Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2020, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 18.12.2020, Qupperneq 2
MENNING Eyjólfur Jónsson hefur um árabil haft mikinn áhuga á að safna flottum leikföngum. Sá áhugi leiddi síðan til þess að hann fór að búa til sínar eigin fígúrur, sem bæði eru innblásnar úr amerískri dægur- menningu en ekki síður íslenskri. Þannig hefur Eyjólfur búið til leik- fangaútgáfu af Pappírs-Pésa auk þess sem nokkur leikföng eru til- vísanir í þekkt atriði úr íslenskum sjónvarpsþáttum. „Það má eiginlega segja að þegar ég hætti að finna skemmtileg leik- föng til að safna þá fór ég bara að búa þau til sjálfur,“ segir Eyjólfur og hlær. Hann segir að um sé að ræða svokallaða bootleg-leikfangagerð sem sé innblásin af lélegum eftir- líkingum af vinsælum leikföngum frá Asíu. Að sögn Eyjólfs hafi slík bootleg- leikfangagerð hafist í New York árið 2004 þegar listamaðurinn Morgan Phillips, sem gengur undir nafninu Sucklord, hóf að búa til sínar eigin útgáfur af vinsælum leikföngum. „Hann hafði ekki náð að brjótast inn í leikfangabransann sjálfur og því fór hann bara að hæðast að honum með eigin fígúrum.“ Fígúrurnar hafi orðið nokkuð vinsælar og haft þau áhrif að fleiri fóru að vinna með svipaðar hug- myndir. „Maður sér þetta víða á þessum teiknimyndahátíðum úti í heimi. Þetta er alltaf framleitt í litlu magni og er í raun óður til frumút- gáfunnar.“ Sjálfur býr hann aðeins til örfá eintök af hverri fígúru en talsverð vinna liggur oft að baki. „Ég finn þrí- víddarteikningar af frummyndinni, breyti henni svo eftir mínu höfði, bý til mót og steypi síðan fígúruna og handmála hana. Svo bý ég til umbúðirnar sem skipta miklu máli. Ferlið var samt aðeins einfaldara þegar ég bjó til Pappírs-Pésa. Það má eiginlega segja að ég hafi verið að spara hráefniskostnað þar,“ segir Eyjólfur kíminn. Hann segir að viðtökurnar við fígúrunum hafi komið sér á óvart. „Ég er nú yfirleitt að grínast eitt- hvað þegar ég bý til fígúrurnar og því hafa viðbrögðin komið mér þægilega á óvart. Fólki finnst þetta greinilega skemmtilegt. Mér finnst athyglisverðast að oft er það verkið sem mér finnst ekkert endilega best sem verður vinsælast.“ Á dögunum hélt Eyjólfur listasýn- inguna Stígvélaði fóturinn í Núllinu galleríi ásamt kollega sínum Vikt- ori Vintage. „Við erum á svipuðum slóðum í þessari listsköpun og ég veit ekki betur en að við séum bara tveir að gera þetta hérlendis,“ segir Eyj- ólfur. Hægt er að fylgjast með verk- um Eyjólfs á Instagram-síðunni @ bootfoottoys. bjornth@frettabladid.is Ferlið var samt aðeins einfaldara þegar ég bjó til Pappírs- Pésa. Það má eiginlega segja að ég hafi verið að spara hráefniskostn- að þar. Eyjólfur Jónsson, listamaður Kylfurnar dregnar fram úr geymslunni Þrátt fyrir að stutt sé til jóla láta kylfingar á Íslandi veðurblíðuna ekki fram hjá sér fara. Óvíst er hvort þessir tveir kylfingar voru með hugann við jólagjafirnar þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið um Þorlákshöfn. Áhrif kórónaveirufaraldursins virðast hafa náð til kylfinganna þar sem annar spilarinn átti afar erfitt högg fram undan utan brautar en meðspilarinn naut þess að fylgjast með úr sæti sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hætti að safna og fór að búa til sitt eigið dót Áhugi Eyjólfs Jónssonar á að safna fágætum leikföngum leiddi til þess að hann fór að búa til sínar eigin fígúrur sem innblásnar eru af eftirlíkingum frá Asíu. Sækir hann meðal annars hugmyndir sínar í íslenska dægurmenningu. Eyjólfur hefur meðal annars búið til leikföng úr Fóstbræðrum. MYND/AÐSEND STJÓRNSÝSLA Bankasýsla ríkisins hefur lagt fram tillögu til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efna- hagsráðherra, um að hefja sölumeð- ferð á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka. Í tillögunni er gert ráð fyrir að söluferlið hefjist í janúar og ljúki í maí. B a n k a s ý s l a n lagði til í mars síðastliðnum að ríkið seldi fimmt- ungshlut í bank- anum, sú tillaga var svo afturkölluð vegna efnahags- áhrifa COVID-19 faraldursins. Fram kemur í minnis- blaði til ráðherra að frá því að tillögurn- ar voru dregnar til baka hefur þróun bæði fjármálamark- aða og af koma Íslandsbanka verið betri en búist var við um miðjan mars. Frá marsmánuði hafi hluta- bréfaverð á Íslandi hækkað um 50 prósent. Hlutabréf evrópskra banka hafa hækkað um nánast þriðjung, að því er kemur fram í minnisblaðinu. Í ljósi þess telur Bankasýsl- an rétt að leggja til að stefnt verði að frumút- boði hluta. Tillagan inniheldur ekki hversu stóran h l u t a b a n k a n s bjóða eigi til sölu þar sem áætluð eftirspurn eftir hlutum og verð liggi ekki fyrir fyrr en ef tir f jár- festakynningar í lok söluferlis- ins. – ab Bankasýslan leggur til sölu á Íslandsbanka COVID-19 Þór ólfur Guðna son sótt- varna læknir býst ekki við því að Ís lendingar nái góðu hjarðó næmi fyrr en á seinni hluta næsta árs, þrátt fyrir að bólu setningar hefjist strax eftir ára mót. Ísland fær færri skammta af bólu efni Pfizer og BioN Tech um ára mótin en samningar gerðu ráð fyrir. Í fyrstu sendingu verða skammtar fyrir um fimm þúsund manns. Næsta sending kemur í janúar eða febrúar. Vegna skorts á hráefni seinkar framleiðslunni og því ljóst að Ísland fær minna bólu- efni á næstu mánuðum en gert var ráð fyrir. Samningar eru í gangi um önnur bóluefni. Átta greindust með smit innanlands í fyrradag, sjö voru í sóttkví. Víðir Reynisson, yfirlögreglu- þjónn almannavarna, er kominn úr einangrun eftir að hafa smitast. Er hann enn að jafna sig. Þórólfur er hins vegar kominn í sóttkví eftir að smit komst upp á sóttvarnasviði Embættis landlæknis. – ab Hjarðónæmi á seinni hluta næsta árs Sóttvarnalæknir er nú í sóttkví. 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.