Fréttablaðið - 22.12.2020, Side 12
Fimm prósent Íslend-
inga treysta Donald Trump.
Um 17 þúsund vörubílar
eru fastir í Bretlandi.
ALÞJÓÐAMÁL Samkvæmt nýrri
heimskönnun Gallup er Donald
Trump Bandaríkjaforseti hvergi
óvinsælli en á Íslandi. Hér á landi
bera aðeins 5 prósent traust til hans
en 81 prósent segist vantreysta for
setanum. 14 prósent höfðu ekki
skoðun á verkum hans.
Aðeins 18 prósent svarenda í
könnuninni, sem náði til 29 landa,
bera traust til Trumps. Er þetta það
minnsta sem Bandaríkjaforseti
hefur mælst með hjá Gallup síðan
kannanir hófust, árið 2006. Mest
mældist traust til Trumps í Albaníu,
56 prósent, sem jafnar þó það lægsta
sem forsetinn hefur mælst með þar
í landi.
Öfugt er farið með traust til
Angelu Merkel Þýskalandskanslara.
Mældist hún með 62 prósenta traust
sem er það mesta sem kanslari hefur
mælst með í 14 ár. Á Íslandi mældist
57 prósenta traust til Merkel, sem
jafnar það mesta. Íslendingar eru alls
ekki meðal þeirra þjóða sem bera
mest traust til Merkel. Hins vegar
vantreysta henni aðeins 7 prósent
landsmanna.
Hæst mældist hún í Hollandi, með
87 prósenta traust, og Norðurlöndin
fylgja þar á eftir. Merkel mældist
með 56 prósenta traust í Bandaríkj
unum og 32 prósent í Rússlandi. Í
Íran mældist hún með minnst traust,
aðeins 30 prósent. – khg
Trump hvergi óvinsælli en á Íslandi
Aldrei fyrr hefur Bandaríkjaforseti mælst jafn óvinsæll. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BRETLAND Boris Johnson forsætis
ráðherra kallaði ríkisstjórn sína
saman á neyðarfund eftir að lönd
byrjuðu að loka á umferð til Bret
lands vegna nýs af brigðis kóróna
veirunnar þar í landi.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur hvatt ríki heims til að hefta
útbreiðslu af brigðisins sem fannst
í september og er sagt vera um 70
prósent meira smitandi.
Frakkar lokuðu á allar sam
göngur við Bretland, þar á meðal í
gegnum Ermarsundsgöngin, hvort
sem það eru almennar farþega
samgöngur eða vöruf lutningar.
Spánverjar, Þjóðverjar, Ítalir, Danir,
Indverjar, Kanadamenn og um 30
önnur ríki hafa lagt niður flugferðir
eða bannað aðkomur frá Bretlandi,
ef undanskildir eru eigin borgarar.
„Við munum hafa auga á af brigð
inu en megum ekki bregðast of
harkalega við,“ sagði Anthony Fauci,
sóttvarnalæknir Bandaríkjanna,
við CNN. Bandaríkin hafa ekki sett
auknar takmarkanir á samgöngur
við Bretland.
Algjört öngþveiti ríkir í breskum
höfnum og óttast er að alvarlegur
vöruskort verði yfir hátíðirnar.
Verslanakeðjan Sainsbury's gaf út
yfirlýsingu til að vara neytendur
við því að sumar vörur gætu klár
ast í hillum næstu dagana, svo sem
ýmist grænmeti og ávextir.
„Við vonumst til þess að ríkis
stjórnir Bretlands og Frakklands
geti komist að samkomulagi sem
felur í sér forgang matvælaflutninga
í höfnunum,“ segir í yfirlýsingunni.
Flest innflutt matvæli komi frá eða
í gegnum Frakkland en verið sé að
reyna að finna aðrar leiðir.
Um 17 þúsund vörubílar eru nú
fastir í Bretlandi og margir þeirra
bíða í löngum röðum í SuðurEng
landi eftir að banninu verði aflétt,
með tilheyrandi röskun á almennri
umferð. Sumum vegum hefur verið
lokað eða breytt í bílastæði. Í bíl
unum eru vitaskuld ökumenn sem
vilja komast heim fyrir jól.
Breska ríkisstjórnin hefur hvatt
landsmenn til þess að f lykkjast
ekki í verslanir og kaupa upp vörur
í óðagoti. Ítrekað var að Bretland
yrði ekki matvælalaust og að landið
hefði aðrar leiðir til þess að nálgast
matvæli og lyf.
Lokunin gæti hins vegar ekki
komið á verri tíma. Vöruflutningar
eru meiri en ella vegna hátíðanna
og aðeins rúm vika í að aðlögunar
tímabili útgöngu Bretlands úr Evr
ópusambandinu ljúki. Johnson
hefur enn neitað að framlengja
tímabilið og sagt Bretum að búa sig
undir samningsleysi í janúar.
Smásalar í Bretlandi hafa varað
viðskiptavini sína við því að skort
ur gæti orðið á einhverjum vörum
eftir áramót og að verð á öðrum, til
dæmis ostum, gæti hækkað um tugi
prósenta. Þeir voru þegar byrjaðir
að birgja sig upp af varningi frá Evr
ópusambandsríkjum og hugðust
halda því áfram fram að áramótum.
Lokunin setur það hins vegar í upp
nám og því útlit fyrir enn frekari
skort og verðhækkanir.
Leiðtogar Evrópusambands
ríkjanna funduðu í gær um stöð
una í Bretlandi. Rætt var um sam
ræmingu aðgerða og leiðir til þess
að verslun og viðskipti gætu átt sér
stað á sem áhættuminnstan hátt.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Uppnám eftir að tugir
ríkja loka Bretland úti
Frakkar, Spánverjar, Þjóðverjar og tugir annarra ríkja lokuðu á samgöngur
við Bretland vegna nýs afbrigðis kórónaveirunnar þar. Breska ríkisstjórnin
segir mat og lyf berast áfram til landsins og varar Breta við áhlaupi á verslanir.
Vegum hefur verið breytt í bílastæði til þess að bregðast við öngþveitinu í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
„... þá er sögu-
þráðurinn upp á tíu.
Hvert einasta atriði hans er
úthugsað og bókin heldur
lesandanum rækilega við efnið.“
RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ
„Þetta er svo
mikil snilld.“
ANNA MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR OG GYÐA SIGFINNSDÓTTIR
SKÚFFUSKÁLD
Spennandi og fyndin saga eftir metsölu-
höfundinn Gunnar Helgason.
Myndir eftir Lindu Ólafsdóttur.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð