Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 20
20 EYJAN Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is S tjórnmálaflokkarnir á Alþingi eru allir sam­mála um eitt mál, sem er sívaxandi framlög úr rík­ issjóði til stjórnmálaflokk­ anna óháð stöðu ríkissjóðs á hverjum tíma.“ Þannig komst Gunnar Birgisson, fyrrver­ andi bæjarstjóri og alþingis­ maður Sjálfstæðisflokks, að orði í grein í Morgunblaðinu á laugardaginn var. Þar vísar hann til þess að flokkarnir hafa fyrir löngu sammælst um að láta skattgreiðendur standa straum af kostnaði við rekstur þeirra og samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 728,2 millj­ ónum króna til stjórnmála­ flokkanna. Í lok kjörtíma­ bilsins verður ríkisstyrkurinn þá kominn upp í 2,8 milljarða króna frá kosningum 2017. Samhliða síhækkandi ríkis­ styrkjum til flokkanna hefur félagsstarfi þeirra hnignað mjög. Ef til vill hefur um of verið einblínt í umræðu um þessi mál á hið fjárhagslega framlag en framlag flokks­ manna í formi þátttöku í stefnumótun og hugmynda­ fræðilegri vinnu er í reynd mun mikilvægara. „Aðstoðarmenn á hverjum fingri“ Í áðurnefndri grein Gunnars Birgissonar segir hann starf þingmanna orðið að þægilegri og vel launaðri innivinnu eins og hann orðar það „ásamt upphitaðri skrifstofu með að­ stoðarmenn á hverjum fingri“. Alls eru pólitískir aðstoðar­ menn þingmanna orðnir 28 talsins en þeim hefur fjölgað hratt á síðustu árum. Flokkur fólksins á met í fjölda aðstoðarmanna per þingmenn en pólitískir aðstoð­ armenn hans eru þrír á sama tíma og þingmennirnir eru aðeins tveir. En ekki er nóg með að þingmenn hafi sífellt fleiri pólitíska aðstoðarmenn. Sérhver ráðherra er kominn með tvo aðstoðarmenn og í forsætisráðuneytinu hjá Katr­ ínu Jakobsdóttur eru að auki starfandi þrír „aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar“. Þessir fimm pólitísku aðstoðar­ menn í kringum Katrínu eru allir konur svo ekki er gætt að kynjajafnvægi þar þó svo að einn aðstoðarmaðurinn eigi sérstaklega að hafa jafnréttis­ mál á sinni könnu. Gagnrýni á formanninn Nærri þrjú hundruð nefndir hafa verið settar á laggirnar á þessu kjörtímabili sem Gunnar telur til marks um ákvarðanafælni stjórnmála­ manna. Afleiðingin sé sú að embættismennirnir ráði för. Gunnar skrifar: „Ég sæi til dæmis fyrir mér, sem góða tilhögun, að fjármálaráðherr­ ann yrði ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu ...“ Hér birtist allnokkur gagn­ rýni Gunnars á Bjarna Bene­ diktsson, formann Sjálfstæðis­ flokksins, en mikil óánægja er meðal þungavigtarmanna í flokknum með að Gunnar skyldi ekki hafa verið skip­ aður stjórnarformaður Betri samgangna sem er félag ríkis og sveitarfélaga um uppbygg­ ingu í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Í sam­ tölum hafa ýmsir þessara manna bent á að að tæplega hafi nokkur Sjálfstæðismað­ ur meiri reynslu í verklegum framkvæmdum en Gunnar Birgisson. Í stað Gunnars varð Árni M. Mathiesen, dýralækn­ ir og fyrrverandi fjármálaráð­ herra, fyrir valinu, en gárung­ arnir segja það allt í stíl enda séu hvort tveggja samgöngu­ ráðherra og vegamálastjóri dýralæknar. Gunnar er aftur á móti doktor í jarðvegsverk­ fræði auk þess að hafa rekið verktakafyrirtæki um ára­ bil og staðið að uppbyggingu nokkurra stærstu íbúðahverfa höfuðborgarsvæðisins. Samdauna embættismannakerfinu Grein Gunnars Birgissonar er ef til vill áminning um það hversu mjög stjórnmálin hafa fjarlægst þjóðlífið og orðið samdauna kerfinu. Fáir þing­ menn virðast byggja skoðanir sínar á ígrundaðri hugmynda­ fræði – þeir nálgast viðfangs­ efnin æ frekar líkt og þeir væru embættismenn. Í málefnum er tengjast farsóttinni hefur gætt mjög ríkrar tilhneigingar til að færa sérfræðingum de facto ákvörðunarvald um mjög íþyngjandi aðgerðir. Alls staðar eru embættismenn í forgrunni en fáir stjórnmála­ menn hafa stigið fram í þeirri umræðu. Það er sem stjórn­ málastéttin – pólitískt kjörnir fulltrúar og flokkur aðstoðar­ manna þeirra – samsami sig æ meira embættismanna­ kerfinu. Líflausar stofnanir Ein aðalröksemd gegn opin­ berum styrkjum til stjórn­ málaflokka hér á árum áður var að ekki mætti neyða skattgreiðendur til að styrkja stjórnmálaflokka sem þeir væru andsnúnir. Slíkt væri beinlínis ósiðlegt og gengi gegn grundvallarhugmynd­ um lýðræðisins. Sjónarmið af þessu tagi heyrast varla á okkar tímum og kannski er það merki um það hversu lítt umræðan stjórnast af hug­ myndafræði. Við blasir að opinber fjár­ stuðningur við flokkana og ráðning á sjötta tug póli­ tískra aðstoðarmanna hefur ekki einasta orðið til þess að flokksmenn leggja miklu síður fé til flokkanna heldur hefur flokksstarfi líka hnign­ að mjög. Flokkarnir eru ekki lengur fjöldahreyfingar – þeir draga miklu frekar dám af ríkisstofnunum. Lýðræðinu hætta búin? Í lýðræðisríki þurfa ólíkar hugmyndastefnur að mætast í rökræðum. Önnur vogarskál­ in rís en hin fellur, allt eftir atorku og snilli talsmanna stefnanna. Hreinskiptnar um­ ræður um grundvallarrök eru forsenda sáttar og þar með friðar í samfélaginu. Þessi umræða þarf að fara fram á vettvangi frjálsra félagasam­ taka – stjórnmálaflokka – þar sem stefnan er mótuð. Því má velta upp hvort lýð­ ræðinu hér á landi sé ekki hætta búin vegna þess hversu veikir stjórnmálaflokkarnir eru orðnir félagslega. Stund­ um hefur því verið fleygt að ríkisrekstur kirkjunnar hafi gert hana að lífvana stofnun og margir því krafist aðskiln­ aðar ríkis og kirkju. Þetta mætti ef til vill heimfæra upp á pólitíkina og rétt að spyrja hvort ekki sé tímabært að aðskilja ríki og stjórnmála­ starf? n Nú er svo komið að flokkarnir eru að langmestu leyti reknir á kostnað ríkissjóðs. MYND/ANTON BRINK SKOÐANAPISTILL FLOKKAKERFIÐ SKATT- GREIÐENDUM DÝRKEYPT Beinn ríkisstyrkur til stjórnmálaflokka mun nema 2,8 milljörðum á þessu kjörtímabili. Félagslega hefur flokkunum hnignað verulega. Því má velta upp hvort lýð- ræðinu hér á landi sé ekki hætta búin vegna þess hversu veikir stjórnmála- flokkarnir eru orðnir félagslega. 27. NÓVEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.