hefur Skilaboð frá spákonunni Ef maður rýnir í tölfræðina þá færðu 4+4 og 8 í spil- unum þínum sem er 8 í tvígang og mikil happatala. Óvænt heppni í vændum. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Birgitta Haukdal SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 27.11. – 03.12. Framkvæmdir sem klárast korter í jól… Orkumikið par fullt af eldmóði MYND/SIGTRYGGUR ARI stjörnurnarSPÁÐ Í Áhrifavaldurinn Brynjólfur Löve Mogens­son og íþróttakonan Edda Falak hafa ver­ið að stinga saman nefjum undanfarið. Við ákváðum að skoða hvernig þetta glænýja par á saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Brynjólfur, betur þekktur sem Binni, er Ljón og Edda er Bogmaður. Þessi merki eiga margt sameiginlegt og er pörun þeirra sérstaklega orkumikil og skemmtileg. Bogmaðurinn heillast að geislandi sjálfsöryggi Ljónsins og hefur dá­ læti af hversu stutt er í dramatíkina hjá elsku Ljóninu. Bogmaðurinn er meiri heimspekingur og byrjar oft áhugaverð samtöl og fær Ljónið til að hugsa um lífið og tilveruna. Ljónið og Bogmaðurinn eru bæði bjartsýn, gjafmild, áhyggjulaus og full af eldmóði. Þau eru bæði gædd persónutöfrum og spennufíkl­ ar. En þau geta einnig bæði verið óþolinmóð og geðvond. Það hættulegasta við þessa pörun er hrottafengin hreinskilni Bogmannsins, hann á það til að segja sína skoðun, sama þó hún særi. n Brynjólfur Löve Mogensson Ljón 17. ágúst 1989 n Hugmyndaríkur n Ástríðufullur n Hlýr n Glaður n Hrokafullur n Ósveigjanlegur MYND/SAMSETT Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Æ, þér hreinlega leiðist þessa vikuna og finnst lítill tilgangur í að fara úr náttfötunum. Þú getur ekki beðið eftir að fá rútínu á ný þar sem þú mátt mæta á vinnustaðinn og breyta um umhverfi. Þú ert búin að kaupa og pakka inn flestum jólagjöfunum og hugsar bara: Hvað get ég gert núna? Lestu bók eða njóttu útiveru, kæri Hrútur. Naut 20.04. – 20.05. Líf þitt er svolítið púsluspil þessa dagana. Þér líður eins og persónu í Da Vinci-lyklinum að púsla og passa að allt gangi upp hjá þér og þú sérð sömu töluna úti um allt, hvað þýðir það? Kannski væri gott ráð að biðja um aðstoð. Tvíburi 21.05. – 21.06. Það reynir á Tvíburann þessa vikuna, óvenju mikið að gera og ekki nógu margar klukkustundir í deginum. Við erum því hér til að hvetja þig áfram og segja þér að þú stendur þig eins og hetja. Þú munt klárlega uppskera eftir þessa erfiðisvinnu! Krabbi 22.06. – 22.07. Þér líður ekki alveg nógu vel í skrokknum þessa vikuna og ekki er kuldinn að hjálpa. Við mælum með að þú náir þér í gott jóga- eða styrktar-app til þess að mýkja liðina á ný því þessi óþægindi gætu farið aðeins í skapið á þér. Ljón 23.07. – 22.08. Þú ert gjafmilt Ljón, fólkið þitt hefur lært það í gegnum tíðina og er því ófeimið við að biðja um ýmsa greiða. En þessa vikuna þá æfir þú þig í að setja mörk og segir kurteislega „nei það hentar því miður ekki núna“. Meyja 23.08. – 22.09. Einstakur rómans í loftinu, einhver gamall vinur eða nýjar tilfinn- ingar. Þú bjóst ekki við þessu og veist ekki alveg hvernig þú átt að bregðast við. Ástin er skemmtileg, leyfðu þér að leika þér aðeins með þessar tilfinningar. Vog 23.09. – 22.10. Vogin er þekkt fyrir heppni, týpan sem finnur oft fjögurra laufa smára og vinnur allavega einu sinni í Lottó yfir ævina. Þessa vikuna eru þessir töfrar einstak- lega sterkir, ýmislegt óvænt kemur til þín og góðar lausnir koma auð- veldlega. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Betra seint en aldrei er mottó vikunnar. Þú nærð að vera óvenju afkastamikill og klárar mörg verk- efni sem hafa setið á hakanum. Þetta er mikill léttir og býður upp á ástæðu til þess að fagna og gera vel við sig. Bogmaður 22.11. – 21.12. Þú minnir helst á eitthvað skraut- legt sirkus-atriði þar sem þú heldur fjölda bolta á lofti í einu og hleypur í hringi til þess að missa þá ekki. Mikill dugnaður heltekur þig og þér gengur óvenju vel að úthluta verkefnum og ert með gott skipulag. Þú ert alveg með þetta! Steingeit 22.12. – 19.01. Einhver þér nærkominn reynir að aðstoða þig þessa vikuna, leið- beina og hjálpa þér. Þú er samt ekki móttækileg og upplifir þetta sem afskiptasemi. Ég get þetta alveg sjálf/ur er þér efst í huga. Mundu bara að þetta kemur frá góðum stað. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Vatnsberinn hverfur af yfirborði jarðar er hann sekkur sér í vinnu og verkefni. Ert þú mögulega að forðast að horfast í augu við eitt- hvað annað sem er í gangi heima við? Meira að segja yfirmaður þinn reynir að senda þig heim… Fiskur 19.02. – 20.03. Það er mikill innblástur hjá Fisknum þessa vikuna. Þú finnur nýjan kraft og sérð skýrar en nokkurn tímann fyrr hvað þú vilt og hvernig þú kemst þangað. Vikan fer í að sjá fyrir sér hlutina og kalla til sín óskir og drauma. lengi dreymt um verður að raunveruleika. Þetta tengist einhverri atvinnu sem þú ert þegar að sinna en langar að þróa þig áfram í. Spilið segir að þú sért á réttri braut og að þessi leið muni skila sér vel fjárhagslega. Edda Falak Yamak Bogmaður 14. desember 1991 n Gjafmild n Góður húmor n Lífsglöð n Ákveðin n Heiðvirð n Óþolinmóð FÓKUS 45DV 27. NÓVEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.