Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 30

Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 30
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652. Pálmar Óli Magnússon, for­stjóri Daga, segir þjónustu fyrirtækisins við sveitarfélög eiga sér langa sögu. „Við höfum ávallt lagt áherslu á góða þjónustu við sveitarfélög. Sveitarfélög eru í síauknum mæli að úthýsa verkefnum eins og ræstingum í skólum, leikskólum og stofnunum og hafa sveitarfélög á höfuðborgar­ svæðinu verið til fyrirmyndar með það á undanförnum árum enda hefur sýnt sig að þau eru að spara mikla fjármuni með því og skerpa fókus. Þetta snýst alltaf um að nýta fjármuni sem best og jafnframt að hækka þjónustustigið við íbúa sveitarfélagsins.“ Fasteignaumsjón er einnig áber­ andi liður í starfsemi fyrirtækis­ ins. „Dagar hafa í áratugi þjónu­ stað sveitarfélög með ræstingar en einnig með aðra þjónustu svo sem hreingerningar, fasteignaumsjón og ýmsar sérlausnir. Í fasteigna­ umsjóninni erum við að sjá um allt frá minni háttar viðhaldi upp í að sjá um heildar rekstur og viðhald fasteignarinnar. Ræstingar eru stærsti þátturinn í okkar starf­ semi. Við urðum upphaflega til sem ræstingafyrirtæki en höfum þróast yfir í að sjá um að reka fast­ eignina þannig að fyrirtækin geti betur einbeitt sér að sinni kjarna­ starfsemi.“ Auknar kröfur um öryggi Pálmar segir ljóst að hlutverk og þjónusta ræstingafyrirtækja hafi sjaldan verið jafn áríðandi eins og um þessar mundir. „Nú á þessum viðsjárverðum tímum þá sjáum við að hreinlæti og ræstingar skipta miklu máli og þá er rétt verklag lykilatriðið til þess að skapa öruggt umhverfi. Einnig er það svo að ræstingar eru hluti af þeirri keðju sem tryggir hreinlega að samfélög séu starfhæf og má þar nefna að skólar, leikskólar, heil­ brigðisstofnanir og þar fram eftir götunum eru ekki starfhæf ef ekki er þrifið og sótthreinsað. Mikil­ vægt er fyrir sveitarfélög að hafa fagaðila til að sjá um þessi mál, þannig tryggja þau best öryggi allra.“ Að sögn Pálmars eru ræstingar eitt allra mikilvægasta atriðið sem fyrirtæki og stofnanir þurfa nú að huga að hvað öryggi starfsfólks og viðskiptavina snertir. „Nú þegar heimsfaraldur geisar er okkar hlutverk að tryggja okkar við­ skiptavinum öruggt og stöðugt vinnuumhverfi þannig að þau geti verið starfhæf. Starfsfólk fyrirtækja og stofnana og skjól­ stæðingar sveitarfélaga munu í framtíðinni gera skýra kröfu um öruggt umhverfi og mun það klár­ lega verða stór hluti af ímynd fyrir­ tækja og því munu þau fyrirtæki sem verða til fyrirmyndar í þeim efnum ná meiri og betri árangri í framtíðinni, verða eftirsóttari vinnuveitandi og þjónustuaðili. Við ætlum að hjálpa okkar við­ skiptavinum í þeirri vegferð og vera með öruggar lausnir í þeim efnum.“ Pálmar Óli segir mikinn metnað og vönduð vinnubrögð einkenna þjónustu Daga en fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum upp á öruggar lausnir sem uppfylla ströngustu kröfur. Ræstingar eru hluti af þeirri keðju sem tryggir hrein- lega að samfélög séu starfhæf og má þar nefna að skólar, leikskólar, heilbrigðisstofnanir og þar fram eftir götunum eru ekki starfhæf ef ekki er þrifið og sótthreinsað. Framhald af forsíðu ➛ Hér er hópur starfskvenna hjá Dögum en fyrirtækið leggur mikið upp úr því að skapa jákvætt vinnuumhverfi þar sem hrós og stuðningur við starfsfólk er í forgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Mikilvægt að hrósa Hjá Dögum er mikið lagt upp úr því að skapa góðan starfsanda og vingjarnlegt andrúmsloft á vinnu­ staðnum. „Við byggjum á gömlum og góðum grunni og höfum mikla reynslu. Varðandi framtíðina þá er mikil hreyfing á markaðinum og með hækkandi menntunar­ stigi verður vinnustaðurinn sífellt stærri hluti af upplifun starfs­ fólks. Það skiptir æ meira máli að vinnustaðurinn sé aðlaðandi, skemmtilegur og gefandi. Við erum að bregðast við þeirri þróun með að bjóða upp á lausnir sem hækka þjónustustig fyrirtækja og sveitarfélaga til starfsfólks og skjólstæðinga.“ Þá hafa Dagar einnig um árabil lagt mikla áherslu á jafnréttismál. „En auk þess að leggja áherslur á heilbrigðis­, umhverfis­ og öryggismál má ekki gleyma að nefna jafnréttismál en við höfum lagt mikla áherslu á þau um árabil. Jafnlaunavottunin var mikið framfaraskref, og við hjá Dögum erum ákaflega stolt af því að hafa árið 2013 verið eitt þriggja fyrstu fyrirtækja til að hljóta jafnlauna­ vottun VR sem þá var, og árið 2018 þá fengum við jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012. Þannig að við erum alltaf að leggja okkar af mörkum til að tryggja jafnrétti.“ Pálmar segir hrós og stuðning við starfsfólk lykilatriði í því að byggja upp góðan starfsanda. „Eitt af því sem við hjá Dögum gerum líka til að stuðla að jákvæðu vinnuumhverfi er að hrósa starfs­ fólki markvisst. Í hverjum mánuði veitum við einhverju af okkar starfsfólki viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Viðurkenningin heitir Gullna brosið og er þakklæti til starfsmanns fyrir framúrskarandi störf. Viðskiptavinir tilnefna starfsfólk og það er afskaplega gaman fyrir okkur að geta hrósað starfsfólki. Við leggjum mikla áherslu á að hrósa starfsfólki og veita því jákvæða endurgjöf og hjálpa því með það sem vantar upp á, hvort sem það er tungu­ málakunnátta eða önnur þjálfun og kennsla. Þetta er hluti af því að tengjast betur fólkinu okkar og sama með starfsmannasamtölin sem eru fastur liður hjá okkur.“ Í allri starfsemi Daga eru fjögur mikilvæg gildi höfð að leiðar­ ljósi. „Gildi Daga eru frumkvæði, virðing, ábyrgð og gæði. Við teljum það grunninn að okkar árangri en ásamt því reynum við að innleiða frumkvæði, gleði og hvatningu til starfsfólks og teljum það skipta miklu máli.“ 2 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.