Víkurfréttir - 26.08.2020, Page 10
Grímsi eltist við ufsann
Síðasti pistill var kannski full neikvæður, svo við
skulum hafa þennan pistil á jákvæðu nótunum.
Á Suðurnesjunum er gerður út
bátur sem vill svo til að er með
lægsta skipaskrárnúmerið allra
fiskibáta á Íslandi sem enn eru
gerðir út, númer 89. Heitir sá bátur
í dag Grímsnes GK.
Grímsnes GK lenti í því í febrúar
að mjög alvarleg vélarbilun varð í
bátnum og var hann frá veiðum frá
þeim tíma og fram í miðjan ágúst
síðastliðinn.
Sigvaldi Hólmgrímsson sem var
með Grímsnes GK síðast er aftur
kominn af stað á Grímsa, en svo
Sigvaldi kallar hann bátinn. Hann
fór beint austur undir Vestmanna-
eyjar og þar á svæðinu í kring að
eltast við ufsa.
Það óhætt er að segja að það
byrji vel hjá honum því að í
tveimur róðrum hefur báturinn
landað um 41 tonni og af því er ufsi
um 38 tonn.
Ufsavertíðin hjá Grímsnesi GK
haustið 2019 var mjög léleg en árið
2018 var mokveiði hjá bátnum á
ufsanum og svo góð veiði var að
Grímsnes GK endaði aflahæstur
allra netabáta á Íslandi árið 2018.
Það er reyndar annar bátur sem
tengist Hólmgrími og Grímsnesi
GK sem er líka með lágt skipa-
skrárnúmer. Það er bátur með
númerið þrettán. Sá bátur hét
síðast Happasæll KE en hafði líka
heitið Búddi KE. Þeim báti var lagt
2016 og lá við bryggju í Njarðvík.
Báturinn var síðan seldur til Bíldu-
dals en þar fékk báturinn annað
líf því hann hefur verið notaður
sem þjónustubátur við fiskeldið
í Arnarfirði og þegar þessi orð
eru skrifuð þá er Happasæll KE
á hægri siglingu til Stykkishólms
dragandi á eftir sér pramma sem
er að fara í slipp þar í bæ.
Nýtt kvótaár að hefjast
Annars er stutt í nýtt kvótaár en
það hefst 1. september og nú þegar
eru nokkrir línubátar komnir af
stað sem og dragnótabátarnir.
Siggi Bjarna GK hefur landað 6,4
tonnum í einum róðri. Benni Sæm
GK 54 tonnum í sjö túrum, Aðal-
björg RE 28,3 tonnum í þremur og
allir hafa landað í Sandgerði. Sigur-
fari GK hefur reyndar ekkert farið
af stað.
Af stóru línubátunum er Sig-
hvatur GK kominn með 226 ton,
Fjölnir GK 127 tonn og Páll Jónsson
GK 125 tonn, allir í tveimur róðrum
og allir hafa þeir landað úti á
landi. Sighvatur GK og Fjölnir GK
á Siglufirði og Páll Jónsson GK á
Djúpavogi.
Eins og greint var frá fyrir
nokkru í þessum pistlum þá var
talað um að Vísir ehf. í Grindavík
hefði lagt línubátnum Kristínu GK
og leigt í staðinn togarann Bylgju
VE frá Vestmannaeyjum.
Núna er Bylgja VE kominn á
veiðar fyrir Vísi ehf. og hefur
landað 48 tonnum í einni löndun
sem landað var á Ísafirði. Kvótinn
á Bylgju VE kom í byrjun frá Páli
Jónssyni GK en reyndar er Bylgja
VE með úthlutuðum kvóta ár
hvert um 1.554 tonn miðað við
þorsk ígildi.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir afi og langafi,
EINAR SÆDAL SVAVARSSON
Njarðarvöllum 2, Njarðvík
lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn 11. ágúst
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Geir Sædal Einarsson
Svavar Sædal Einarsson María Björnsdóttir
Kristín Sædal Einarsdóttir Albert Geir Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
JAKOB ÁRNASON
Húsasmíðameistari og loðdýrabóndi
Miðtúni 2, Keflavík
lést mánudaginn 17. ágúst á Hrafnistu Hlévangi.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir útförina.
Starfsfólki Hlévangs eru færðar innilegustu þakkir fyrir góða
og hlýja umönnun.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á Hollvini Grensásdeildar.
Ísleifur Árni Jakobsson Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Gunnar I. Baldvinsson
Kristinn Þór Jakobsson Ólöf Kristín Sveinsdóttir
Ásdís Ýr Jakobsdóttir Valur B. Kristinsson
Sigrún Björk Jakobsdóttir Jón Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
10 // aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár