Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 3

Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 3
MENNING Í Fréttablaði dagsins er birt úrval teikninga Gunnars Karls- sonar frá árinu sem er að líða. Sam- tals eru teikningarnar 24 þar sem þjóðþekktar persónur koma við sögu. Þar má sjá íslenska stjórn- málamenn, íþróttakempu, Boris Johnson, bresku d r o t t n i n g - una og Karl Bretaprins, aðila vinnu- ma rk aða r- ins, þríeykið og frambjóð- endur í nýaf- stöðnum forseta- kosningum í Bandaríkjunum. Gunnar er lesendum blaðsins að góðu kunnur, en teikningar hans birtast í blaðinu á laugardögum og hefur svo verið um langa hríð. Viðfangsefni teikninga Gunnars eru málefni líðandi stundar, bæði hér heima og annars staðar. – jþ / sjá síðu 20 og 22 — M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Allt frá skáldsögum til skartgripaGleðileg jól Við óskum landsmönnum öllum gleði og gæfu á komandi ári með þökkum fyrir viðskiptin á líðandi ári. LÖGREGLUMÁL Gísli Hauksson, annar stofnenda GAMMA Capital Management, hefur verið kærður til lögreglu fyrir lífshættulega atlögu að konu. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Ekki náðist í Gísla við vinnslu fréttarinnar. Kærandinn er fyrrverandi sam- býliskona Gísla en hinn kærði atburður er sagður hafa átt sér stað í vor á sameiginlegu heimili þeirra. Samkvæmt heimildum blaðsins er Gísla gefið að sök að hafa beitt konuna of beldi, tekið hana kyrk- ingartaki og þrengt hættulega fast og lengi að hálsi hennar. Rannsókn málsins er á frum- stigi, en í málum af þessum toga er alla jafna aflað vottorða og annarra læknisfræðilegra sönnunargagna, auk skýrslna sem taka þarf af kær- anda, kærða og öðrum vitnum eftir atvikum. Fréttablaðið hefur ekki fengið staðfest hvort tekin hafi verið skýrsla af Gísla vegna rannsóknar- innar, en nokkrar vikur eru liðnar frá því málið var kært til lögreglu. Gísli lét af störfum hjá GAMMA árið 2018. Hann átti þó rúmlega 30 prósenta hlut í félaginu þegar það var selt til Kviku banka fyrir 2,4 milljarða sumarið 2018. Hann mun hafa fengið hundruð milljóna króna fyrir hlut sinn í félaginu. Gísli er formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisf lokksins sem annast fjáröflun flokksins og situr í fram- kvæmdastjórn hans. – aá Gísli í Gamma kærður fyrir hættulega atlögu Fyrrverandi sambýliskona Gísla Haukssonar, annars stofnanda og fyrrver- andi eiganda fjárfestingafélagsins GAMMA, hefur kært hann til lögreglunnar. Hún gefur Gísla að sök að hafa þrengt hættulega fast og lengi að hálsi hennar. Þetta sá Gunnar Jólakötturinn á Lækjartorgi hefur mikið aðdráttaraf l og að honum f lykkjast fullorðnir og börn. Eru þetta þriðju jólin sem hinn vel upplýsti köttur gerir sig heimakominn á torginu. Grýla og Leppalúði mættu á Lækjartorg er kveikt var á kettinum í fyrsta sinn. Þau voru fjarri góðu gamni í þetta sinn enda skæðari óværa á kreiki um þessar mundir en köttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR NÁTTÚRUHAMFARIR „Við horfum bara á þetta koma. Þessi læti voru óhugnanleg,“ segir Seyðfirðingurinn Daníel Björnsson. Hann hefur nú fengið að fara heim ásamt konu sinni Jóhönnu Magnúsdóttur og sonum. Daníel var að störfum hjá Smyril Line þegar stóra skriðan féll. „Manni fannst fjallið vera bara að fara niður.“ Hann segist hafa heyrt frásagnir af svona atburðum en enginn skilji þetta fyrr en hann hefur upplifað. Nokkrir íbúar sem Fréttablaðið ræddi við á Seyðisfirði segja að þeir upplifi óöryggi heima hjá sér. Daníel skilur áhyggjur þeirra vel. Áfall þeirra sé mikið sem búa þar sem skriðurnar féllu. – mhj / sjá síðu 6 Óhugnanleg læti Daníel Björnsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.