Fréttablaðið - 17.12.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 17.12.2020, Síða 22
Hugtakið heilsa er heildrænt í eðli sínu þar sem það nær yfir líkamlega, andlega og félags- lega vellíðan samkvæmt formlegri skilgreiningu. Hreyfing og næring eru nær órjúfanlegir þættir sem tengjast öllum þessum þremur víddum heilsu og vellíðanar. Það hvort að við stundum hreyfingu eða ekki tengist líkamlegri og and- legri vellíðan okkar og það sama má segja um næringu. En hvernig skilgreinum við félagslega vellíðan? Félagsleg samskipti eru þar mikil- vægur þáttur og jafnvel hafa þau aldrei verið eins mikilvæg eins og nú á tímum COVID-19. Félagsleg sam- skipti hafa mikið verið rannsökuð í gegnum tíðina og er þá notast við spurningar um það hvort að við- komandi sé í samskiptum við nána aðila (fjölskyldu, vini, maka) hvort að viðkomandi geti leitað aðstoðar við úrlausn ýmissa verkefna og hvort að viðkomandi geti treyst á aðstoð við tilfinningalega úrvinnslu. Sé það mat einstaklingsins að þessir þættir séu til staðar er sá hinn sami talinn búa við góðan félagslegan stuðning. Það hvernig félagslegur stuðn- ingur í formi samskipta leiðir af sér bætta heilsu er þó ekki alltaf skýrt og jafnvel umdeilt hvort að um beint orsakasamband sé að ræða. Félags- legur stuðningur hefur áhrif á vel- líðan okkar og andlega heilsu. Það að eiga í góðum samskiptum og búa yfir góðu tengslaneti getur hjálpað okkur í daglegu amstri og að komast í gegnum flókin verkefni en þó gætir ákveðins flækjustigs þar sem félags- legur stuðningur gengur ekki aðeins í aðra átt. Það getur vissulega gefið af sér góða líðan að styðja þá sem okkur þykir vænst um, eiga upp- byggileg samtöl við vini og vanda- menn, en að sama skapi ef samskipti eru neikvæð í eðli sínu og stuðningur gengur aðeins í aðra átt getur það leitt til örmögnunar, eins og svo gjarnan hefur komið fram þegar ættingjar hafa hreinlega orðið fyrir kulnun vegna mikillar umönnunar og stuðnings sem er þeim ofviða. En byrjum á því að einblína á jákvæð og uppbyggileg félagsleg samskipti og skoða hvað vísindin segja. Skipta góð samskipti máli þegar kemur að heilsu okkar? Sam- kvæmt rannsóknum þá er svarið við þessari spurningu já, svo sannarlega. Rannsóknir hafa sýnt að telji ein- staklingur sig búa við góðan félags- legan stuðning sé hann líklegri til að upplifa sig við góða heilsu, hefur minni líkur á því að greinast með þunglyndi, gæði svefns eru meiri á meðal þessa hóps, vitræn geta mælist hærri og jafnvel líkur á heila- bilun síðar á ævinni eru minni, sé tekinn samanburður við þá sem telja sig skorta félagslegan stuðning. Sé skortur á félagslegum stuðningi verður til lífeðlisfræðilegt viðbragð þar sem að aukið bólgusvar hefur mælst hjá þessum einstaklingum ásamt hækkandi insúlínviðnámi en saman auka þessir tveir þættir áhættuna á sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdómum. Í heildarsam- henginu mætti því líta svo á að það að vera í virkum, jákvæðum og upp- byggilegum samskiptum sé ákveðið form af heilsurækt. Hér skiptir upp- lifun einstaklingsins miklu máli og því væri okkur öllum hollt að skoða okkar samskipti við aðra, eru þau jákvæð og uppbyggileg? Hvað get ég gert til að bæta samskiptahæfi- leika mína ef svo ber undir. Sé sam- skiptaupplifun okkar góð þá höfum við fjöldann allan af rannsóknum sem sýna jákvæðar heilsufarslegar afleiðingar. Með skilgreiningu á hugtakinu heilsu að leiðarljósi höfum við upp- fyllt um þriðjung þeirra grunn- skilyrða sem þarf til að öðlast góða heilsu með því að einblína á félagsleg samskipti. Heilsa nær þó einnig yfir líkamlega og andlega vellíðan þar sem hreyfing og næring eru mikil- vægustu þættirnir í okkar eigin for- varnavinnu að bættri heilsu. Temjum okkur að vera í góðum samskiptum við fólk sem okkur líður vel með hvort sem það eru vinir, ættingjar eða maki. Hreyfum okkur daglega í að minnsta kosti 30 mínútur og síðast en ekki síst hugum að fjölbreyttu og næringarríku fæði. Með heildrænni sýn á heilsu aukum við heilsufarslegan ávinning svo um munar. Forvarnir – heildræn sýn á heilsu Á dögunum læddust fregnir af þverrandi trúariðkun þjóðarinnar í fyrirsagnir fjölmiðla. Uppruni þessara frétta er könnun sem markaðsrann- sóknafyrirtækið Maskína gerði fyrir hönd Siðmenntar fyrr á árinu. Þótt niðurstöður könnunarinnar sýni fram á að þjóðin sætti sig ekki við núverandi fyrirkomu- lag, þar sem ein þjóðtrú ríkir og fær stuðning langt umfram hlut- deild sína í lífsskoðunum landans, þá eru auðvitað alltaf einhver í athugasemdakerfinu sem finnst illa vegið að kirkjunni sinni. Einn kommentari komst svo að orði að fólk gæti þá bara urðað ástvini sína úti í garði og er því nokkuð ljóst að viðkomandi er uggandi yfir stöðu útfararinnar ef kirkjunnar nyti ekki við. Persónulega held ég ekki að áhyggjur athugasemdamannsins séu á rökum reistar. Kirkjunni er nú sennilegast borgið í náinni framtíð og þótt hún missi óhjákvæmilega einhvern tíma núverandi aðgang að sameiginlegum sjóðum þjóðar- innar, þá ætti hún ekki að eiga í vandræðum með að sjá þeim, sem það vilja þiggja, fyrir kristilegum jarðsöng, byggðum á aldalangri reynslu sinni, mannauði og sam- félagsstöðu. En markmið mitt er ekki að fjalla um kristilegar útfarir, því nógir aðrir eru til þess. Mér þykir hins vegar leiðinlegt að heyra að fólk óttist það að þurfa að dysja sína nánustu undir hekkinu heima, og mér er því ljúft og skylt að til- kynna: Svo er ekki. Veraldlegur valkostur í boði Það má ætla að hjá allf lestum trú- og lífsskoðunarfélögum á Íslandi sé útfararvalkostur í boði sem byggist á gildagrunni þeirrar trúar eða lífs- skoðunar sem um ræðir. Einn slíkur valkostur er veraldleg útför undir merkjum húmanisma eða mann- gildisstefnu, þar sem manneskjan sjálf og lífshlaup hennar er í fyrir- rúmi. Siðmennt hefur staðið fyrir veraldlegum útförum frá árinu 2008 og hefur fjölbreyttan hóp reyndra athafnastjóra á sínum snærum. Með veraldlegri útför fá aðstand- endur tækifæri til að kveðja ástvin sinn með þeim hætti sem hinn látni hefur óskað eftir eða aðstandendur komið sér saman um. Áhersla er lögð á lífshlaup hins látna, per- sónuleika, viðmót og sögu, því að mati húmanista ætti einmitt manneskjan sjálf að vera í forgrunni athafnarinnar. Aðstandendum og athafnarstjóra eru gefnar nokkuð frjálsar hendur um uppbyggingu og umfjöllunarefni, að því undan- skildu að ekki er fjallað um nokk- urt eftirlíf, nema þá í formi þeirra minninga sem lifa áfram í hugum þeirra sem eftir standa. Sumar fjöl- skyldur halla sér að hefðbundnu formi í sorginni: kistulagning, hugvekja, minningarorð og hinsta kveðja, með fallegri tónlist inn á milli í anda þeirrar manneskju sem verið er að kveðja. Aðrar kjósa óhefðbundnari leiðir: minningar- orð f lutt af nánum aðstandanda, samsöngur, táknrænar athafnir, óhefðbundin uppstilling eða annað sem er í anda hinna látnu. Athafnar- stjórinn þjónar svo aðstandendum með því að flétta saman hugmyndir þeirra og óskir. Og svo bara jarðað í bakgarðinum? Nei, það er nú ekki svo að fólki sé bara holað niður hvar sem er, enda gera landslög ekki ráð fyrir því. Húmanistar, trúleysingjar, efahyggjufólk, fólk utan trúfélaga og trúað fólk sem af einhverjum ástæðum óskar eftir veraldlegri athöfn, er jarðað á nokkurn veginn sama hátt og aðrir hópar samfélags- ins. Oftast í kirkjugörðum, eða þá að ösku er dreift með sérstöku leyfi yfirvalda. Í sumum kirkjugörðum er hafður óvígður reitur, en fyrir marga skiptir ekki máli hvort full- trúar einhverra trúfélaga hafa lagt blessun sína yfir svæðið, og kjósa sér því hvílustað nálægt fjölskyldu sinni, eða á öðrum fallegum stað í grafreitnum. Annað mál er þó með athöfnina sjálfa, því að yfirvöld hafa ekki staðið sig við að bjóða upp á trúarlega hlutlaus athafnarými. Húsnæði Þjóðkirkjunnar stendur aðeins meðlimum Þjóðkirkjunnar til boða, samkvæmt samþykktum um innri málefni þjóðkirkjunnar, en kirkjur virðist þó mega leigja út sem tónleikastað eða til annarra listrænna gjörninga. Það athafna- rými sem reist er fyrir kirkjugarðs- gjöld almennings, eins og til að mynda kapellan og kirkjan í Foss- voginum í Reykjavík og kapellan á Akureyri, eru öllum aðgengileg, óháð trúfélagsaðild. Aðstandendur geta nýtt sér þessi rými, enda fallegt húsnæði sem ekki þarf að greiða fyrir og er sérhannað til útfara og annarra athafna. Sumum þykir þó óþægilegt að ekki sé hægt að skipta út trúarlegum táknum í Fossvog- inum og kjósa frekar rými sem eru algjörlega trúarlega hlutlaus. Fal- legir salir á borð við Iðnó og Hann- esarholt hafa höfðað til margra, auk félagsheimila um allt land eða þeirra salarkynna sem höfðu sér- staka merkingu í huga hins látna. Það er því ljóst að ekki þarf að óttast útfaraóreiðu þó breytingar verði á Þjóðkirkjuskipan eða sam- skiptum ríkis við trú- og lífsskoðun- arfélög. Hver og einn getur valið það sem hentar og úrvalið er þó nokkuð. Það er víst að eitt hentar ekki öllum og þegar öllu er á botninn hvolft er mikilvægt að hafa val. Fólk getur bara urðað ástvini sína úti í garði… Inga Auðbjörg K. Straumland formaður Siðmenntar - félags siðrænna húmanista á Íslandi Mér þykir hins vegar leiðin- legt að heyra að fólk óttist það að þurfa að dysja sína nánustu undir hekkinu heima, og mér er því ljúft og skylt að tilkynna: Svo er ekki. Hrafnhildur Eymundsdóttir formaður félags Lýðheilsufræð- inga Það er fengur að því þegar reynsluboltar úr veitubrans-anum deila með okkur sögum og sýn á þá undirstöðu borgarsam- félagsins sem veitureksturinn er. Þannig var það hér í blaðinu á þriðju- daginn þegar Árni Gunnarsson, fyrr- verandi yfirverkfræðingur Hitaveit- unnar, stakk niður penna í tilefni af því að viðbragðsáætlun Veitna var virkjuð nú á dögunum þegar útlit var fyrir mesta kuldakast í tæpan áratug. Þetta vakti spurningar hjá Árna sem hér er leitast við að svara. Þó er rétt að nefna áður nokkur atriði sem hafa breyst frá heita- vatnskreppunum í Reykjavík fyrir um aldarþriðjungi: Fyrst er að nefna að upplýsinga- f læði til íbúa hefur verið stóraukið. Baslið í gamla daga sem Árni lýsir hefur líklega að mestu farið fram án vitneskju borgarbúa um þau afrek sem unnin voru í rekstri hita- veitunnar á bak við tjöldin. Þegar þau dugðu ekki lengur til kom staðan fólki ef til vill frekar í opna skjöldu. Heitavatnsnotk un á höf uð- borgarsvæðinu hefur nánast tvö- faldast frá árinu 1990. Til að tryggja af hendingaröryggi horfum við nú til fjölbreyttari uppsprettu vatns- ins og erum þess vegna farin að horfa til Krýsuvíkur um heitt vatn einkum fyrir sunnanvert höfuð- borgarsvæðið. Það dregur hvort tveggja úr líkum á vatnsskorti eða að dreifikerfið hafi ekki undan. Takmarkanir í hitaveitunni geta nefnilega, í dag eins og þá, verið vegna af kasta í framleiðslu eða staðbundinna f löskuhálsa í dreifi- kerfunum. Við getum enn aukið heitavatns- vinnsluna á Hengilssvæðinu. Það eru þó dýr mannvirki, varmastöðv- arnar í virkjununum, og að byggja þær áður en þörf er á þeim er enn dýrara. Við þurfum að fara næstum hálfa öld aftur í tímann, aftur í olíukreppuna upp úr 1970, þegar uppbygging hitaveitu í nágranna- sveitarfélögum Reykjavíkur var á fullu, til að sjá viðlíka aukningu á heitavatnsnotkun og við höfum séð nú í ár. Sennilegasta ástæðan er breytt notkun okkar á húsnæði í faraldrinum. Þetta hefur hugsan- lega líka þýtt það að aukningin í kuldakastinu á dögunum var ekki eins mikil og við óttuðumst. Þá að númeruðum spurningum Árna. 1. Endurbætur á holunni við Bol- holt töfðust. Talið var óhætt að ráðast í þær þar sem varma- stöð Hellisheiðarvirkjunar er nýstækkuð. 2. Já. Þrjár lághitaholur af 53 eru ekki í rekstri sem stendur. Það er eðlilegt hlutfall. 3. Kyndistöðvarnar við Elliðaár, Toppstöðin, og við Bæjarháls, hafa báðar verið lagðar af. Þær eru tákn eldri tíma og nú getum við á móti hækkað hitastig vatnsins sem framleitt er í Hellis- heiðarvirkjun. Það er ekki í takti við umhverfisstefnu Veitna að kynda með olíu. 4. Nýr miðlunargeymir í Öskjuhlíð, í stað þeirra tveggja sem hýsa nú náttúrusýningu, er kominn á skipulag. 5. Það þarf að reglulega að hreinsa útfellingar í Nesjavallaæð til að tryggja f lutningsgetu hennar. Næsta hreinsun er áformuð 2022. Hitaveita Veitna á höfuðborgar- svæðinu er ekki í „ótrúlega slæmri stöðu“ eins og Árni heldur fram. Hún hefur, enn sem komið er, reynst í stakk búin að takast á við örasta vöxt í heitavatnsnotkun sem við höfum séð í næstum hálfa öld. Sá vöxtur var í engum takti við uppbyggingu nýs húsnæðis eða tengingu nýrra bæjarhluta við veituna eins og í olíukreppunni forðum. Ráðstafanir sem gripið hefur verið til á síðustu misserum á borð við stækkun varmastöðv- arinnar á Hellisheiði, aukningu á f lutningsgetu með öf lugri dælum, sverun á lögnum og hvíld lághita- svæðanna yfir sumartímann hafa gert okkur kleift að mæta þessum fordæmalausu tímum. Veturinn er enn ungur en við erum líka enn að finna leiðir til að treysta rekstur- inn enn frekar, rétt eins og Árni og félagar hans á síðustu öld. Kuldaboli kvaddur Guðmundur Óli Gunnarsson starfandi for- stöðumaður hitaveitu Veitna Félagslegur stuðningur hefur áhrif á vellíðan okkar og andlega heilsu. Veturinn er enn ungur en við erum líka enn að finna leiðir til að treysta rekstur- inn enn frekar, rétt eins og Árni og félagar hans á síðustu öld. 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.