Fréttablaðið - 10.12.2020, Qupperneq 16
Í þýskumælandi löndum og þá sérstaklega í Ölpunum er gjarnan talað um bæjar- eða borgarfjall (Hausberg), sem flestir í Reykja-vík myndu telja vera Esjuna. Annað fjall sem ekki er síður í uppáhaldi borgarbúa er Keilir á Reykjanesskaga. Hann blasir við suður af
Reykjavík og sést til dæmis vel þegar keyrt er eftir
Suðurgötu út í Skerjafjörð. Eins og nafnið gefur
til kynna er Keilir formfagur og 379 m hátt fjallið
gnæfir upp úr umhverfi sínu á miðju Reykjanesi.
Orðið keila kemur víða fyrir í íslensku máli. Þannig
eru keilulaga eldfjöll sem gjósa endurtekið eins
og til dæmis Eyjafjallajökull og Snæfellsjökull,
kölluð eldkeilur. Keilir er ekki slík eldkeila, heldur
myndaðist hann við stakt gos undir ísaldarjökli og
er gerður úr móbergi. Í stærðfræði er keila notað
yfir þrívítt form og rúmmál hennar táknað með
R=1/3*?*h*r^2. Í augnbotni kallast taugafrumur
sem skynja liti í miðgróf sjónhimnu keilur og fisk-
tegundin keila hefur löngum verið veidd við Ísland
og þykir herramannsmatur. Loks er keila vinsæl
íþrótt, ekki síst í Bandaríkjunum en einnig hér á
landi. Þá er reynt að skjóta niður 10 keilur með kúlu
og eru tvö skot í hverri umferð. Ef tekst að fella allar
keilurnar í fyrsta skoti kallast það fella en feykja ef
það næst í tveimur skotum.
Allir sem gengið hafa á Keili geta vottað að hann
er sannkölluð fjallafella og umhverfi hans sömu-
leiðis. Þetta er auðveld ganga en að vetri til er skyn-
samlegt að taka með mannbrodda og ísöxi. Aðeins
tekur hálftíma að aka að gönguleiðinni við Hösk-
uldsvelli og er fylgt ójöfnum malarslóða frá Vatns-
strandarvegi. Frá bílastæðinu tekur um það bil 45
mínútur að ganga að fjallinu og hálftíma upp fjallið.
Efst eru brekkur lausar í sér en útsýnið af hátind-
inum er frábært, til dæmis yfir höfuðborgina, eld-
brunninn Reykjanesskaga, Esju, Móskarðshnjúka
og Hengilssvæðið. Þegar haldið er heim er
hægt að stefna beint í austur yfir falleg mosa-
gróin hraun og komast eftir kindagötum
aftur að bílastæðinu. Skammt frá eru
spennandi fjöll eins og Trölladyngja en
einnig Spákonuvatn og litríkt hvera-
svæði Soganna, og auðvelt að kíkja
nánar á þær perlur í sömu ferð.
Fagurt fjall
sem er fella
Keilir er sérlega formfagurt fjall sem sést víða að, til dæmis frá höfuðborginni. MYND/ÓMB
Horft af Keili til norðurs að Reykjavík og Esju. MYND/TG
Keilir séður frá Sogum, litríku háhitasvæði skammt frá Keili. MYND/ÓMB
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð