Fréttablaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 54
ÞETTA ER JÓLA- SKEMMTUN FYRIR FULLORÐNA. DÓNÓ OG DAÐUR. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Sviðslistahópurinn Túttí­frútturnar verður með sína þriðju rafrænu Sófa­kabarettssýningu í kvöld. „Þetta er jólaskemmtun fyrir fullorðna. Dónó og daður,“ segir sviðslistakonan og túttí frúttan sem kallar sig Clitty Danger um sýninguna Couch Cab­ aret! – Christmas Edition. Clitty segir rafrænar sýningar hópsins hafa sprottið upp úr COVID­leiðindunum og að þær hafi veitt bæði þeim og áhorfendum mikla ánægju. Á sýningunni í kvöld troða tólf listamenn upp, íslenskir og erlendir gestir, með fjölbreytt jaðarlistformsatriði. „Allt í jólagír og gleði og Sófa­ kabarettinn færir fólki fordæma­ laust daður og húmor þegar jólin verða alveg skrúfuð í botn. Það verð­ ur mikið af jólalitum, glimmeri og gleðilátum og kannski kemur leyni­ gestur sem segir hó, hó, hó,“ segir Clitty og bætir við að burl esque sé ætlað fullorðnum áhorfendum þar sem gert er út á háð, skopstælingar og neðanbeltishúmor. Útrás með daðri „Við gerðum þetta í október og nóv­ ember og nú er það jólaútgáfan en við ætlum að reyna að gera þetta mánaðarlega í COVID­ástandinu. Það náttúrlega kemst enginn á svið og einhvers staðar verður maður að fá útrás,“ segir Clitty sem lýsir sér sem klassískri burlesque. „Það eru fjaðrir og brjóstadúskar. Hælar, rauðar varir og þetta klass­ íska og að sjálfsögðu verð ég með jólarauðar neglur með smá glimm­ eri fyrir sýninguna. Ég kem fram við tónlist og dansa og fer kannski úr einhverju smá og lokka,“ segir Clitty sem er hér komin að innsta kjarna burlesque­sins sem gengur út á að lokka, tæla og stríða. „Daðrið er það sem skiptir mestu máli í burlesque­inu þannig að það er mikið af slíku en við erum líka með sirkusfólk, söngvara og töfra­ mann. Þetta er rosa prógramm og þarna er alveg hiklaust eitthvað fyrir alla,“ fullyrðir Clitty. Dregið á gagnvirkar tálar „Það er erfitt fyrst. Maður þarf svolítið að sjá fyrir sér áhorfend­ urna okkar og sem betur fer hefur maður komist á svið nógu oft og nógu mikið til þess að muna þessa tilfinningu,“ segir Clitty þegar hún er spurð hvernig gangi að tæla og lokka í streymi þar sem áhorfendur eru víðs fjarri og jafnvel dreifðir út um allan heim. „En það skemmtilega við þessar rafrænu sýningar á Crowdcast er að það er spjall í gangi í rauntíma þannig að áhorfendur geta verið að tala saman og við okkur.“ Clitty segir að vissulega noti áhorfendur spjallið til þess að kalla hástöfum eftir því að f leiri spjarir fái að fjúka þegar verið sé að fækka fötum á sviðinu. „Jú, jú, jú, það er þannig sem við viljum hafa þetta og því meira sem við heyrum í fólki á spjallinu því meira er þetta eins og alvöru fyrir okkur.“ Ögrun innan jólakúlunnar Aðsóknin á Sófakabarettssýning­ arnar hafa farið fram úr björtustu vonum Túttífrúttanna. „Við áttum von á að selja kannski 30 til 40 aðganga að fyrstu sýningunni en tengingarnar fóru yfir hundrað,“ segir Clitty og bendir á að þær geri ráð fyrir að ekki séu færri en tvær til þrjár manneskjur á bak við hverja tengingu. „Sýningin er rúmur klukkutími og hver aðgangur kostar ekki nema 1.400 krónur á Tix.is og út af COVID hvetjum við ekkert til þess að fólk sé að hópa sig saman en þau sem eru saman í jólakúlu geta keypt sér aðgang,“ segir Clitty og hlær um leið og hún minnir á að sýningin hefst klukkan 21 í kvöld. „Og áhorfendur eru líka alls staðar að úr heiminum svo við erum augljóslega alveg að standast allar gæða­ og skemmtana­ kröfur.“ toti@frettabladid.is Djarfir brjóstadúskar í dillandi jólakúlunni Sviðslistahópurinn Túttífrútturnar ræðst gegn COVID-leiðindum með sófakabarettssýningu þar sem jólabrjóstadúskum verður sveiflað og gleðin keyrð áfram með daðri og neðanbeltishúmor. Clitty Danger er ekki alveg jafn háskaleg og sviðsnafnið kann að gefa til kynna en hún er komin í jólaskapið og lofar eldrauðri og heitri glimmerstemningu á sófakabarettsýningu kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sviðs- listakonan C. Rouge mun láta að sér kveða á burl- esque-sýningunni. MYND/ELÍN BJÖRG GUÐ- MUNDSDÓTTIR MYND/ANTON BRINK 18. desember 2020 | 50. tbl. | 111. árg. | Verð 995 kr. JólaSaga Grínvalkyrjan og leikkonan Saga Garðarsdóttir hefur sterkar skoðanir á staðalímyndum og skilur ekki af hverju stelpa sem spilar fótbolta er strákastelpa. Hún er bara stelpa sem spilar fótbolta. – sjá síðu 10 Óleyst íslensk sakamál 14 Jólagjafir mótherja 24 JÓLABLAÐ DV ER KOMIÐ ÚT! • Saga Garðars í skemmtilegasta viðtali ársins • Bestu jólasósurnar í ár • Jólagjafir handa óvinum • Hvað kosta jólin eiginlega? • ADHD jól • Jóla-detoxráð Lindu Pé • Óleyst sakamál 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.