Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 4
Kannski reyni ég
við ljóðin næst.
Silla Berg rithöfundur
Bræður kaupa jólatré
BÓKMENNTIR „Það er mjög gaman
að bókin sé loksins komin út,“
segir Sigurlaug Birna Leudóttir, eða
Silla Berg en nýlega kom út bókin
hennar Dear Self sem gefin er út
af hinu framsækna forlagi Austin
Macauley í London. Bókin fæddist í
Vancouver þar sem Silla var að læra
handritsgerð fyrir fimm árum.
„Ég sat á svölunum hjá mér í
Vancouver, rétt rúmlega f imm
um morguninn, af því ég hafði séð
marga tala um hvaða ráð maður
hefði verið til í að gefa sjálfum sér
sem unglingur. Ég sat og skrifaði
bréf til unglingssjálfsins míns
og það var byrjunin á þessu öllu
saman,“ segir Silla.
Síðan bættist í bréfin og skrifaði
Silla til fortíðar-, nútíma- og fram-
tíðarsjálfs síns og setur hún sam-
tölin upp eins og þau séu spjall á
skilaboðaskjóðu Facebook, Mes-
senger. Alls telur bókin 170 síður.
„Ég held að ég sé eiginlega betri í
að skrifa á ensku, því miður. Þetta
byrjaði í Vancouver og á ensku
og þróaðist á ensku þannig að ég
hélt mig við enskuna,“ segir Silla
aðspurð hvers vegna bókin sé ekki
á íslensku. Hún bendir líka á að for-
lögin á Íslandi hafi ekki verið ýkja
spennt er hún sendi þeim drögin.
„Mér var tjáð að það væri enginn
markhópur fyrir svona bók.“
Austin Macauley stökk á vagninn
og titlar bókina sem sjálfsævisögu.
Silla segir að sér finnist skemmti-
legast að segja góða sögu. Það sé
samnefnari yfir það sem hún hafi
lært. Fyrir utan að hafa lært hand-
ritsgerð hefur hún einnig staðið
fyrir framan myndavélina sem leik-
kona, meðal annars í Ófærð.
„Ég tjái mig betur þegar ég er að
skrifa heldur en að segja hlutina
upphátt en mér finnst öðruvísi
skemmtilegt að leika og fá að vera
einhver persóna og segja sögu.
Þetta er eiginlega bæði betra,“ segir
hún og vitnar í slagorð Homeblest.
Silla skrifaði undir bókasamning
við Austin Macauley í fyrra. Vegna
heimsfaraldursins seinkaði útgáf-
unni. Hún segir að hún gæti ekki
verið stoltari af sjálfri sér vegna
þess hversu vel hafi gengið.
„Nú er tíminn þannig að maður
veit í raun ekkert. Ég er aðeins að
byrja að vinna að íslenskri þátta-
röð sem er á frumstigi. Kannski
reyni ég við ljóðin næst,“ segir Silla.
Dear Self er að finna í búðar-
hillum Waterstones í London, hjá
Barnes & Noble í Bandaríkjunum
og á netinu hjá Amazon.
benediktboas@frettablaid.is
Bók sem fæddist seint
um nótt úti á svölum
Dear Self, eftir Sillu Berg, er komin út og er í búðarhillum í London og Banda-
ríkjunum. Bókin fæddist í Vancouver og á ensku. Silla segist því miður vera
betri í að skrifa á ensku en íslensku. Íslensk forlög höfðu ekki áhuga á bókinni.
Þekkirðu lyn þín?
GLÆSIBÆ / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 517 5500 / lyfsalinn@lyfsalinn.is
VESTURLANDSVEGI / OPIÐ 10:00-22:00 alla daga
Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is
URÐARHVARFI / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is
og þér líður betur
Komdu eða pantaðu tíma í síma
517 5500 eða sendu póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings
Silla með Dear Self sem Austin Macauley gefur út. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
COVID-19 Heilbrigðisráðuneytið
segir öruggt að samningur um bólu-
efni frá lyfjafyrirtækinu Janssen
gangi eftir og verði undirritaður í
dag. „Rétt eins og með önnur bólu-
efni liggur fullvissa um bóluefnið og
virkni þess ekki afdráttarlaus fyrir
fyrr en EMA hefur gefið út álit sitt,“
segir í svari frá Margréti Erlends-
dóttur, upplýsingafulltrúi ráðuneyt-
isins, við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Fram kom í gær að aðeins einn
skammt þurfi af bóluefni Janssen.
„Framleiðandinn hefur upplýst
ráðuneytið um að ef reynist þörf á að
bólusetja einstaklinga tvisvar með
efninu verði umsaminn skammtur
tvöfaldaður þannig að Íslandi verða
tryggðir skammtar sem duga fyrir
235 þúsund manns, hvort sem þarf
að bólusetja einu sinni eða tvisvar og
er það án viðbótarkostnaðar,“ undir-
strikar ráðuneytið.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins veitti í gær markaðsleyfi
fyrir notkun bóluefnis frá Pfizer
og BioNtech. Tæplega tíu þúsund
skammtar af lyfinu eru væntanlegir
til Íslands 28. desember.
Þá hefur komið fram að samið hafi
verið um 230 þúsund skammta af
bóluefni AstraZeneca en að komu-
tími sé óviss. Spurt hvort ekki
hafi verið hægt að semja um
komutíma segir ráðu-
neytið ríkin sem taki
þátt í samstarfi Evr-
ópusambandsins öll
sitja við sama borð.
Áætlað er að samið
verði um bóluef ni
frá Moderna um áramótin.
Ráðuneytið segir ekki ástæðu
til að ætla að samningurinn
sé í hættu. „Vissa er fyrir því
að um töluverðan f jölda
skammta er að ræða en ráðu-
neytið mun ekki gefa út hve
mikið fyrr en fullvissa er
fyrir fjöldanum,“ segir upp-
lýsingafulltrúinn. – fbl
Samningar við
Jansen öruggir
Margrét Erlendsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins.
Ef þarf að bólusetja
tvisvar með lyfi Janssen
verði umsaminn skammtur
tvöfaldaður án kostnaðar.
DÓMSMÁL Kona á þrítugsaldri var í
gær dæmd í Héraðsdómi Reykjaness
fyrir síendurtekinn akstur undir
áhrifum fíkniefna og án ökurétt-
inda. Hún á að greiða rúmlega 1,7
milljónir króna í sekt eða sæta 52
daga fangelsi ella.
Brotin voru framin 28.
febrúar til 17. ágúst á þessu ári.
Föstudaginn 28. febrúar var
konan stöðvuð við akstur á
Hverfisgötu í Reykjavík og
mældist amfetamín í blóði
hennar 2.100 ng/ml en
170 ng/ml eða meira
telst sem mikið. Þann
19. maí ók hún undir
áhrifum amfetamíns
og kannabiss á 153
kílómetra hraða á Suð-
urlandsveg í Ölfusi.
Konan missir nú bíl-
prófið í fimm ár. Auk
sektarinnar þarf hún að
borga yfir milljón króna
í sakarkostnað. – uö
Var uppdópuð
á 153 km hraða
Nú eru aðeins tveir dagar til aðfangadags og ekki seinna vænna að koma jólatré ársins í hús. Þessir þrír kampakátu bræður mættu í þeim erindagjörð-
um á jólatréssölu Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík við Öskjuhlíð og gekk þeim vel að verða ásáttir um val á normannsþin. Sjálfsagt verður ekki
síður gaman að koma skrautinu fyrir. Afar góð sala hefur verið á jólatrjám á aðventunni samkvæmt upplýsingum söluaðila. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð