Harmonikublaðið - 01.05.2015, Síða 16

Harmonikublaðið - 01.05.2015, Síða 16
Er mikið um tónlistarmenn í fjölskyldunni? Nei, það er ekki mikið um það og þó, systir mín spilar á saxófón. Af hverju varð harmonikan fyrir valinu? Það var tónlistarkynning í Langholtsskólanum þegar ég var líklega átta ára. Þá sagði ég for- eldrum mínum að ég vildi læra á hljóðfæri. Eg var bara svo heppinn, að afi minn var til- búinn að styrkja mig í þessu. Hann keypti handa mér fyrstu harmonikuna og var til í að borga námið líka. Hann heitir Már Oskarsson og er mikill áhugamaður um harmonikuieik og einn af stofnendum Félags harmoniku- unnnenda í Reykjavík. Hvenær byrjaðir þú að læra? Fyrsti kennar- inn minn var Gunnar Kvaran, hann kenndi mér fyrstu þrjú árin. Síðan fór ég í Tónmennta- skóla Reykjavíkur og þar kenndi RússinnVa- dim Fjodorov. Hann kenndi mér í tvö ár, en fór þá úr landi. Helga Kristbjörg Guðmunds- dóttir tók við af Vadim og kenndi mér næstu tvö árin. Þá fór hún til Danmerkur í fram- haldsnám. Síðan hef ég verið í tímum hjá Halldóri Pétri Davíðssyni. Allt eru þetta mjög ólíkir kennarar. Á hvernig tónlist hlustar þú? Það er nú ekk- ert sérstakt, bara svona bland í poka. Stefnir þú á framhaldsnám í tónlist? Já, það kemur alveg til greina að skoða það í fram- tíðinni. Að Sólbeimum 44 í Langholtshverfinu í Reykjavík býr ungur harmoniku- leikari. A þessum svölu vordögum 2015, er hann að lesa undirprófíMennta- skólanum í Reykjavík, þar sem hann stundar nám. Hann er fœddur fyrir rúmum sautján árum í Reykjavík. Harmonikublaðið fór á stúfana, til að frœðast örlitið meira um Bergmann Ola Aðalsteinsson, sem vann sér það til frœgðar vorið 2013 að vera valinn af dómnefnd SIHU, Harmonikumeistar- inn 2013, í keppni sem framfór í húsakynnum Tónlistarskólans í Garðabœ. Hvað æfir þú þig mikið? Það er aðeins mis- jafnt en þegar maður tekur saman eftir vikuna er það trúlega nálægt einum klukkutíma á dag. Gætir þú hugsað þér að starfa við tónlist í firamtíðinni? Það er alveg inní myndinni. Það gæti verið gaman að vera með í hijómsveit, þar sem væru harmonika, saxófónn, básúna og trompett. Hvaða tegund af harmoniku ertu með núna? Núna er ég með eldgamla Tombolini hnapp- anikku. Eg skipti yfir í hnappa í fyrrasumar, en þangað til hafði ég verið með píanónikkur. Það gekk bara nokkuð vel að skipta. Hefur þú farið á harmonikumót? Neí, ég hef aldrei farið á harmonikumót, en tvisvar fór ég á nemendamót í Reykjaskóla í Hrúta- firði. Það var mjög skemmtilegt að vera þar og spila með öðrum nemendum á svipuðu reki og maður sjálfur. Við Ijúkum þessu spjalli og kveðjum Berg- mann Óla, sem snýr sér að dönskunni, sem hann á að taka próf í á næstu dögum. FH Bergmann Óli í keppninni Harmonikumeistarinn 2013. Ljósmynd: Sigurður Harðarson Ákall Góðir harmonikuleikarar og unnendur. Tónlistarsafn Islands tók til starfa að Hábraut 2 í Kópavogi í maí 2009. Hlutverk safnsins er að safna, skrá og miðla íslenskri tónmenningu eins og hún hefur þróast í gegnum aldirnar. Við sinnum hlutverki okkar m.a. með sýningum, fyrirlestrum og miðlun á vefnum í gagnagrunninum www.ismus.is og á heimasíðu safnsins www.tonlistarsafn.is. Reynslan segir okkur að á heimilisins innstu skúma- skotum liggja oft ómetanlegar sögulegar heimildir í formi ljósmynda, bréfa, muna og hljóðritana af ýmsum toga, allt frá gömlum stálþráðum, segul- 16 böndum, kassettum og jafnvel hljómplötum sem gerðar voru í einu eintaki. Vil ég með þessu skeyti senda ákall til þeirra er hugsanlega eiga eða vita um sögulegar heimildir af þessum toga að hafa samband við okkur og leyfa okkur að afrita til varðveislu, skráningar og jafnvel birtingar á vegum Tónlistarsafns Islands. Þannig verður „draslið“ að djásni. Með vinsemd, Bjarki Sveinbjörnsson Forstöðumaður Tónlistarsafns Islands ts@tonlistarsajn. is

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.