Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 34
Við höfum
tvisvar
þurft að
aflýsa
hátíðinni
okkar, sem
var auð-
vitað enn
þá sárara í
seinna
skiptið.
Ég fékk því bæjar-
leyfi og húkkaði
mér far niður á Land-
vegamót. Þaðan tók ég
rútuna í bæinn.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Ég og ein frænka mín vorum alveg helteknar af þessari bíómynd enda var þetta fyrsta
risafantasían til að heilla okkur
svona mikið síðan Hringadrótt-
inssaga kom út á kvikmynda-
formi. Þegar frænka mín sendi mér
skilaboð um að á Víkingahátíðinni
í Hafnarfirði væri staddur maður
sem seldi eftirlíkingar af gullpen-
ingunum úr Pirates of the Carib-
bean, þá varð ég komast í bæinn.“
Svo óheppilega vildi til að Salka
var þá stödd í sveit lengst uppi í
landi við Rangá og það var enginn
á leið í bæinn. „Ég fékk því bæjar-
leyfi og húkkaði mér far niður á
Landvegamót. Þaðan tók ég rútuna
í bæinn. Þetta var vægast sagt
skemmtileg helgi. Ég féll algerlega
fyrir klæðaburðinum, hand-
verkinu og bardögunum enda eru
hliðstæðurnar nokkuð margar á
milli víkinga og sjóræningja, þegar
maður hugsar um það. Svo var
gaman að hitta áhugavert fólk frá
hinum ýmsu löndum. Auðvitað
keypti ég mér sjóræningjapening,
en þetta var svona aukavarningur
hjá einum silfursmið sem var með
allt annað í víkingastíl. Ég á pen-
inginn enn þá og held mikið upp
á hann. Síðan 2009 hef ég mætt á
allar Víkingahátíðir í Hafnarfirði,“
segir Salka.
Alltaf að bæta og fága
Það var svo árið 2012 sem Salka
flutti í Hafnarfjörðinn. „Ári síðar
mannaði ég mig upp í að slást í
hópinn með Rimmugýgi, sem er
víkingafélag í Hafnarfirðinum. Ég
byrjaði að æfa bogfimi og mætti
svo á bardagaæfingar árið eftir.“
Salka hefur, eins og flestir með-
limir Rimmugýgjar, komið sér upp
veglegum og fallegum búnaði sem
hún framleiðir sjálf að langmestu
leyti. Hún segist alltaf hafa verið
hrifin af einfaldleika og sjálfbærni.
„Þegar maður sökkvir sér í lestur
á fornleifafræði til að reyna að
endurskapa gamla hluti þá rekst
maður á alls konar tækni sem er
verið að nota enn þann dag í dag.
Það er gaman að reyna að herma
eftir þúsund ára gamalli flík og það
er líka gaman að reyna að skapa
eitthvað nýtt með gamalli tækni.
Þar er mjög fín lína sem við reynum
að feta í þessari lifandi sögumynd
víkingafélagsins sem við erum
alltaf að reyna að bæta og fága.“
Áhugamál mætast
Salka segist eiga mörg áhugamál
ásamt því að taka þátt í starfi
Rimmugýgjar. „Ég hef verið svolítið
allt í öllu og hef hoppað inn og út
í ástundun vegna annarra áhuga-
mála sem ég er alltaf að tengja
meira og meira inn í víkingalífið.
En það er klárlega félagsskapurinn
sem heldur manni í þessu. Í
Rimmugýgi er alls konar yndislegt
og ólíkt fólk sem á þetta sameigin-
lega áhugamál. Svo er fólk auðvitað
með mörg önnur áhugamál sem
skarast á milli meðlima sem gerir
félagsskapinn þéttari og betri.
Það eru hátt í 200 skráðir félagar
en kannski nær 80-100 sem eru
mikið virkir. Nokkuð jafnt er á
milli kynja í félagsskapnum, en
það eru áreiðanlega fleiri strákar á
bardagaæfingum. Við stelpurnar
komum þó sterkar þar inn inn á
milli.
Sjálf hef ég mikið tekið þátt í bar-
dagasýningum á víkingahátíðum
bæði sem bardagamaður og leikari.
Þetta er þá meira og minna spuni
með smá formála sem leiðir til
bardaga. Svo kemur niðurlag eftir á
eftir því hver vinnur bardagann.
Í bogfimi og handverki eru
kynjahlutföllin hins vegar nokk-
urn veginn jöfn. Þetta er stórt og
umfangsmikið áhugamál og fólk
annaðhvort sekkur sér alfarið í það
með fjölskyldu og öllu, eða tekur
pásur þegar það passar ekki inn á
milli annars í lífinu.“
Úr sjóræningjasögum
yfir í víkingafélag
Salka Jóhannsdóttir komst fyrst í tæri við víkingalífið árið
2009. Þá var hún 19 ára og gífurleg áhugamanneskja um
kvikmyndirnar víðfrægu um sjóræningjana sem halda til
á Karíbahafi, ræna þar og rupla og lenda í ævintýrum.
Salka í fullum bardagaskrúða á víkingahátíð í Árósum. MYND/CORNELIU PREOTU
Hér er Salka
með hestana
Ými og Adam,
sem er fyrir
aftan.
Hér eru þau Salka og Ármann.
Víkingalífið á faraldstímum
En hvernig ætli starfsemi félags-
ins hafi verið háttað í kringum
faraldurinn? Ætli víkingar séu að
hittast á Zoom-fundum í net-
heimum eins og við hin? „Þetta er
búið að vera svaka erfitt ár. Allir
handverkshittingar voru og hafa
verið felldir niður. Bardagaæfingar
héldu eitthvað áfram í vor og fram
á sumarið þegar útlit var gott og
plágan var í pásu, þegar við gátum
verið utandyra og haldið okkur úr
„spjótafæri“, en spjótin eru alltént
1,8-2,5 m að lengd. Við erum líka
með lokaðan Facebook-hóp og nú
nýlega stofnuðum við Snapchat-
grúppu. Það er gaman að sjá brot
úr lífi fólks sem maður er vanur
að eyða sumrinu með. Öllum
hátíðum sem við heimsækjum
úti í heimi var að sjálfsögðu aflýst
og við höfum tvisvar þurft að
aflýsa hátíðinni okkar, sem var
auðvitað enn þá sárara í seinna
skiptið. En ég er stolt af okkur að
taka faraldurinn alvarlega og gera
allt sem í okkar valdi stendur til
að sporna við útbreiðslu hans. Við
höfum á okkur gott orðspor í sam-
félaginu sem við metum mikils og
viljum halda til framtíðar.“
Stema Basic 750
154.900kr.
Stema Systema 750
305.000kr.
Ásafl er umboðs- og
þjónustuaðili Stema á Íslandi
Sjá fleiri kerrur á asafl.is
Eigum til varahluti á lager
sem henta í fleiri gerðir kerra
Kíktu við!
ÁSAFLÁsafl ehf. Hjallahrauni 2 220 Hafnarfirði Sími: 562 3833Opið 8:30 - 17 virka daga
asafl@asafl.is asafl.is
Stema kerrur - þýsk gæðavara
Ásafl hafnfirskt gæðafyrirtæki :)
Kerrur af öllum
stærðum og
gerðum
6 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR