Fréttablaðið - 10.12.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0
fyrir jólabörn á öllum aldri
Þú finnur réttu jólagjöfina á elko.is
VIÐSKIPTI Kortavelta veitingageir-
ans, sem COVID-19 hefur leikið
grátt, dróst saman um 22 milljarða
að raunvirði frá mars til október
á milli ára, þar af um nær 19 millj-
arða frá erlendum ferðamönnum.
Þúsundir starfa hafa glatast í veit-
ingageiranum þrátt fyrir hin ýmsu
úrræði yfirvalda til að stemma stigu
við auknu atvinnuleysi.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
forstöðumaður ef nahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins, segir að
um þriðjungur tekna veitingageir-
ans undanfarin ár hafi komið frá
erlendum ferðamönnum. Rekstur-
inn sé því nokkuð háður komu
erlendra ferðamanna enda megi
f lokka starfsemina sem hluta af
ferðaþjónustu. – hvj / sjá síðu 12
22 milljarða
samdráttur
Anna Hrefna
Ingimundar-
dóttir, forstöðu-
maður hjá SA
Flestir finna hálku allt til foráttu og svellið hefur í gegnum tíðina fellt margan manninn með slæmum af leiðingum. Blessuð börnin eru hins vegar snillingar í að búa sér til skemmtilega leiki
úr leiðinlegum aðstæðum. Þessi stúlka skemmti sér til að mynda konunglega þegar hún renndi sér á maganum á klaka sem hafði myndast í Hamraborg í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNMÁL Meirihluti fjárlaga-
nefndar leggur til að kveðið verði á
um 242,5 milljóna framlag til kúa-
bænda og 727,5 milljónir til sauð-
fjárbænda vegna fjölbreyttra áhrifa
heimsfaraldurs kórónaveiru.
Í nefndaráliti meirihlutans sem
birt var á vef Alþingis í gærkvöldi
segir að dregið hafi úr eftirspurn
á markaði vegna verulegrar fækk-
unar ferðamanna en samdrátturinn
jafngildi rúmlega 30 þúsund færri
neytendum.
Í nefndarálitinu segir að tekjur
ríkissjóðs haf i breyst á þeim
tveimur mánuðum sem liðnir eru
frá framlagningu frumvarpsins.
Nettóáhrifin séu þó einungis 162
milljónir króna til lækkunar.
Meirihlutinn leggur til rúmlega
55 milljarða hækkun útgjalda.
Þyngst vega 19,8 milljarðar vegna
viðspyrnustyrkja og 6 milljarðar
vegna framlengingar á hlutabóta-
leið.
Meðal annar ra brey tingar-
tillagna er tillaga um að 1,3 millj-
örðum verði varið til f jölgunar
hjúkrunarrýma og að sama fjárhæð
fari á vábirgðalið hjá sóttvarna-
lækni til að unnt verði að kaupa
bóluefni gegn COVID-19 á næsta
ári. Verja á tæpum 200 milljónum
til öryggis- og varnarmála vegna
netöryggismála, 25 milljónum til
samstarfsverkefnis Persónuverndar
og Sýslumannsins á Norðurlandi
eystra um þjónustuver á Húsavík og
um 17 milljónum til Umboðsmanns
Alþingis vegna frumkvæðisat-
hugana og launaðs leyfis umboðs-
manns.
Sóknargjöld hækka um 100
k rónu r sa m k væmt t i l lög u m
nefndarinnar, fara úr 980 krónum
í 1.080 krónur. Í nefndaráliti segir
að þetta leiði til um 280 milljóna
króna hækkunar útgjalda en á móti
komi lítils háttar fækkun fólks í trú-
félögum sem vegur 46 milljónir til
lækkunar.
Í nefndarálitinu kemur einnig
fram að endurhæfingarlífeyris-
þegum hafi fjölgað um 25 prósent
en í forsendum fjárlagafrumvarps-
ins var gert ráð fyrir 2,5 prósenta
fjölgun. Hefur þetta í för með sér
2,6 milljarða hækkun á fram-
lögum vegna endurhæfingarlíf-
eyris. „Áhersla hefur verið að beina
þeim sem kostur er, sérstaklega
ungu fólki, fyrst í endurhæfingu til
að freista þess að draga úr nýgengi
örorku,“ segir í nefndaráliti meiri-
hlutans.
Fram kemur í nefndarálitinu að
ferðakostnaður ráðuneyta og stofn-
ana hafi lækkað um 1,8 milljarða,
eða 60 prósent, á fyrstu níu mán-
uðum yfirstandandi árs, saman-
borið við árið 2019. Því er lagt til að
framlög vegna ferðalaga lækki um 2
milljarða á næsta ári.
Þá er að lokum lagt til að 5 millj-
arðar verði lagðir í almennan vara-
sjóð til að mæta óvæntum útgjöld-
um vegna COVID-19 á næsta ári. – aá
Hækka útgjöld um 55 milljarða
Bændur fá tæplega milljarð vegna áhrifa heimsfaraldursins samkvæmt tillögum meirihluta fjárlaga-
nefndar. Fjárfrekustu breytingar nefndarinnar eru vegna viðspyrnustyrkja og framlengingar á hluta-
bótaleið. Sóknargjöld hækka og framlög til endurhæfingarlífeyris hækka vegna mikillar vanáætlunar.
60%
lækkun varð á ferðakostn-
aði ráðuneyta og stofnana á
milli ára.