Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 38
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Það getur verið kúnst að halda í við nýjustu tísku og allar tískuöldurnar sem skella á okkur tvisvar sinnum á ári hverju. Sumir svokallaðir tísku- spekúlantar lifa og hrærast í þessu umhverfi, birta myndir af sér á samfélagsmiðlum, mæta á tísku- sýningar og eru ávallt með puttann á púlsinum þegar nýir straumar berast yfir hafið. Aðrir kjósa klassískari fatnað úr einföldum og margreyndum sniðum og láta þar við sitja. Flest okkar eru þarna ein- hvers staðar á meðalrófinu. Sjö ára tískukóngur En það er eitt nafn sem kemur hvað oftast upp þegar saga tískunnar er skoðuð og er um að ræða einn best krýnda konung tískunnar sem og Frakklands á sautjándu öld; Lúðvík XIV. sjálfan. Einungis þremur árum eftir að valdatíð Lúðvíks hófst setti hann sitt fyrsta mark á tískuna sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á tísku- strauma víðs vegar um Evrópu. Um er að ræða svokallaða cravat klúta, sem eru eins konar fyrirrennarar hálsbindisins eins og við þekkjum það í dag. Lúðvík XIV. byrjaði að skreyta sig með þessum fíngerðu hálsklútum að fordæmi króa- tískra málaliða í franska hernum, einungis sjö ára gamall. Stuttu síðar fór tískufyrirbærið eins og eldur um sinu um alla Evr- ópu og tískumógúlar kepptust við að binda upp fínofna blúnduklúta eftir kúnstarinnar reglum í slaufur og fallega hnúta. Skallaskömm Árið 1655, einungis 17 ára gamall, fór Lúðvík að missa hárið. Á þess- um tíma þegar sárasóttar faraldur reið yfir Evrópu með tilheyrandi skallablettum og hármissi, þótti það töluverð skömm að vera hár- laus, sérstaklega svo ungur. Hárkollur þessa tíma voru ekki mest eggjandi aukahlutur sem til var, enda einungis til út af sárri nauðsyn. En þegar Lúðvík okkar fór að missa hárið batnaði hár- kollugerð til muna. Lúðvík réði til sín alla færustu hárkollumeistar- ana og í kjölfarið tók sig upp æði sem breiddist hratt um Evrópu. Tískukonungurinn sjálfur Hálsbindi, hárkollur og hátíska. Öll þessi atriði eiga einum vel klæddum manni að þakka vinsæld- ir sínar. Engum öðrum en tískukónginum Lúðvíki fjórtánda, konungi Frakklands (1643-1715). Lúðvík XIV. á málverki frá árinu 1701 eftir franska listamanninn Hyacinthe Rigaud. Hér má sjá Lúðvík skarta rauðum hælum, en frægt var að allir sem áttu náð Frakklandskonungs skörtuðu rauðum hælum og voru duglegir að láta á því bera í málverkum af sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Frönsk tíska á 17. öld einkenndist af litadýrð, mynstrum og áberandi ofhleðslu líkt og barokkið. Hér má sjá franskan 17. aldar tísku­ mógúl sem tollir í tískunni og mjaltakonu í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Hér er aðalskona í glæsilegum, lit­ ríkum og yfirgengilegum fatnaði í kringum 1692. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fullfrískt aðalsfólk sem bar ekki nokkur merki um skammarlega skallabletti eða hækkandi kollvik, kepptist við að skarta þessari nýju tísku. Viðskiptatækifæri Áður en Lúðvík tók við krúnunni var hátískan nokkuð stöðugt fyrir- bæri sem breyttist hægt. Spænskur stíll var vinsæll hjá efri stéttinni í Evrópu og einkenndist af ein- földum, íburðarlausum og svörtum flíkum. Þá var fatnaður efri stéttarinnar að miklu leyti innfluttur frá Spáni. Tískan breyttist hægt og hástéttin breytti sjaldan til í klæðnaði nema til að haga seglum eftir vindum og veðri. Svart var einfaldlega í tísku. Bannað að vera púkó Lúðvík bjó hins vegar yfir glöggu auga fyrir bæði tísku og við- skiptum og sá hér tækifæri. Með hjálp fjármálaráðherra síns, Jean- Babtiste Colbert, setti hann á stofn víðfeðman textíliðnað í Frakklandi sem framleiddi litríkar og marg- brotnar flíkur og aukahluti sem höfðuðu til aðalsstéttarinnar. Ekki nóg með það, heldur bannaði hann innflutning á erlendum textíl, sem tryggði það að franskir þegnar vörðu fé sínu í franskan vefnað frekar en innfluttar flíkur. Í Versölum krafðist Lúðvík þess að hirðin klæddi sig eftir ströngum reglum og heimtaði að aðals- fólk skartaði eingöngu nýjustu tísku. Til þess að tryggja framboð af nýjum og spennandi flíkum tilskipuðu Colbert og Lúðvík að ný tíska yrði kynnt tvisvar á ári, að sumri og að vetri, með nýjum vefnaði og aukahlutum eins og sólhlífum, blævængjum, feldum og skikkjum. Lúðvík hugkvæmdist það einnig að auglýsa nýjustu tísku á hvorri önn fyrir sig og lét búa til sérstakar tískuprentplötur með frönskum fatnaði sem hægt var að kaupa bæði innanlands og erlendis. Brátt voru önnur lönd farin að leika þetta eftir franska tískukónginum enda komu margir auga á við- skiptatækifæri og leið til þess að örva innlent hagkerfi í þessu nýja fyrirkomulagi, sem fólst í því að hástéttartíska fyrndist ósjálfrátt. Undir lok valdatíðar Lúðvíks starfaði um þriðjungur verka- manna í París í textíl- og tísku- iðnaðinum og keypti allur helsti og best klæddi franski aðallinn nýjan franskan vefnað á hverri tískuönn. Enn þann dag í dag eru Frakkar frömuðir þegar kemur að hátísku og halda arfleifð Lúðvíks fjór- tánda lifandi í tískutímaritum og hátískufatnaði. JÓLA-FÓLK Viltu þú auglýsa í mest lesna blaði landsins? Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins. Sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is Alla föstudaga fram að jólum verður Fólk Fréttablaðsins stútfullt af smákökum, kertaljósum, konfekti, mandarínum, jólamat, jólatísku, jólasögum og jólastemningu heima og að heiman. Vertu með í jólaskapi og komdu jólaskilaboðum þínum beint til lesenda. FERMINGARGJAFIR Fimmtudagi n 15. rs gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.