Fréttablaðið - 17.12.2020, Síða 26
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Er nafnið Dór ættarnafn?Já, við Friðrik Dór erum bræður! Nei, nei, grín. Ég er
hálfpartinn skírður í höfuðið á
báðum foreldrum mínum. Pabbi
minn heitir Hannes Arnar og
mamma mín Halldóra. Dór-nafnið
kemur sumsé frá mömmu.
Hver er fyrsta minningin um að
hafa verið fínn og f lottur í tauinu?
Mamma mín átti tískuvöru-
verslunina Kóda í Keflavík og fékk
oft mig og systkini mín í aug-
Sat fyrir á tískumyndum tólf ára
Keflvíski söngvarinn Arnar Dór Hannesson er rafvirkjameistari og tveggja unglinga faðir. Hann er
mikið jólabarn, hefur margoft farið í jólaköttinn og sendi frá sér jólalagið Desember á dögunum.
lýsingar. Ætli ég hafi þá ekki verið
tólf ára gamall.
Hugsarðu mikið um tísku og það
hverju þú klæðist?
Nei, svo sem ekki dagsdaglega,
en ég vil klárlega alltaf vera snyrti-
legur og hreinn til fara.
Finnst þér gaman að klæða þig
upp á?
Já, þegar ég kem fram og syng
fyrir áhorfendur pæli ég aðeins
í því hverju ég er, og finnst mjög
gaman að vera í f lottum fötum á
sviðinu.
Hver er uppáhaldsf líkin þín?
Ætli það sé ekki dúnúlpan mín
frá 66°Norður. Ég er búin að eiga
hana í mörg ár og hún stendur
alltaf fyrir sínu.
Áttu eitthvað í fórum þínum sem
þér er hjartfólgið og tengist tísku?
Já, ég fékk fallegt hálsmen,
leðuról með silfurkrossi, í gjöf frá
Heiðu, systur minni, stuttu áður en
hún veiktist.
Hvar kaupirðu fötin?
Á hinum ýmsu stöðum og læt
svo oftast klæðskera sníða þau að
mér eða breyta, til að þau séu pínu
svona sérstök.
Dreymir þig um mjúka pakka
frekar en harða, til að fá kannski
nýja f lík í jólagjöf?
Mér finnst alltaf gaman að fá
föt í jólagjöf, en oftast er það bara
hún elsku mamma mín sem nær að
finna föt sem passa akkúrat á mig.
Hvernig klæddur líður þér best?
Klárlega í jogging-gallanum
heima, en mér líður reyndar líka
vel á sviði og þá gefur manni oft
aukið sjálfstraust að líta vel út.
Áttu flík sem þú ert þekktur fyrir?
Já, það þekkja mig margir af
ADH-raf vinnufötunum mínum,
en það er fyrirtækið mitt.
Áttu jólapeysu?
Já, við fjölskyldan fórum til
Flórída um jólin í fyrra og þá
keypti ég alveg svakalega ljóta
jólapeysu í Walmart. Við vorum öll
í jólapeysum á aðfangadag þar úti
og ég á hana til næst þegar maður
má fara í almennilegt jólapartí.
Hefðurðu einhvern tímann farið
í jólaköttinn?
Jájá, ég kaupi mér ekkert endi-
lega alltaf ný föt um hver jól. Ég
kaupi bara föt þegar mig vantar
þau.
Hvernig kom nýja jólalagið,
Desember, til þín?
Gunnar Ingi, höfundur lagsins,
er Keflvíkingur eins og ég, og við
höfum þekkst frá því við vorum
ungir. Hann samdi líka lagið
Carolyn, sem kom út fyrr á þessu
ári, og bað mig að syngja þetta nýja
jólalag.
Um hvað er lagið?
Lagið fjallar um yndislegu
stemninguna sem myndast í
desember og í kring um jólahátíð-
ina. Þetta lag kemur manni svo
sannarlega í jólaskap.
Hvaðan kemur söngurinn?
Afi minn, Ragnar Jónasson, og
systir hans, Inga Jónasar, voru
mikið í söng og tónlist, og fjöl-
skyldan hefur í kjölfarið alltaf
sungið mjög mikið við öll manna-
mót. Þannig að ég ólst upp við
mikinn söng. Ég uppgötvaði samt
ekki sjálfur fyrr en ég varð um
átján ára að ég sjálfur gæti sungið.
Hafði það áhrif á líf þitt að lenda
í 2. sæti í The Voice 2018?
Það var virkilega gaman að taka
þátt í The Voice á sínum tíma.
Ég kynntist svo frábæru fólki,
öðlaðist dýrmæta reynslu og ekki
skemmdi fyrir að lenda í 2. sæti.
Það breytti lífi mínu að því leyti að
ég nýtti tækifærið sem spark í rass-
inn til að gefa meira út og halda
fleiri tónleika.
Er desember og jólin í dálæti hjá
þér?
Já, ég er einstaklega mikið
jólabarn. Uppáhaldið mitt er að
vakna á jóladagsmorgun, því það
er hefð í minni fjölskyldu að hitt-
ast öll á náttfötunum heima hjá
mömmu og pabba, við systkinin
með börnin okkar, og borða jóla-
kökur og drekka heitt súkkulaði.
Svo um kvöldið er yndislegt að
fara til tengdó og borða hangikjöt
með fjölskyldu Ölmu, konunnar
minnar. Þetta verður óhjákvæmi-
lega með aðeins öðru sniði í ár, en
maður leysir það bara.
Hvernig verða jólafötin í ár?
Líklega bara náttbuxur og
stuttermabolur. Þetta verða kósí-
heima-jól í ár.
Arnar Dór er fínn í tauinu og syngur
Desember. MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Undirkjólar, leggings, sokkabuxur og góðir skór
eru líka nauðsynjavara á jólunum
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R