Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Síða 45
Þ essa vikuna er spáð fyrir Birgittu Haukdal söngkonu sem gefur út tvær nýjar bækur um Láru og Ljónsa fyrir
jól. Birgitta er að sjálfsögðu Ljónynja, fædd
í lok júlímánaðar. Það eru ófáir söngvarar í
Ljónsmerkinu, það getur ekki bara verið til
viljun. Drottningarnar Madonna, Demi Lov
ato, Jennifer Lopez og Whitney Houston eru
allar fæddar í Ljónsmerkinu! Það er því óhætt
að segja að Ljónin séu listræn, framsækin og
ófeimin við sviðsljósið. Ljónið er eldmerki og
því mjög ástríðufullt um allt sem það tekur sér
fyrir hendur. Það getur verið örlítið þrjóskt en
er líka mjög örlátt og tryggt.
Fjarki í bikurum
Hugleiðsla | Íhugun | Sinnuleysi | Endurmat
Þetta spil er góð áminning um að gefa sér góðan tíma
í að vega og meta hlutina. Ef einhver er að semja við
þig, bjóða þér hlutverk eða starf skaltu gefa þér tíma til
þess að hugleiða hvað sé best fyrir þig á þessari stundu.
Ljónið er með mikinn drifkraft og á það kannski til að
ætla sér um of. Það er mögulega góð æfing að afþakka
verkefni eða kalla eftir liðsauka til þess að gæta að and-
legri hlið og varðveita sjálfið.
Fjarki í stöfum
Hátíð | Gleði | Sátt | Slökun | Heimkoma
Það er kannski ekki skrítið að spilið boði hátíð, gleði og
slökun því senn koma jól. Þú ert mikið jólabarn og elskar
að eiga notalegar stundir með fólkinu þínu og það er sér-
staklega kærkomið þessi jól. Þetta ár hefur tekið virki-
lega á og við erum öll tilbúin í aðeins auðveldari tíma.
Þetta spil er boð um það, við megum svo sannarlega
hlakka til betri tíma. Það segir líka að þú sért að fara
fagna einhverju skemmtilegu. Markmið mun sigla í höfn
og áþreifanlegur ávinningur er í kortunum. Ég sé mikla
hreiðurgerð og framkvæmdir sem klárast korter í jól.
Átta í myntum
Lærlingur | Endurtekin verkefni | Leikni | Hæfniþróun
Það eru virkilega spennandi tímar fram undan en spilið
segir mér að þú sért að fara sérhæfa þig í einhverju sem
mun opna nýjar dyr. Nám eða námskeið sem þig hefur
Skilaboð frá spákonunni
Ef maður rýnir í tölfræðina þá færðu 4+4 og 8 í spil-
unum þínum sem er 8 í tvígang og mikil happatala.
Óvænt heppni í vændum.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Birgitta Haukdal
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 27.11. – 03.12.
Framkvæmdir sem klárast korter í jól…
Orkumikið par fullt af eldmóði
MYND/SIGTRYGGUR ARI
stjörnurnarSPÁÐ Í
Áhrifavaldurinn Brynjólfur Löve Mogensson og íþróttakonan Edda Falak hafa verið að stinga saman nefjum undanfarið. Við
ákváðum að skoða hvernig þetta glænýja par á
saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Brynjólfur, betur þekktur sem Binni, er Ljón
og Edda er Bogmaður. Þessi merki eiga margt
sameiginlegt og er pörun þeirra sérstaklega
orkumikil og skemmtileg. Bogmaðurinn heillast
að geislandi sjálfsöryggi Ljónsins og hefur dá
læti af hversu stutt er í dramatíkina hjá elsku
Ljóninu. Bogmaðurinn er meiri heimspekingur
og byrjar oft áhugaverð samtöl og fær Ljónið til
að hugsa um lífið og tilveruna.
Ljónið og Bogmaðurinn eru bæði bjartsýn,
gjafmild, áhyggjulaus og full af eldmóði. Þau
eru bæði gædd persónutöfrum og spennufíkl
ar. En þau geta einnig bæði verið óþolinmóð og
geðvond. Það hættulegasta við þessa pörun er
hrottafengin hreinskilni Bogmannsins, hann
á það til að segja sína skoðun, sama þó hún
særi. n
Brynjólfur Löve Mogensson
Ljón
17. ágúst 1989
n Hugmyndaríkur
n Ástríðufullur
n Hlýr
n Glaður
n Hrokafullur
n Ósveigjanlegur
MYND/SAMSETT
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Æ, þér hreinlega leiðist þessa
vikuna og finnst lítill tilgangur í að
fara úr náttfötunum. Þú getur ekki
beðið eftir að fá rútínu á ný þar
sem þú mátt mæta á vinnustaðinn
og breyta um umhverfi. Þú ert búin
að kaupa og pakka inn flestum
jólagjöfunum og hugsar bara:
Hvað get ég gert núna? Lestu bók
eða njóttu útiveru, kæri Hrútur.
Naut
20.04. – 20.05.
Líf þitt er svolítið púsluspil þessa
dagana. Þér líður eins og persónu
í Da Vinci-lyklinum að púsla og
passa að allt gangi upp hjá þér og
þú sérð sömu töluna úti um allt,
hvað þýðir það? Kannski væri gott
ráð að biðja um aðstoð.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Það reynir á Tvíburann þessa
vikuna, óvenju mikið að gera og
ekki nógu margar klukkustundir
í deginum. Við erum því hér til
að hvetja þig áfram og segja þér
að þú stendur þig eins og hetja.
Þú munt klárlega uppskera eftir
þessa erfiðisvinnu!
Krabbi
22.06. – 22.07.
Þér líður ekki alveg nógu vel í
skrokknum þessa vikuna og ekki
er kuldinn að hjálpa. Við mælum
með að þú náir þér í gott jóga- eða
styrktar-app til þess að mýkja
liðina á ný því þessi óþægindi
gætu farið aðeins í skapið á þér.
Ljón
23.07. – 22.08.
Þú ert gjafmilt Ljón, fólkið þitt
hefur lært það í gegnum tíðina
og er því ófeimið við að biðja um
ýmsa greiða. En þessa vikuna þá
æfir þú þig í að setja mörk og segir
kurteislega „nei það hentar því
miður ekki núna“.
Meyja
23.08. – 22.09.
Einstakur rómans í loftinu, einhver
gamall vinur eða nýjar tilfinn-
ingar. Þú bjóst ekki við þessu og
veist ekki alveg hvernig þú átt að
bregðast við. Ástin er skemmtileg,
leyfðu þér að leika þér aðeins með
þessar tilfinningar.
Vog
23.09. – 22.10.
Vogin er þekkt fyrir heppni,
týpan sem finnur oft fjögurra laufa
smára og vinnur allavega einu
sinni í Lottó yfir ævina. Þessa
vikuna eru þessir töfrar einstak-
lega sterkir, ýmislegt óvænt kemur
til þín og góðar lausnir koma auð-
veldlega.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Betra seint en aldrei er mottó
vikunnar. Þú nærð að vera óvenju
afkastamikill og klárar mörg verk-
efni sem hafa setið á hakanum.
Þetta er mikill léttir og býður upp
á ástæðu til þess að fagna og gera
vel við sig.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Þú minnir helst á eitthvað skraut-
legt sirkus-atriði þar sem þú
heldur fjölda bolta á lofti í einu og
hleypur í hringi til þess að missa
þá ekki. Mikill dugnaður heltekur
þig og þér gengur óvenju vel að
úthluta verkefnum og ert með
gott skipulag. Þú ert alveg með
þetta!
Steingeit
22.12. – 19.01.
Einhver þér nærkominn reynir að
aðstoða þig þessa vikuna, leið-
beina og hjálpa þér. Þú er samt
ekki móttækileg og upplifir þetta
sem afskiptasemi. Ég get þetta
alveg sjálf/ur er þér efst í huga.
Mundu bara að þetta kemur frá
góðum stað.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Vatnsberinn hverfur af yfirborði
jarðar er hann sekkur sér í vinnu
og verkefni. Ert þú mögulega að
forðast að horfast í augu við eitt-
hvað annað sem er í gangi heima
við? Meira að segja yfirmaður
þinn reynir að senda þig heim…
Fiskur
19.02. – 20.03.
Það er mikill innblástur hjá
Fisknum þessa vikuna. Þú finnur
nýjan kraft og sérð skýrar en
nokkurn tímann fyrr hvað þú vilt
og hvernig þú kemst þangað.
Vikan fer í að sjá fyrir sér hlutina
og kalla til sín óskir og drauma.
lengi dreymt um verður að raunveruleika. Þetta tengist
einhverri atvinnu sem þú ert þegar að sinna en langar
að þróa þig áfram í. Spilið segir að þú sért á réttri braut
og að þessi leið muni skila sér vel fjárhagslega.
Edda Falak Yamak
Bogmaður
14. desember 1991
n Gjafmild
n Góður húmor
n Lífsglöð
n Ákveðin
n Heiðvirð
n Óþolinmóð
FÓKUS 45DV 27. NÓVEMBER 2020