Fréttablaðið - 22.12.2020, Page 8

Fréttablaðið - 22.12.2020, Page 8
NÁTTÚRUHAMFARIR Rétt rúmur helmingur Seyðf irðinga hefur fengið leyfi til að snúa aftur til síns heima á meðan hinn helm- ingurinn sem býr á hættusvæði þarf að finna sér annan samastað yfir hátíðirnar. Snjór féll á Austurlandi í fyrrinótt og hefur verið kærkomin sjón fyrir marga eftir aurskriðurnar síðustu daga. Næturfrostið dugði þó ekki til að hægt væri að af létta hættu- ástandi í stórum hluta bæjarins. Seyðisf jörður var rýmdur á föstudaginn í síðustu viku og voru einungis viðbragðsaðilar á ferð í bænum um helgina. Í gærmorgun var ásýndin hins vegar önnur við komuna inn í bæinn og mátti sjá heimamenn að spjalla á götum úti eða á leið í heimsókn til vina og vandamanna. Hluti þeirra íbúa sem búa á hættusvæði fékk einnig að fara á heimili sín í fylgd björgunarfólks til að sækja eigur sínar og nauðsynja- vörur. Björgunarfólk fór með íbúa á sér- útbúnum bílum inn á hættusvæðið á meðan aðrir björgunarsveitar- menn fylgdust grannt með fjalls- hlíðinni úr fjarlægð. Ekki voru allir svo lánsamir þar sem enn er lokað fyrir alla umferð á sumum svæðum. Fréttablaðið birti í gær viðtal við Jafet Sigfinnsson en hann og fjöl- skylda hans sluppu með naumind- um frá skriðunni en þau eru meðal þeirra sem fá ekki að sækja eigur sínar fyrir jól. Hús fjölskyldunnar liggur í miðju skriðusvæðinu við hlið Framhúss- ins sem skriðan gjöreyðilagði. – mhj Hluti íbúa snýr heim en fjöldi á um sárt að binda NÁTTÚRUHAMFARIR Almannavarna- deild ríkislögreglustjóra opnaði hjálparmiðstöð á Seyðisfirði þegar ákveðið var að hleypa hluta af íbúum aftur heim. Heimamönnum og björgunarsveitarfólki var boðið upp á kvöldmat á sunnudeginum og hádegismat þar í gær en hjálpar- miðstöðin er einnig til staðar fyrir þá sem vilja sækja sér áfallahjálp. „Við vorum með opið fyrir þá sem vildu koma. Viðbragðsað- ilar Rauða krossins og þar á meðal áfallateymið voru á svæðinu ef ein- hverjir vildu koma í spjall eftir að hafa komið hingað niður eftir,“ segir Guðný Drífa Snæland, sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Guðný segir að samheldni Seyð- firðinga síðustu daga hafi verið ótrúleg en fólk hefur verið að koma saman í Egilsstaðaskóla síðustu daga. Að sögn Guðnýjar mátti sjá þar íbúa sem eldað hafa grátt silf- ur í mörg ár í faðmlögum síðustu daga. – mhj Opnuðu hjálparmiðstöð á Seyðisfirði NÁTTÚRUHAMFARIR Daníel Björns- son, sem er fæddur og uppalinn á Seyðisfirði, fékk að fara aftur heim ásamt eiginkonu sinni Jóhönnu Magnúsdóttur og sonum þeirra Gabríel og Bjarka Sóloni. Daníel var að störfum hjá Smyril Line er stóra skriðan féll. Hann segir upplifunina hafa verið hálf ótrú- lega. „Við horfðum bara á þetta koma. Þessi læti voru óhugnanleg,“ segir Daníel en drunurnar úr fjallinu ómuðu um fjörðinn er skriðan féll. „Manni fannst fjallið bara vera að fara niður. Þetta er rosalega skrýtið. Maður hefur heyrt svona frásagnir en maður skilur þetta ekki fyrr en maður upplifir þetta. Þegar maður upplifir þessa hræðslu er það fyrsta sem manni dettur í hug að vilja komast í burtu,“ segir Daníel. Þó nokkrir Seyðfirðingar sem Fréttablaðið hefur rætt við síðustu daga hafa sagt að þeir upplifi sig ekki örugga heima hjá sér lengur. Daníel skilur áhyggjur þeirra vel enda áfallið mikið hjá þeim sem búa á stöðum þar sem skriðurnar féllu. „Ég skil það vel. Sérstaklega þeir sem eru hinum megin á skriðu- svæðinu. Eins og skriðan sem kom, þetta er ekki eitthvað sem menn reiknuðu með,“ segir Daníel en hann bjó á árum áður á hættu- svæðinu. Velvild og samheldni Seyð- firðinga hefur verið ótrúleg síð- ustu daga að mati Daníels. Þegar allir þurftu að yfirgefa heimili sín hringdi fyrrverandi vinnuveitandi hans í hann og bauð honum og fjöl- skyldunni að gista í sumarbústað rétt fyrir utan Egilsstaði á meðan ástandið liði hjá. Daníel segir ánægjulegt að koma heim en fjölskyldan býr nokkuð fjarri skriðusvæðinu. Hann segist upplifa sig öruggan heima hjá sér og ætlar fjölskyldan að halda jól á Seyðisfirði. mhj@frettabladid.is Drunurnar úr fjallinu ómuðu um allan fjörð Daníel Björnsson segir mikla velvild og samheldni ríkja meðal Seyðfirðinga í kjölfar náttúruhamfara þar eystra. Fyrrverandi vinnuveitandi hafi boðið fram gistingu í sumarbústað utan við Egilsstaði þar til ástandið væri liðið hjá. Fjölskyldan að Leirubakka flutti heim til Seyðisfjarðar á ný í fyrradag og mun halda jólin hátíðleg þar. Frá vinstri: Jóhanna Magnúsdóttir, Bjarki Sólon Daníelsson, Gabríel Daníelsson og Daníel Björnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þegar upplifir þessa hræðslu er það fyrsta sem manni dettur í hug að vilja komast í burtu. Daníel Björnsson Bríet Finnsdóttir og Jarþrúður Hólmdís, sjálfboðaliðar hjá Rauða kross- inum, undirbúa hádegismat í hjálparmiðstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Snjór féll á Austurlandi í fyrrinótt og mjöllin lagðist yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.