Víkurfréttir - 26.08.2020, Blaðsíða 62
Frostaveturinn mikli
Þegar ég er spurður að því hvar ég eigi rætur þá svara ég ávallt með
stolti að þær liggi til Suðurnesja, enda hef ég alltaf verið hreykinn af
því að geta sagt að ég sé Suðurnesjamaður. Hér suður með sjó hefur
mér liðið vel og viljað skapa tækifæri til framtíðar þar sem Suður-
nesin hafa upp á svo margt að bjóða. Við íbúar Suðurnesja erum
almennt bjartsýnir að eðlisfari, enda höfum við tekist á við ýmsar
áskoranir í atvinnumálum síðustu árin og alltaf staðið uppréttir eftir
þær raunir.
En nú slær við nýjan tón.
Covid-19 hefur leikið okkur grátt
og benda allar spár í þá átt að
veturinn framundan verði mjög
þungur. Atvinnuleysi á Suður-
nesjum er nú í hæstu hæðum og
ef fram heldur sem horfir stefnir
í að atvinnuleysi hér verði um og
yfir 25% er líða tekur á haustið.
Þó svo að atvinnuleysi hafi vissu-
lega leikið okkur hér á Suður-
nesjum grátt í gegnum tíðina, þá
eru þetta tölur af stærðargráðu
sem við höfum aldrei séð áður.
Staðan er því vissulega svört en
vonandi aðeins til skamms tíma.
Því miður er ekki hægt að leggja
mat á það hvenær bjartari tíma er
að vænta en það fer eftir ýmsu og
þar spilar mest hvernig alþjóða-
samfélaginu mun ganga að hefta
útbreiðslu veirunnar.
Að missa atvinnu er hverjum
einstaklingi mjög þungbært og
þær afleiðingar sem fylgja at-
vinnumissi snerta margar hliðar
daglegs lífs. Fjárhagur fer úr
skorðum, rútína daglegs lífs
riðlast og í mörgum tilvikum
minnka félagsleg samskipti, sem
allt hefur neikvæði áhrif á ein-
staklinga og fjölskyldur þeirra.
Sú tekjuskerðing sem fylgir at-
vinnuleysi hefur einnig áhrif á
tómstundaiðkun barna til langs
tíma þar sem hún kostar fjár-
muni og þegar fram líður magnast
þessi vandi. Nýlegt dæmi frá
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykja-
nesbæ sýnir okkur að fjölskyldur
í Reykjanesbæ eru nú þegar
komnar í mikinn fjárhagsvanda.
Samkvæmt Fjölskylduhjálp þáðu
í heildina um 5.000 einstaklingar
á höfuðborgarsvæðinu (þ.m.t á
Suðurnesjum) mataraðstoð á
tímabilinu 15. apríl til 1. júlí og af
þeim voru 1.554 á Suðurnesjum
eða rúmlega 30%. Þessar tölur
eru sláandi og eiga að öllum lík-
indum aðeins eftir að hækka er
líður á veturinn.
Áskorunin framundan er
því stór og þurfa ráðamenn að
leggjast á árarnar með okkur og
aðstoða samfélagið hér við að
komast í gegnum þá erfiðleika
sem það stendur nú frammi fyrir.
Hér á Suðurnesjum þarf að skapa
störf og styrkja innviði ásamt því
að leggja grunn að fjölbreyttara
atvinnulífi. Því þurfa stjórnvöld
nú að koma til móts við þennan
hóp og aðstoða okkur við að
komast í gegnum þann frosta-
vetur sem framundan er.
Arnar Páll Guðmundsson,
formaður Viðreisnar
í Reykjanesbæ.
Veðurguðirnir hafa verið í góðu skapi síðustu daga og kylfingar hafa nýtt sér það til hins ýtrasta.
Hér má sjá tvo á sjöunda teig á Húsatóftavelli í Grindavík síðasta mánudag. Sigurður Garðarsson,
fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, horfir á eftir boltanum. VFmynd: pket
62 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár