Fréttablaðið - 17.12.2020, Side 38
Búðinni hefur verið tek ið mjög vel og f jölskylda okkar og vinir hafa staðið við bakið á okkur,“ segir
Erla Berglind Antonsdóttir sem
nýlega hóf verslunarrekstur í
húsi númer 34 við Hafnarbraut á
Höfn, ásamt manni sínum Sigur-
birni Árnasyni, eins og Eystra-
horn greinir frá. Búðin heitir
Berg Spor og selur fatnað og skó.
Það er Erla Berglind sem
stendur vaktina í Berg Spor.
Þegar ég hringi í hana um ell-
efuleytið kveðst hún vera að
opna búðina þann daginn en
hún mæti samt klukkan átta.
Það kemur í ljós að hún er með
saumavél á staðnum og vinnur
við merkingar í henni, fyrir fólk
um allt land.
„Ég er að merkja fatnað, rúm-
föt, handklæði, töskur, húfur og
svuntur svo eitthvað sé nefnt.
Hef verið með vélina heima
síðustu sex árin og það er viss
léttir að komast með hana út af
heimilinu.“
Spurð hvort búðin sé ekki
bylting fyrir íbúa á svæðinu, þar
sem engin alvöru fatabúð hefur
verið á Höfn síðustu misserin,
svarar Erla Berglind hógvær. „Jú,
en fólkið hér hefur nú samt ekki
gengið nakið enda var verslun
með vandaðan fatnað í þessu
húsi þar til í fyrrasumar, hún
var í daglegu tali kölluð Dóru-
búð. Það brá samt mörgum við
þegar hún lokaði. Við verðum
alltaf að klæðast.“
Erla Berglind kveðst hafa
unnið í Dórubúð í nokkur ár
og því vera ágætlega kunnug
aðstæðum. Hún segir eigendur
þeirrar verslunar, Halldóru Ing-
ólfsdóttur og Einar Karlsson,
meðal þeirra sem hafi stutt vel
við hina nýju starfsemi í hús-
næðinu. „Þau hafa verið okkur
hjálpleg.“
Í Berg Spor verslar Erla Bergl-
ind með alhliða klæðnað og skó,
að eigin sögn. Þó segir hún úrval
af sparifatnaði tak markað,
áherslan sé meiri á íþrótta- og
útivistarföt og einnig kveðst
hún vera með garn og lopa.
„Svo er Handraðinn, sem selur
handunnar vörur heimafólks,
líka f luttur í plássið til mín, auk
þess sem veitingastaðurinn ÚPS
var opnaður í þessu húsi í haust,
svo það er heilmikið líf hérna.“
gun@frettabladid.is
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Elsa Breiðfjörð
Jöldugróf 4, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Landspítalanum, miðvikudaginn
9. desember. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju, föstudaginn 18. desember klukkan 15.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina. Streymt verður beint frá athöfninni
á slóðinni www.sonik.is/anna
Ámundi Friðriksson
Friðrik Ámundason Hrafnhildur Harpa Skúladóttir
Agnar Þór Ámundason
Agnes Ámundadóttir
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir ómetanlegan
stuðning og hlýju við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Halldórs Þórs Grönvold
aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ.
Greta Baldursdóttir
Eva Halldórsdóttir Björgvin Ingi Ólafsson
Arnar Halldórsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helena Bjargey
Sigtryggsdóttir
Hull, Englandi,
lést 26. október sl. á Hull Royal
Infirmary Hospital. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18. desember klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur verið
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni youtube.
com/watch?v=FEaUDuHNKKM&feature=youtu.be
Hlekkinn má einnig nálgast á mbl.is/andlat/minningar/
utfarastreymi/
Baldvin Gíslason
Gísli Baldvinsson Ragnheiður Ævarsdóttir
Helena Líndal Baldvinsdóttir Björn Guðmundsson
Hlynur Baldvinsson
barnabörn og langömmubarn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Maríu Steinunnar
Gísladóttur
frá Skáleyjum,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks HERU líknarþjónustu og
starfsfólks Eirhamra, fyrir umönnun og hlýtt viðmót.
Leifur Kr. Jóhannesson
Jóhanna Rún Leifsdóttir Kristján Á. Bjartmars
Sigurborg Leifsdóttir Hörður Karlsson
Heiðrún Leifsdóttir Lárentsínus Ágústsson
Eysteinn Leifsson Guðleif B. Leifsdóttir
Jófríður Leifsdóttir Ingimundur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Verðum alltaf að klæðast
Engin fatabúð hefur verið á Hornafirði síðustu misseri en nýlega varð breyting á því
þegar verslunin Berg Spor var opnuð. Þar ræður Erla Berglind Antonsdóttir ríkjum.
Erla Berglind verslar með alhliða klæðnað og skó.
Elsku hjartans frænka okkar,
Guðrún S. Kristjánsdóttir
frá Eskifirði,
lést mánudaginn 7. desember á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 21. desember kl. 15.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina. Þeim sem vilja minnast Guðrúnar er
bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Vala Ólafsdóttir
Jenný B. Ingólfsdóttir
Jóhanna Eiríksdóttir
Svavar Kristinsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju
við andlát og útför föður okkar
tengdaföður, afa og langafa,
Þrastar H. Elíassonar
sendibílstjóra,
Melabraut 46, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 2.h. suður á Eir,
sem kom að umönnun föður okkar.
Lilja Þrastardóttir Skúli Þorsteinsson
Helgi Leifur Þrastarson Guðrún R. Maríusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Magnea Jónsdóttir
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést 10. desember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 21. desember kl. 13.30.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á
Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju
- beinar útsendingar.
Anna Lúthersdóttir
Guðný Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir Páll Sigurðsson
Unnur Björk Pálsdóttir Jakob Jónasson
Magnús Pálsson Lára M. Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Okkar innilegustu þakkir fyrir allar
samúðarkveðjurnar og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, dóttur,
tengdadóttur, systur og mágkonu,
Helgu Ingólfsdóttur
byggingariðnfræðings og tækniteiknara,
Strýtuseli 3, Reykjavík.
Arnar Guðmundsson
Þorri Arnarsson Marín Líf Gautadóttir
Óðinn Arnarsson Hildur Helgadóttir
Guðlaug Birna Hafsteinsdóttir Steinn Halldórsson
Ingólfur Helgi Matthíasson Sóley Birgisdóttir
Guðmundur Jóhannesson Bergljót Helga Jósepsdóttir
Jóhanna Steinsdóttir Þorkell Guðmundsson
Halldór Steinsson Camilla Mortensen
Hafsteinn Steinsson Elín K. Linnet
Heiða Rún Steinsdóttir Hugrún Ósk Bjarnadóttir
Rut Ingólfsdóttir Gísli Már Ágústsson
Máni Ingólfsson Gerða Arndal
Hrói Ingólfsson
Elsku hjartans móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Valgerður Einarsdóttir
(Gæja)
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Hrafnistu Reykjavík þann 9. desember.
Útför fer fram frá Fossvogskapellu
föstudaginn 18. desember kl. 11. Vegna ástandsins í
þjóðfélaginu verða aðeins þeir nánustu viðstaddir, en
streymt verður frá athöfninni á
facebook.com/groups/1084822608626551
(Jarðarför Valgerðar Einarsdóttur) eða á mbl.is/andlat
Bára Jensdóttir
Einar Valdimar Arnarsson Helen Everett
Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir Jón Sigurðsson
Soffía Helga Magnúsdóttir Sigurður Stefánsson
Gunnfríður Magnúsdóttir Sophus Magnússon
Sigríður Rósa Magnúsdóttir Richard Hansen
Örn Guðmundsson Hafdís Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT