Harmonikublaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 21
Grettir Björnsson
Grettir Björnsson fæddist að Bjargi í Miðfirði
þann 2. maí 1931. Þar ólst hann upp til þriggja
ára aldurs, en flutti þá suður með móður sinni
og stjúpa. I ættum Grettis úir og grúir af tón-
listarfólki. Það er lífstíll Bjargsfólksins að leika á
hljóðfæri eða syngja. Tónlistarferill Grettis Björns-
sonar var glæsilegur. Hann hóf ungur að læra á
harmoniku og náði strax árangri, enda hæfileik-
arnir Iangt yfir meðallagi. Ungur að árum var
hann farinn að leika á dansleikjum, með sér mun
eldri mönnum og þurfti jafnvel ábyrgðarmenn
vegna ungs aldurs. Rúmlega tvítugur flutti hann
til Vancouver í Kanada þar sem hann dvaldist
næstu tíu árin. Eftir heimkomuna starfaði Grettir
við húsamálun, en hafði tónlistina sem aukabú-
grein. Hann lék meðal annars árum saman með
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar á Hótel Sögu.
Grettir lék inn á nokkrar hljómplötur, en okkur
finnst þær hafa verið of fáar. Grettir samdi dálítið
af lögum og hefur margt af því varðveist. Eitt af
því er skottísinn „Með bros á vör“ sem hér birtist.
Það á ágætlega við, því aldrei var langt í brosið
hjá Gretti Björnssyni. Grettir Björnsson var
kvæntur Ernu Geirsdóttur og eignuðust þau
fjögur börn. Þau hjón voru aufúsugestir á harm-
onikumótum árum saman. Grettir lést 20. októ-
ber 2005.
FH
Einnar nætur gaman
Fyrsta laugardag í sumri, þann
25. apríl var hagyrðingamót og
harmonikudansleikur á Egils-
stöðum. Fyrir þessu stóðu Jónas
Þór Jóhannsson tónlistarmaður
úr Harmonikufélagi Héraðsbúa,
Aðalsteinn Isfjörð, harmoniku-
leikari úr Harmonikufélagi
Þingeyinga og Friðrik Steingríms-
son hagyrðingur. Um 20 félagar
úr Harmonikufélagi Þingeyinga
ætluðu austur, en fækkaði, fyrir
vonda veðurspá. Tólf hugaðir
mættu þó í rútu Friðriks og höfðu
þeir meiri áhyggjur af aðsókn að
samkomunni en veðri. Ferðin
austur gekk vel og fögnuðu
menn, þegar Valaskjálf reyndist
fúll af gestum. Samkoman hófst
upp úr átta. Dagskráin var blanda
af tali og tónum. Aðalsteinn
Isfjörð lék frumsamin lög af sinni
alkunnu snilli og Jóhannes Sig-
fússon, Andrés Björnsson, Friðrik
Steingrímsson og Stefán Bogi
Sveinsson kváðust á undir stjórn
Kristjáns Magnússonar. Þeir voru
afar frjálslegir, köstuðu hnútum
hver að öðrum og viðruðu fjölda
málefna. Á undan og í hléi fluttu
tónlistarmenn gamanbragi,
meðal annars eftir Hákon Aðal-
steinsson. Þetta var allt mjög
gaman, salurinn fínn og á ballinu
léku blandaðar hljómsveitir fyrir
dansi. Það brast á um miðnætti,
eins og veðurstofan sagði, en við
fórum samt áhyggjulaus í háttinn.
Það hefur enginn áhyggjur, eftir
að hafa hlegið í tvo tíma, staupað
sig og dansað, við glimrandi
músík til tvö. Eftir ljúfa nótt á
lúxushótelinu Egilsstöðum,
lögðum við í hann, með fyrra
fallinu því Friðrik grunaði að
lokað yrði veginum á Jökuldal. A
Jökuldal var svo blint að vart sá
milli stika enda var honum lokað,
rétt eftir að við fórum hjá.
Vísur úr ferðinni:
Á austurleið ákvað ég að reyna að
fá menn til að kveðast á, sam-
kvæmt hefð, þó við værum fá og
byrjaði á þeim skrópasauðum,
sem afsökuðu sig með veikindum
og veðurspá, eða kvörtuðu um
kulda í rútunni.
Þegar vond er veðurspá
menn verða stundum hrœddir.
Afhmðslu suma hljóp því á
og heima sitja mœddir.
Fia
Þegar austur á fjöllin kom, spurði
einhver um nýjustu veðurspána
og Friðrik vissi allt um hana.
Efiir okkar gleðigeim
gengur fátt í haginn.
I kafaldshyl við komumst heim
kannske á þriðjudaginn.
Friðrík
Við þetta datt einhverjum í hug
að við yrðum veðurteppt og eru
næstu vísur úr þeirri umræðu.
Verði þrotið vín og öl
og varla dropi í líki.
Þá má eflaust beeta böl
og brölta út í ríki.
Fía
Víniðþarfhún Fía að fá
ogflott á spariskónum
til að versla töltir þá
í tittlingsdjúpum snjónum.
Friðrik
Þessi hóflega snjóaspá vakti
mikla kátínu, því allir vita hvað
snjótittlingar eru litlir, svo maður
tali nú ekki um grátittlinga og
tóku menn að hugsa hlýlega til
næturinnar.
Lundin kœtist, léttast ský
Ijómandi íframan
hlakka karlar, ólmir í
einnar nœtur gaman.
Fía
Eftir þetta einnar nætur gaman
og góða gistingu var lagt af stað
heim, í stórhríð eins og veður-
stofan spáði. I bílnum höfðu
menn óvenju hægt um sig, til að
trufla ekki Friðrik í stikuleitinni.
Með kveðju og þökk fyrir bráð-
skemmtilega samkomu og yndis-
lega ferð.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
21
Komdu nú að kveðast á..........Frá vinstri Stefán Bogi Sveinsson, Jóhannes Sigfússon,
Friðrik Steingrímsson, Andrés Bjarnason og stjórnandinn Kristján Magnússon.
Mynd: Sigurður Ólafison