Fréttablaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 30
Mér finnst það
passa vel við þessa
tíma sem við erum að
lifa núna að ögra sjálfum
sér. Nú er að hefjast
undirbúningstímabil
fyrir keppnir næsta árs
þar sem ég ætla til dæmis
að taka þátt í Hengill
Ultra, Tindahlaupinu og
Súlur Vertical.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ég hafði verið að horfa á heim-ildarmyndir á YouTube og sá þar þátt um konu í Kanada
sem fór hækkun sem samsvaraði
tveimur Everest á einni viku. Mér
fannst það svolítið mikið, þetta
var einhver svaka keppnismann-
eskja, en ég hugsaði með mér að
ég væri alveg til í að fara hæð sem
samsvaraði einu Everest á þessum
tíma,“ segir Ólafía um það hvernig
hugmyndin varð til.
Ólafía segir að hún stundi reglu-
lega utanvegahlaup og henni hafi
fundist sig vanta einhverjar áskor-
anir í þessu COVID-ástandi.
„Mér datt ekki í hug að fá neinar
með mér í þetta, ég hugsaði bara
að það gæti verið gaman að sjá
hvort ég gæti þetta. Þetta er þó
nokkuð mikil ganga, þetta er ekki
bara upphækkunin, við gengum
alveg yfir 100 kílómetra,“ segir
hún.
„Ef maður deilir þessu jafnt
niður á dagana þá samsvarar þetta
því að ganga tvisvar á dag upp að
Steini á Esjunni. Við nenntum því
nú ekki alveg, við vildum hafa smá
fjölbreytni í þessu. Við vorum líka
í vinnu þessa daga svo við urðum
að skipuleggja okkur. Við fórum
nokkra morgna upp að steini og
fórum svo kannski seinnipartinn
Fór Everest
á Íslandi á
einni viku
Ólafía Lárusdóttir, viðskiptastjóri hjá
Expedia Group á Íslandi, ákvað að
skora á sjálfa sig í haust að ganga á
einni viku á fjöll og safna hækkun sem
samsvarar hæð Everest. Hún fékk vin-
konur í lið með sér og þær voru fjórar
sem kláruðu alla 8.849 metrana.
Hópurinn fagnar uppi á Móskarðshnjúkum. Fimm fræknar vinkonur sem stóðust erfiða áskorun á fjalli.
Þær voru fjórar
sem kláruðu
áskorunina, hér
staddar uppi á
Þverfellshorni
Esjunnar.
upp á Úlfarsfell eða aftur upp að
Steini þá daga sem við vorum að
vinna en þegar við vorum í fríi
tókum við lengri göngur. Eitt
skiptið fórum við tíu sinnum upp
himnastigann í Kópavogi, bara
fyrir fjölbreytnina. Svo tókum við
einn mjög skemmtilegan dag þar
sem við gengum á öll sjö fellin í
Mosó.“
Ólafía segir að til að vera örugg-
ar um að ná örugglega sömu
hækkun og á Everest hafi þær farið
aðeins rúmlega þá hæð.
„Við notuðum bara úrin okkar
til að mæla hæðina og þar sem þau
eru ekki 100% örugg og voru oft
ekki sammála um hversu hátt við
fórum þá pössuðum við að öll úrin
færu í það minnsta yfir lágmarkið.“
Dýrmætt að njóta
samverunnar í útivistinni
Þó að þær hafi verið fjórar sem
náðu takmarkinu segir Ólafía að
margir hafi farið með þeim hluta
leiðarinnar.
„Þær sem kláruðu áskorunina
með mér heita Jóna Björg Ólafs-
dóttir, Sigrún B. Magnúsdóttir og
Guðlaug Harpa Gunnarsdóttir. Elín
Pálsdóttir fór með okkur næstum
allt, hún hafði ekki tíma til að vera
með okkur allan tímann en hún
fór samt í alveg yfir 6.000 metra
hækkun. Það var rosalega gaman að
hafa félagsskap í þessari áskorun og
það gerði þetta að mjög skemmti-
legri viku. Þetta var í október og við
fengum mjög gott veður miðað við
árstíma og af því við fórum þetta
mjög rólega gátum við spjallað á
leiðinni,“ útskýrir Ólafía.
„Maður hittir ekki marga þessa
dagana svo það var alveg ótrúlega
dýrmætt að njóta samverunnar á
meðan við gengum á fjöll.“
Ólafía segist hafa svolítið gaman
af svona áskorunum. Einhverju
sem þarf aðeins að hafa fyrir en er
samt ekki brjáluð keppni við neina
aðra en sjálfa sig og að ná að klára.
„Mér finnst það passa svolítið
vel við þessa tíma sem við erum
að lifa núna að ögra sjálfum sér.
Nú er að hefjast undirbúnings-
tímabil fyrir keppnir næsta árs
þar sem ég ætla til dæmis að taka
þátt í Hengill Ultra, Tindahlaupinu
og Súlur Vertical. Æfingarnar eru
sambland af fjallgöngum og utan-
vegahlaupum á öllum frábæru
útivistarsvæðunum hérna á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Ólafía sá heimildarmynd á Youtube sem varð hvati þess að hún fór í dag-
legar fjallgöngur í október. Hún náði frábærum árangri. MYNDIR/AÐSENDAR
Verslun Guðlaugs A Magnússonar
Skólavörðustíg 10
101 Reykjavík
sími 562 5222
www.gam.is
Jólaskeiðin
2020
dot.is
DÓT
Gæði á góðu verðiKíktu á úrvalið
Sendum um land allt
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R